Tíminn - 08.06.1986, Blaðsíða 7

Tíminn - 08.06.1986, Blaðsíða 7
I Sunnudagur 8. júní 1986 Tíminn 7 s ^W^^ennilega er ekki á neinn hallað þótt sagt sé að Tryggvi Magnússon hafi verið fremsti skopteiknari, sem ís- lendingar hafa borið gæfu til að eignast. Raunar munu fæstir taka undir að hann hafi borið höfuð og herðar yfir þá alia. Pað var skopblaðið Spegill- inn, sem gerði Tryggva lands- frægan, en í það blað teiknaði hann frá því að það hljóp af stokkunum og fram undir dauða sinn árið 1960. Tryggvi var raun- ar stofnandi Spegilsins ásamt þeim Sigurði Guðmundssyni og Páli Skúlasyni. Spegillinn naut gífurlegra vinsælda og þar áttu myndir Tryggva af fyrirmennum í stjórnmálalífinu drjúgan þátt. Tryggvi Magnússon fæddist á Bæ á Selströnd við norðanverð- an Steingrímsfjörð 6. júní árið 1900. Hann var af hagleiksfólki kominn, faðir hans var þjóð- hagasmiður og útskurðarmeist- ari, en föðurbróðir Tryggva var Stefán skáld frá Hvítadal. Tryggvi lauk gagnfræðaprófi frá Akureyri og hélt til Kaupmannahafnar árið 1919 til myndlistarnáms. Þar var hann í einn -vetury-en hélt vestur til Baiídan'kjanna og stundaði nám í einn vetur við The Leage of Art School. Frá New York lá leið Tryggva til Dresden, þar sem hann stundaði nám í einn vetur til viðbótar en hélt eftir það alfarinn heim til íslands. Fyrstu sýningu sína hélt hann í Ungmennafélagshúsinu við Laufásveg 1924 og fékk góða dóma. Þótt ævistarf Tryggva væri mjög tengt skopteikningum fyr- ir Spegilinn fór því fjarri að hann léti þar við sitja í list sinni. Eftir hann liggja allmörg mál- verk byggð á þjóðsagnaminn- um, þeicktust eru Sigríður Eyja- fjarðarsól, Djákninn á Myrká, Ríðum og ríðum, það rökkvar í hlíðum, Selur spurði sel, sástu hvergi Þorkel, Tungu- stapi. Þá liggja eftir hann all- mörg landslagsmálverk. En hvort sem það er vegna vinsælda hans sem skopteiknara þá hefur hann verið í skugga manna eins og Ásgríms Jónssonar, Muggs og fleiri hvað „alvarlegri“ myndlist varðar. Þá vann hann mikið starf við myndskreytingar á bókum fyrir börn. Tryggvi Magnússon átti síð- asta áratuginn við mikið heilsu- leysi að stríða og hann lést fyrir aldur fram, aðeins sextugur. Það er vel til fundið hjá Lista- safni alþýðu að efna nú til yfir- litssýningar á verkum Tryggva Magnússonar. Ekki er að efa að þessi sýning rifjar upp fyrir hin- um eldri kærar minningar frá liðnum áratugum. Jafnframt er fróðlegt fyrir hina yngri að kynn- ast þessum gersemum frá fyrri tímum. Það kemur þá í ljós hvernig myndir hans og skop- skyn standast tímans tönn, þeg- ar flestir þeir sem Tryggvi skop- ‘ast að hafa safnast til feðra sinna. Þar ber auðvitað hæst ýmsa af fremstu stjórnmála- mönnum þjóðarinnar á fyrri hluta aldarinnar og fram á þann seinni, Jónas Jónsson frá Hriflu, Ólaf Thors, Hermann Jónasson, Eystein Jónsson, Bjarna Benediktsson, Harald Guð- mundsson svo einhverjir séu nefndir. Myndir Tryggva eru frásagna- myndir og tengjast flestar ákveðnum viðburðum í þjóðlíf- inu. Það gefst nú gott tækifæri að rifja upp íslandssögu aldar- innar undir leiðsögn Tryggva Magnússonar. Engum ætti að leiðast á meðan á þeirri leiðsögn stendur. Menníngarsíódur víll gefa bækur, — og byrjar á ævísögu Englandsdroftníngar! tMcerí Craftmagnari 2x25 wött. .829 KE-4930 Bíltæki m/segulbandi, „Quartz PLL“ útvarpi og innbyggðum magnara. m E31 Kr. 14.530. HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 Umboðsmenn: Bókaskemman Akranesi, Kaupfélag Borgfirðinga, Sería [safirði, Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki, KEA Akureyri, Radíóver Húsavík, Skógar Egilsstöðum, Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum, Myndbandaleiga Reyðarfjarðar Reyðarfirði, Ennco Neskaupstað, D/úp/ð Djúpavogi, Hornabœr Hornafirði, Kaupfélag Rangœinga Hvolsvelli, M.M. búðin Selfossi, Rás Þorlákshöfn, Fataval Keflavík, Rafeindaþjónusfa Ómars Vestmannaeyjum, Radioröst Hafnarfirði, JL Húsið Reykjavík, Radioþjónusta Bjarna Reykjavík. BÍLUHN VERDUR EINS.QC HUQMLEJKAHOLL A HJOLUM.... KEH-8830 Bíltæki, m/segulbandi, „Quartz PLL" útvarpi og innbyggðum 2x20 watta magnara. E3E3HE2rQQ CD510 Kr. 30.355.- KP-2980 Bíltæki m/segulbandi, útvarpi og innbyggðum magnara. Kr. 10.827 ,e0^09 TS-1680 Innfelldur hátalari, 16 sm, 150 watta, 2 way, „Cross Axial", 48-20P00Hz. Kr. 4.082.- stykkið m- Spilun í báðar áttir c = Sjálfvirk endurspilun n- Sjálfvirkur rofi á mótor áfi’,- Snertitakkar m = Sjálfleitari á kassettu TS-1611 Innfelldur hátalari, 16 sm, 30 watta, 40-20000HZ. Kr. 1.637.- stykkið TS-M4 Tweeter, 60 watta, 400-20000HZ. \ „eQiý „yP‘ ■' * ' ........................ X ^ Kr. 2.142.-stykkið Cffl = Lagaleitari fyrir allt að 5 lög □□ = Dolby suðminnkun H = Gert fyrir metal kassettur C3 Fasalæst á FM-stöð [Q = Sjálfvirk móttökustilling á FM-stöð QQ = Sjálfvirk móttökustilling á FM-stöð ijjfjjíj = Stöðvaminni []^ = Truflanadeyfir fyrir útvarp. = Tengi fyrir magnara ^3 = Innbyggður kraftmagnari Q| = Bassa og diskant stillar = Loudness. Eykur bassa og diskant á lágum styrk VV = Balance stillir fyrir hátalara • ••• MED flö PIONEER* KPH-4830 Bíltæki, m/segulbandi, útvarpi og innbyggðum 2x20 watta magnara. ferl ESS Kr. 14.990.- BP-540 7 banda tónjafnari m/innbyggðum 2x20 watta magnara og fader. Kr. 9.980.- TS-1618 Innfelldur hátalari, 16 sm, 150 watta, 3 way, 30-20000Hz. Kr. 4.392.- stykkið TS-1633 Innfelldur hátalari, 16 sm, 60 watta, 2 way, „Co-Axial“, 30-20000Hz. Kr. 2.350.- stykkið Kr. 1.028.- stykkið TS-1230 Innfelldur hátalari, 12 sm, 30 watta, 50-1600Hz. Kr. 1.626.-stykkið TS-1011 Innfelldur hátalari 10 sm, 30 watta, 50-1600Hz.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.