Tíminn - 18.11.1994, Page 2
2
Föstudagur 18. nóvember 1994
Kaupfélag Rangœinga verbur 75 ára á sunnudag. Agúst Ingi Ólafsson kaupfélagsstjóri:
„Við erum hornsteinn
í þessu héraði"
"Markmibib er ab gera enn betur og þjónusta fólkib meb góbum hætti." Ágúst ingi Ólafsson fyrir framan hús
K.R. Ó Hvolsvelli. TímamyndSBS
Tíminn
spyr...
Eiga stjórnvöld ab grípa inni í
mál Atíanta flugfélagsins til a&
koma í veg fyrir flutning þess
úr landi?
Gu&ni Ágústsson, alþingis-
maöur í samgöngunefnd:
„Ég tel að stjórnvöld veröi aö
gera allt sem þau geta til aö
skapa aðstæður til að fyrirtæki
af þessu tagi starfi hér. Það er
fráleitt upp á framtíðina að gera
að við séum staðnir að því
vegna vitlausra reglna að hafa
hrekið af okkur svona fyrir-
tæki."
Egill Jónsson, alþingisma&ur í
samgöngunefnd:
„Þetta er snúin spurning
enda málið óvenjulegt. Þó er al-
veg ljóst að stjórnvöld yrðu aö
gæta vel að sér áður en þau
tækju ákvarðanir um hvað bæri
að gera, ekki síst vegna þess að
svona mál þarf aö þróast í gegn-
um einhverja umræðu. Þetta er
auðvitaö mál vinnumarkaöar-
ins og ég á erfitt með að sjá fyr-
ir mér einhverjar aðgerbir —
kannski ekki lögregluabgerðir
en upp undir það — af hálfu
ríkisvaldsins. Ríkisafskipti geta
því að svo komnu máli ekki
verið lausnarorðið."
Árni Johnsen, alþingisma&ur
í samgöngunefnd:
„Já, þab kann að koma til
þess. Að mínu mati er FÍA að
skjóta sig alvarlega í löppina
meö þessum aðgerðum þegar til
lengri tíma er litið. Ég held að
verkalýðshreyfingin þurfi mjög
ab skoða sinn gang eins og mér
er raunar kunnugt um að þeir
hafi gert, þar sem þeir hafi ekki
haft allar upplýsingar um mál-
ið. Annað hvort eiga menn færi
á að byggja upp atvinnu á ís-
landi í alþjóblegu umhverfi eða
vib einangrumst."
"Vi& munum gera margt
skemmtilegt í tengslum vi&
75 ára afmælið. Til dæmis
verba margvísleg kjarabob í
gangi og uppákomur. Um
kaupfélagið sjálft má segja
að þab sé hornsteinn í þessu
héraði og hafi verib þa& í 75
ár. "
Þetta sagði Ágúst Ingi Ólafs-
son, kaupfélagsstjóri Kaupfé-
lags Rangæinga á Hvolsvelli, í
samtali við blaðamann Tímans
fyrr í vikunni, en félagið held-
ur þessa dagana upp á 75 ára
afmæli sitt. Margvísleg kosta-
boð eru í verslunum félagsins á
Hvolsvelli og að Rauðalæk í
Holtum af þessu tilefni og
sömuleiðis er viðskiptavinum
boðið upp á kaffi og meðlæti á
tímamótum þessum.
Um margt er Kaupfélag
Rangæinga dæmigert fyrir
kaupfélag eins og þau starfa á
landsbyggbinni. Rekur fjöl-
þætta starfsemi og kemur víða
við, fólkinu til heilla. Heilu
byggbarlögin hafa myndast á
þeim stað þar sem höfuðstöðv-
ar félaganna eru settar niður.
Gagnkvæmt er félaginu styrk-
ur af fólkinu — og það myndar
félagið.
Kaupfélag Rangæinga heitir
upphaflega Kaupfélag Hall-
geirseyjar og var stofnað þann
20. nóvember 1919. Stofn-
fundurinn var haldinn ab Mið-
ey í Austur-Landeyjum, en
starfsemin sett nibur að Hall-
geirsey í sömu sveit. Árib 1930
var starfsemin hinsvegar flutt
að Hvolsvelli. Þar voru þá eng-
in hús, önnur en læknissetur á
Stórólfshvoli. Þetta sama ár
stofnuðu svo menn í vestan-
verðri Rangárvallasýslu sitt
kaupfélag, Kaupfélag Rangæ-
inga, og settu niður að Rauða-
læk í Holtum. Þessi tvö félög
voru sameinuð árið 1948. Síð-
an heita þau Kaupfélag Rangæ-
inga á Hvolsvelli með útibú á
Rauðalæk.
Starfsemi félagsins er nokkuð
fjölþætt, eins og áður sagði. Á
Hvolsvelli er starfrækt stór
verslun, lítil kjörbúö í sölu-
skálanum Hlíðarenda, bíla-
verkstæði, vélsmiðja, tré-
smiðja, rafmagnsverkstæði,
umboð fyrir Olíufélagib Esso
og pakkhús þar sem meðal
annars er höndlað með bygg-
ingavörur og ýmislegt til land-
búnaðar. Á Rauðalæk í Holtum
er kjörbúð, pakkhús og véla-
verkstæbi. Þá má einnig geta
þess að kaupfélagib rak á sín-
um tíma húsgagnaframleiðslu
og prjónastofu. Og talandi um
að fólkinu í byggðarlaginu sé
styrkur í rekstri félagsins má
geta þess að í kringum 1970
stób félagið að byggingu nær
40 íbúðarhúsa á Hvolsvelli sem
seld voru á kostnaöarverði.
Hús við götuna, Litlagerði, eru
flest byggð með þessu móti. Þá
má geta þess að vélsmiðja fé-
lagsins hefur staöið framarlega
í smíði landbúnaðartækja.
"Bændurnir sem koma hing-
að á skrifstofuna til mín bera
sig margir illa, því er ekki að
leyna. Það er erfitt fyrir marga
að láta dæmin ganga upp.
Auðvitaö skapast þetta af sam-
drætti í landbúnaði síðustu ár.
Mikið hefur verið skorið niður
í sauðfjárrækt, verð á nauta- og
hrossakjöti er lágt og fleira
mætti nefna sem hefur verið
bændum óhagstætt. Hinsvegar
er jákvæður póstur í þessu ab
eftirspurn eftir mjólk hefur
verið að aukast sem líklega
kallar á að framleiðsluréttur
kúabænda verður aukinn. Það
væri vítamínsprauta," sagði Á-
gúst Ingi. Hann segir að á
þessu ári hafi velta félagsins
dregist saman um nær 3% og
komi það fyrst og fremst til
vegna minni tekna bænda.
Reksturinn á þessu ári hefur
veriö nokkuð þungur en bata-
merki séu framundan. Á síð-
asta ári var tap af rekstrinum
rúmar 10 milljónir króna. Þar
af voru sex millj. tilkomnar
vegna afskrifta í stofnsjóði
Sambandsins.
Um rekstur Kaupfélags Rang-
æinga í næstu framtíð segir A-
gúst Ingi að fyrst og fremst sé
markmiðið ab halda sjó í nú-
verandi vibfangsefnum og
reyna að gera enn betur en nú
er. Þjónusta fólkið með góðum
hætti, ella leiti það annað sem
dæmin sanni, því samkeppni
verslunar í Rangárvallsýslu vib
höfuðborgarsvæbið sé mikil.
Hitt sé aftur á móti annað mál
að vaxtarbroddar í atvinnulífi í
sýslunni leynist víða, t.d. í
ferðaþjónustu og starfsemi fé-
lagsins á því sviði sé nokkur.
Hvort ráðist verði í frekari
landvinninga á því sviði sé
ekki ákveöið enn.
Ágúst Ingi hefur veriö kaup-
félagsstjóri frá árinu 1989 en
hefur starfað hjá félaginu síðan
1966. Stjórnarformabur Kaup-
félags Rangæinga er Bjarni
Jónsson, bóndi á Selalæk á
Rangárvöllum.
-SBS, Selfossi.
Einn karl-
maður leik-
skólastjóri
Einn karlmaður gegndi starfi
leikskólastjóra í Ieikskólum
Reykjavíkurborgar á síöasta ári.
í ársskýrslu Dagvistar barna í
Reykjavík kemur fram að starf-
semin á árinu nábi til 56 leik-
skóla, 15 skóladagheimila og 28
gæsluleikvalla. Alls gegndu 80
einstaklingar stöðu leikskóla-
stjóra á árinu (sumir tímabund-
ib), 79 konur og einn karlmað-
ur, Sigfús Abalsteinsson, leik-
skólastjóri á Klettaborg. Enginn
karlmaður var forstöðumaður
skóladagheimilis eða gæslu-
leikvallar. ■