Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.01.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 26. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Geysist um á mótorfák Vissi alltaf að ég myndi fara út í mótorhjólin segir Birna María | 24 Bílar og Íþróttir í dag Bílar | Aygo: stærri en sýnist  Minni sala í Evrópu  Frakkar bæta sig  Næsta vélsleðaárið  Nýr Megane II  Alfa 159 kominn Íþróttir | Er bestur þegar ég spila vel segir Ólafur  Viggó ánægður Ráðstefna um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi föstudaginn 27. janúar á Hótel Nordica. Nánari upplýsingar, dagskrá og skráning á www.sa.is HAMAS-hreyfingin, flokkur ísl- amskra harðlínumanna, vann stórsig- ur í kosningunum meðal Palestínu- manna í fyrradag og hefur mikinn meirihluta á þingi. Er tíðindunum tekið sem pólitískum jarðskjálfta en úrslitin valda ekki aðeins mikilli óvissu meðal Palestínumanna, heldur setja þau allar friðarhorfur í Mið- Austurlöndum í uppnám. Niðurstaðan í kosningunum var sú, að Hamas fékk kjörna 76 menn af 132 á þingi en Fatah-hreyfingin 43. Ahm- ed Qurei, forsætisráðherra palest- ínsku heimastjórnarinnar, og ríkis- stjórn hans sögðu af sér í gær en Mahmoud Abbas forseti og leiðtogi Fatah-hreyfingarinnar ætlaði að fela Hamas að mynda nýja stjórn. Kvaðst hann mundu krefjast þess, að teknar yrðu upp viðræður við Ísraela. Saeb Erekat, helsti samningamaður fráfar- andi stjórnar, sagði í gær, að Fatah hefði ekki hug á að vera í stjórn með Hamas, sem stefnir að því að tortíma Ísraelsríki og ber ábyrgð á flestum hryðjuverkum í Ísrael á síðustu árum. Ísraelsstjórn í vanda Fyrir Ísraela er niðurstaðan mikið áfall og viðbúið, að hún geti ráðið miklu um kosningarnar í Ísrael í marslok. Ehud Olmert forsætisráð- herra hefur ítrekað sagt, að ekki verði rætt við Hamas, en vandinn, sem við honum blasir, er, að bregðist hann ekki af hörku við tíðindunum mun það verða vatn á myllu Benjamins Net- anyahus og harðlínumannanna í Lik- udflokknum. Mushir al-Masri, frammámaður í Hamas, sagði í gær, að viðurkenning á Ísrael væri ekki á döfinni. Hamas til valda í Palestínu Dagar óvissu og ótta í Mið-Austurlöndum Reuters Ismail Haniyeh, helsti leiðtogi Hamas-hreyfingarinnar, innan um fagnandi fólk á Gaza. Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is Sigurvegarinn Kjósendur refsuðu Fatah fyrir spillinguna  16 ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik karla fékk sannkallaða óskabyrjun með kröftugum sigri á Serbum/Svartfellingum, 36:31, í upphafsleik sínum á Evrópumeistaramótinu í Sviss í gær. Leikmenn Íslands höfðu svo sannar- lega ástæðu til að gleðjast að leikslokum. Í kvöld mæta þeir Dönum. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kröftugt upphaf á EM LÖGREGLAN í Reykjavík fletti of- an af einni umfangsmestu skipu- lögðu kannabisræktun sem um getur þegar upp komst um ræktun sem átt hefur sér stað um nokkurt skeið í iðnaðarhúsi í miðbæ Reykjavíkur. Almenn deild lögreglunnar komst upphaflega á snoðir um ræktunina og voru lögreglumenn sendir að kanna málið nánar. Við þá rannsókn kom í ljós að í iðnaðarhúsnæðinu voru vel stálpaðar kannabisplöntur í hundraðatali. Þegar í ljós kom hversu umfangsmikið málið reyndist vera var fíkniefnadeild lögreglunnar fengin til aðstoðar ásamt tækni- rannsóknarmönnum. Vegna málsins voru karl og kona um tvítugt hand- tekin og í kjölfarið var einnig farið í húsleitir. Fannst þá til viðbótar verulegt magn fíkniefna. Ekki er hægt að greina frá efni og magni hvað það snertir. Fólksins bíða yf- irheyrslur í dag en ekki er ljóst hvort farið verður fram á úrskurð héraðs- dóms um gæsluvarðhald í þágu rannsóknarinnar. Lögreglan tók kannabisplönt- urnar í sína vörslu og rannsóknar- manna bíður að mæla þær og vigta. Umfangsmikil kannabisrækt í miðbænum Morgunblaðið/Júlíus Hinn handtekni var færður í fanga- geymslu og bíður skýrslutöku. Washington, Brussel. AP, AFP. | Tals- menn vestrænna ríkja lýstu í gær áhyggjum sínum af sigri Hamas- hreyfingarinnar í Palestínu og lögðu áherslu á, að ekki yrði rætt við vænt- anlega stjórn hennar nema hún hafn- aði ofbeldi og þeirri stefnu að afmá Ísraelsríki. George W. Bush, forseti Bandaríkj- anna, sagði í gær á fréttamannafundi, að hann vildi trúa því, að friðurinn væri ekki úti í Mið-Austurlöndum, vegna þess, að hann væri það, sem fólkið vildi. Ísraelar gætu þó ekki rætt við þá, sem vildu þá feiga. „Við mun- um ekki ræða við þá, sem boða of- beldi,“ sagði Bush og skoraði á Ham- as að gjörbreyta stefnu sinni. Ráðamenn í öðrum Evrópuríkjum, Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi, á Norðurlöndum og víðar, skoruðu í gær á leiðtoga Hamas-hreyfingarinn- ar að breyta stefnu sinni og afvopnast og í yfirlýsingu frá Evrópusamband- inu sagði, að það væri reiðubúið að halda áfram stuðningi við efnahags- lega uppbyggingu í Palestínu að því tilskildu, að næsta stjórn vildi ræða við Ísraela um frið. Viðbrögð Rússa við sigri Hamas voru dálítið óljós en það voru þau ekki í Íran og meðal íslamskra harðlínu- manna í arabaríkjunum. Þar var hon- um lýst sem miklum sigri í baráttunni gegn Ísrael. Stjórnvöld í arabaríkjunum sögðu heldur fátt um sigur Hamas í kosn- ingunum en þau virðast óttast, að hann geti ýtt undir íslamska harðlínu- menn annars staðar. „Munum ekki ræða við þá sem boða ofbeldi“ Reuters George W. Bush Bandaríkjaforseti á fréttamannafundinum í gær. HAGNAÐUR Kaupþings banka og Straums-Burðaráss fjárfestingar- banka nam samtals um 76 millj- örðum króna á síðasta ári og munu bankarnir greiða ríflega 16 millj- arða króna í skatta. Hagnaður Kaupþings banka var 49,3 milljarð- ar árið 2005 og hagnaður Straums- Burðaráss 26,7 milljarðar. Þetta er mesti hagnaður í sögu Kaupþings banka, og reyndar mesti hagnaður sem íslenskt fyr- irtæki hefur skilað á einu ári. Kaupþing banki greiðir samtals liðlega 11 milljarða króna í skatta vegna rekstrarársins 2005. Þar af eru skattar og tryggingagjald hér á landi á bilinu 6,5 til 7 milljarðar. Um 27 milljarða hagnaður Hagnaður Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka hf. á árinu 2005 nam um 26,7 milljörðum króna eft- ir skatta, en var um 6,7 milljarðar árið 2004. Stjórn bankans mun leggja til á aðalfundi að hluthöfum verði greiddir um 6,7 milljarðar króna í arð vegna ársins 2005 sem svarar til 25% af hagnaði og nemur 0,65 kr. á hvern hlut. Hluti arðgreiðsl- unnar verður í skráðum hlutabréf- um. Straumur-Burðarás greiðir tæp- lega 5,5 milljarða króna í skatta vegna ársins 2005 samanborið við um 1,3 milljarða á síðasta ári. | 14 Greiða 16 milljarða í skatta  KB banki og Straumur með 76 milljarða hagnað
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.