Tíminn - 18.11.1994, Page 4
4
Föstudagur 18. nóvember 1994
STOFNAÐUR 1 7. MARS 1 91 7
Útgáfufélag: Tímamót hf.
Ritstjóri: ]ón Kristjánsson
Ritstjórn og auglýsingar: Stakkholti 4, 105 Reykjavík
Inngangur frá Brautarholti.
Sími: 631600
Símbréf: 16270
Pósthólf 5210, 125 Reykjavík
Setning og umbrot: Jæknideild Tímans
Mynda-, plötugeró/prentun: ísafoldarprentsmibja hf.
Mánabaráskrift 1550 kr. m/vsk. Verö í lausasölu 150 kr. m/vsk.
Atlanta hrakið
úr landi
Þrátt fyrir mikinn fréttaflutning af kjaradeilu flug-
manna og Atlanta, sem staðið hefur í nokkrar vik-
ur, er heldur óljóst um hvað deilan stendur í raun
og veru. Boðuð samúðarverkföll fleiri launþegafé-
laga virðast fremur standa um völd og styrk félag-
anna en kjarabætur. Eins hlýtur að vekja furðu að
það eru ekki starfsmenn Atlanta sem eru í verkfalli
eða eru að boða vinnustöðvun, heldur félög sem
eru að gæta ímyndaðra eða raunverulegra hags-
muna eða réttinda.
Þær fréttir að forráðamenn Atlanta hafi sagt upp
öllu starfsfólki félagsins og hyggist flytja starfsem-
ina úr landi eru alvarleg áminning um að séu fyrir-
tækjum ekki búin starfsskilyrði hér á landi, er fátt
því til fyrirstöðu að þau flytjist til útlanda eða verði
undir í samkeppni.
Eigendur flugfélagsins segja uppsögn starfsfólks
og flutning úr landi vera algjört neyðarúrræði.
Undir eðlilegum kringumstæðum kysu þeir miklu
fremur að reka félagið frá íslandi, þótt starfsemi
fari að langmestu leyti fram erlendis.
Þau launþegafélög, sem standa að verkföllum
sem beinast að Atlanta, hljóta að gera grein fyrir af-
stöðu sinni og gjörðum. Ekki með hálfkveðnum
vísum og þokukenndu orðalagi, heldur skýra skil-
merkilega frá hvaða nauður rekur til að neyða mik-
ilvægt atvinnufyrirtæki til að leggja niður rekstur
sinn hérlendis.
Vel má vera ab hótanir og aðgerbir FÍA og ASÍ
séu nauðsynlegar og launþegum til hagsbóta. En
eins og komið er hljóta launþegasamtökin að sýna
fram á hvað réttlætir að 82 manns hefur verið sagt
upp störfum og starfsgrundvöllur öflugs flugfélags
er brotinn nibur.
Sjálfsagt er þab rétt að uppsagnirnar eru ólögleg-
ar eins og á stendur, en það er ekki aðalatriði máls-
ins, fremur teknískt úrlausnarefni fyrir lögfróða.
Það alvarlegasta er að þeir, sem að aðgerbunum
standa, sýnast gera sér litla grein fyrir að Islending-
ar eru komnir inn í fjölþjóðlegt atvinnuumhverfi
og eiga íslensk fyrirtæki í harðri samkeppni við er-
lend, en eiga þess einnig kost að keppa við þau á
heimamarkaði, ef svo má segja um fjölþjóðlegt at-
hafnasvæði. Ef starfsgrundvelli er kippt undan fyr-
irtæki á einum stað, getur þab sem best flutt sig
annað, og er það sérstaklega auðvelt fyrir flutn-
ingafyrirtæki sem starfa á alþjóblegum markaði.
Nýverið stofnubu íslendingar flugfélag á írlandi
og hyggjast í framtíðinni halda uppi samgöngum
landa á milli og m.a. til íslands. Þetta vekur þá
spurningu hvort starfsumhverfið hér á landi er svo
miklu lakara en annars staðar að boðið er upp á að
íslenskir athafnamenn hrekist með starfsemi til
landa þar sem betur er að henni búið.
Svör hljóta að fást við því hverra hagsmuna er
verið að gæta með þeim víðtæku aðgerðum sem
launþegahreyfingin beinir gegn flugfélaginu Atl-
anta í Mosfellssveit.
Hvort sem þær eru réttlætanlegar eða ekki, hlýt-
ur það að vera íhugunarefni hverjir og með hvaða
hætti sjá sér ávinning í ab hrekja mikilvægt fyrir-
tæki úr landi.
Sá hlær best sem síhast hlær
Samkvæmt fréttum mun í dag
koma út bókin Hrafn Gunn-
laugsson þar sem hann opnar
innstu hugarfylgsni sín fyrir
þjóðinni enn einu sinni, en nú í
samtali við Árna Þórarinsson.
Fréttastofa ríkissjónvarps er
greinilega búin að bæta tengsl
sín við Hrafn frá því þegar hann
var framkvæmdastjóri, því
fréttastofan hefur fengið eintak
af bókinni á undan öðrum. í
fyrrakvöld var flutt frétt upp úr
henni og vitnað til þess sem
Hrafn hafði aö segja um Hrafns-
málið svokallaöa á sjónvarpinu.
Ef Garri tók rétt eftir, þá er sam-
særiskenning Hrafns sú — en
Hrafn er mesti samsæriskenn-
ingamaður á íslandi eftir að par-
anojan hætti að hrjá Bubba —
að Þorsteinn Pálsson hafi staðið
að baki þeim málum öllum með
sínum langa stjórnmálaarmi
innan Sjálfstæðisflokksins.
Þannig hafi verið á ferðinni
mikill samblástur Þorsteins-
manna í flokknum, sem hafi
notað Hrafnsmálið — þ.e. upp-
sögn Hrafns sem dagskrárstjóra
og endurráðningu hans gegn
vilja útvarpsstjóra sem fram-
kvæmdastjóra sjónvarps — til
að koma höggi á Davíð Odds-
son, einkavin Hrafns Gunn-
laugssonar.
Flókið samsæri
Raunar er samsærið í þessari
kenningu Hrafns svo flókið að
Garri verður að viðurkenna að
hann á í erfiðleikum með aö
skilja hvernig þab er. Vitab er ab
Ólafur G. hefur jafnan verið tal-
inn Þorsteinsmaður, og kannski
þaö hafi því verið sú ákvörbun
Ólafs G. ab endurrába Hrafn í
starf framkvæmdastjóra sjón-
varpsins sem Hrafn telur nú að
hafi verib aðför að Davíö. Hins
vegar liggur í augum uppi að þá
og því aöeins gat ráðning
Hrafns í stöðu framkvæmda-
stjóra verið pólitískt högg á
Davíð aö um ámælisverða ráðn-
ingu hafi verið að ræða. Ef þetta
er réttur skilningur á fléttunni,
sem vísað er til í bókinni, þá er
þetta huguð yfirlýsing hjá
Hrafni. Hrafn er nefnilega að
GARRI
segja ab það hafi veikt stöðu
Davíðs að ráða brottrekinn dag-
skrárstjóra sem framkvæmda-
stjóra. Þab hafi því verið út-
smogið hjá Þorsteini að láta Ól-
af ráða Hrafn og eingöngu gert
til að koma höggi á Davíð.
Raunar gæti samsærið hafa
byrjað enn fyrr, því Heimir
Steinsson var ráðinn af Ólafi G.
og er því væntanlega Ólafs G.-
maður, sem aftur mun vera Þor-
steinsmaður, þannig ab það
gæti allt eins verið að Þorsteinn
Pálsson hafi látið Heimi reka
Hrafn sem dagskrárstjóra, skip-
að síban Ólafi að ráða hann sem
framkvæmdastjóra og allt í því
skyni að koma höggi á aum-
ingja Davíð, sem einskis ills átti
von.
Súrrealískur
útvarpsstjóri
Garri hefur því miður ekki séð
bókina hans Hrafns, en ef þessi
samsæriskenning er rétt, þá má
eins búast við að fleira sé runn-
ið undan rifjum Þorsteinsarms-
ins í Sjálfstæðisflokknum. Það í
sjálfu sér, að Hrafn skuli tala um
Hrafnsmálin í sérstakri bók,
hlýtur líka að vera gert gagngert
til að koma höggi á Davíð, því
allir eru sammála um að fátt
gæti spillt eins fyrir pólitískum
frama Davíðs eins og það að
rifja þá sorgarsögu einu sinni
enn upp.
Þegar Garri heyrði fyrst þessa
nýju samsæriskenningu, sem
fram kemur í bókinni, var hann
raunar alveg sannfærður um að
Hrafn væri endanlega genginn
af göflunum. Og þegar frétta-
stjóri ríkissjónvarpsins hafði
eftir útvarpsstjóra í fréttatíman-
um sem viðbrögð við því sem
Hrafn segir í bókinni: „Sá hlær
best sem síðast hlær!" hætti
Garra satt að segja alveg að lítast
á blikuna. Samsæriskenningar
Hrafns eru alveg á mörkum þess
að geta talist óbrjálaðar, en við-
brögð Heimis Steinssonar eru
gjörsamlega súrrealísk: „Sá hlær
best sem síðast hlær". Satt að
segja gætu þeir Hrafn og Heimir
sem best veriö tvær persónur í
sögunni um „Engla alheims-
ins", sem Einar Már Guð-
mundsson skrifaði á sínum
tíma.
í ljósi þess að Davíð hefur vit-
að af útkomu bókar Hrafns vin-
ar síns, lýsir Garri því hér með
yfir aö hann mun aldrei aftur
halda því fram að það hafi verið
Alþýðuflokkurinn sem kom í
vég fyrir að Davíð færi í haust-
kosningar, Hinn mikli örlaga-
valdur í þeim efnum var bóka-
útgáfa Hrafns Gunnlaugssonar,
sem Davíð vonar að verði
gleymd í vor.
Garri
Þekkingarhraðbrautin
Við lifum á öld upplýsinganna,
hvernig sem okkur tekst að nýta
þær. Tæknin til að koma þeim á
framfæri verður sífellt fullkomn-
ari og möguleikarnir ótæmandi.
Um síðustu helgi sá ég orðið
„þekkingarhraðbraut" í ályktun
sem ég var að lesa. Ég staðnæmd-
ist vib orðið og minnist þess ekki
að hafa séð það ábur. Hins vegar
er þetta stabfærð þýöing á hug-
takinu „information highways",
sem notað er um nýjustu sam-
skiptaleiðir á svibi upplýsinga-
tækni.
AT&T
Ég átti þess kost nú í vikunni að
heimsækja tæknimibstöð fyrir-
tækisins AT&T í Washington. Fyr-
irtækið vinnur á sviði upplýsinga-
tækni og af þeim fræbslufundi,
sem ég sat þar, mátti fá þá tilfinn-
ingu að fátt væri ómögulegt í
samskiptum framtíöarinnar. Ljós-
leiðarar og kapalkerfi gefa ótæm-
andi möguleika og allt byggist
þetta á því aö tölvutæknin og
síma- og sjónvarpstæknin eru
leiddar saman. Hjá AT&T vinna
menn stöbugt að því að skyggnast
inn í framtíðina.
Heimilistölvan
í samskiptakerfi framtíðarinnar
eru lítil takmörk fyrir möguleik-
um heimilistölvunnar. Hún leitar
ab hagstæðum kjörum í verslun-
um. Hún hjálpar til að gera ferða-
áætlanir. Hún kemur eigendum
sínum í samband við bókasöfn og
upplýsingar. Hún getur haft milli-
göngu um að koma eiganda sín-
um í skóla hjá færustu kennurum.
Meö hjálp hennar má tala við
heimilislækni eða sérfræðinga
þótt í fjarlægð séu.
Á víftavangi
Allt þetta er þó háð því að
tengjast kerfum upplýsinga og
kunna að segja þessu tæki fyrir
verkum.
ísland og upplýsinga-
tæknin
Ég hef þab einhvern veginn á
tilfinningunni að hér kunni að
vera um afar áhugavert mál að
ræða fyrir okkur íslendinga. Vib
erum tæknilega sinnaðir og oft á
tíöum tækjaóbir. Okkur ætti ekki
að veröa skotaskuld úr því aö taka
þátt í þessu kapphlaupi. Ljósleið-
ari er þegar kominn hringinn um
landið. Sú staðreynd opnar mikla
möguleika nú þegar. Nú þegar er
verið að opna nýjar leiöir í heil-
brigöisþjónustunni, til dæmis
meö sendingu röntgenmynda
milli landshluta, svo dæmi séu
nefnd. Tæknimenn ríkisspítal-
anna eru þegar á kafi í því ab
kanna mögúleikana sem nýjar
samskiptaleiðir gefa.
Heimurinn minnkar
Við hinar nýju upplýsinga- eða
þekkingarhraðbrautir minnkar
heimurinn. Það er okkur íslend-
ingum í hag, sem erum land-
fræbilega einangraðir og drjúgur
spölurinn til nágrannanna. í
heimsókninni hjá AT&T var
fræðslufundur með þremur fyrir-
lesurum. Til þess að leggja áherslu
á fánýti fjarlægðanna í þessum
nýja heimi var einn fyrirlesar-
anna í Strassborg, en hann hélt
sitt erindi meö hjálp sjónvarps-
tækninnar og svarabi fyrirspum-
um eins og hann væri staddur
mitt á meðal gestanna.
Áhrifin af heimsókninni í heild
var sú tilfinning að breytingar í
fjarskiptatækninni séu rétt að
byrja, mannkynið sé í fordyrinu
og sé að stíga yfir þröskuld á þessu
sviði. 21. öldin verður byltinga-
kennd, ef friður helst um veröld-
ina.
Jón Kr.