Réttur - 01.01.1961, Blaðsíða 114
114
RÉTTCE
afturhaldssamri persónuvalds-
stjórn. Mikil verkföll hafa átt
sér stað í Bandaríkjunum, Arg-
entínu, Úrúgvay, Chile, Ind-
landi, Bretlandi, Kanada,
Belgíu og fleiri auðvaldslönd-
um. Barátta þeldökkra manna
í Bandaríkjunum fyrir brýn-
ustu mannréttindum er orðin
að raunverulegri lýðhreyfingu.
Á Spáni og í Portúgal gætir
vaxandi viðleitni að sameina
þjóðleg öfl gegn alræði fas-
ista, og lýðræðishreyfing eflist
í Grikklandi. Hervaldsharð-
stjórn hefur verið steypt af
stóli í Kólumbíu og Venezúelu,
og í Suður-Kóreu og Tyrk-
landi hafa ríkisstjórnir yfir-
lýstra Bandaríkjaleppa oltið úr
valdasessi. í Suður-Vietnam
og Laos þróast þjóðernisleg
lýðræðishreyfing, sem beinist
gegn bandarískri heimsvalda-
stefnu og þjónustumönnum
hennar. Þjóð Indónesíu er sem
óðast að uppræta efnahagsítök
þau, sem erlendir heimsvalda-
sinnar, einkum hinir hollenzku
nýlendukúgarar, eiga sér enn-
þá í landi hennar. Friðarhreyf-
ing alþýðunnar vinnur á í öll-
um álfum heims. Allar þessar
staðreyndir eru ljós dæmi þess,
hvernig alda baráttunnar móti
heimsvaldastefnu og stríði, alda
þjóðfrelsis- og stéttabaráttu, rís
æ því hærra sem lengra líður.
Allsherjarkreppa auðvalds-
ins er komin á nýtt stig.
Þessu til sönnunar er sigur
sósíalismans í fjölmörgum
löndum Evrópu og Asíu með
þriðjung mannkyns að íbúa-
magni, feiknlegur vöxtur þeirra
afla, er vinna að framgangi
sósíalismans um heim allan, og
æ lakari staða heimsvaldasinna
í efnahagskeppninni við sósíal-
ismann, gífurlegur uppgangur
þjóðfrelsisbaráttunnar og hrað-
vaxandi sundurlausn nýlendu-
valdskerfisins, æ fallvaltara
jafnvægi i öllu efnahagskerfi
auðvaldsheimsins, harðnandi
andstæður auðvaldsins sjálfs,
er leiðir af vaxandi valdi rfk-
iseinokunarauðmagns og hern-
aðarstefnu, æ harkalegri á-
rekstur einokunarhringavalds-
ins og hagsmuna þjóðarheild-
arinnar, sífelld skerðing á
borgaralýðræðinu ásamt hneigð
til að taka upp stjórnarhætti
persónuvalds og fasisma, svo
og ógöngur þær, sem borgara-
stéttin er komin í með stjórn-
málastefnu sína og hugmynda-
kerfi. Sérstaklega er athyglis-
vert, að því er þetta nýja
kreppustig varðar, að það er
ekki afleiðing heimsstyrjaldar,
heldur er það til komið fyrir
samkeppni og baráttu heims-
kerfanna tveggja, vaxandi
hneigð vogarstöðunnar sósíal-
ismanum í vil, svo og það,
hversu hastarlega hert hefur á
öllum þeim andstæðum, er
heimsvaldastefnan hefur í
fylgd með sér. Það hefst á tím-
um, er barátta friðaraflanna
fyrir eflingu friðsamlegrar
sambúðar hefur náð að afstýra
þeim friðslitum, sem heims-
valdasinnar stefndu að með
J