Morgunblaðið - 27.01.2006, Side 24

Morgunblaðið - 27.01.2006, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Í JANÚAR Ég vissi það nú alltaf að égmyndi á endanum fara út ímótorhjólin,“ segir BirnaMaría Björnsdóttir at- hafnakona. Áhugamál hennar eru mörg og má til að byrja með nefna útivist, sem hún stundar af krafti árið um kring, auk þess sem hún ekur um á mótorhjóli þegar veður leyfir. Hún hefur líka stundað köfun og fallhlíf- arstökk sér til dægrastyttingar. „Foreldrar mínir eru báðir í mót- orhjólunum, bróðir minn og kærastan hans líka sem og foreldrar hennar. Í kringum mig eru samtals um tíu til fimmtán manns með þennan mót- orhjólaáhuga. Ég hef þess vegna ekk- ert langt að sækja áhugann.“ Birna hjólar um á Honda Shadow, 1100 kúbika. „Þetta er svokallaður hippi,“ segir hún, „glæsilegur fákur, sem þægilegt er að „krúsa“ um á á göt- unum. Hipparnir eru fyrst og fremst lífsstíll – ekki tæki til að slá hraðamet. Þeir eru gæjalegir með miklu krómi og glansandi tönkum.“ Lét drauminn rætast í fyrra Þó að Birna sé ekki mjög gömul, rétt rúmlega þrítug, hefur hún gengið með það í maganum lengi að fá sér mótorhjól en það er ekkert langt síð- an hún lét drauminn rætast og fékk sér eitt slíkt. „Síðastliðið vor fékk ég tækifæri og greip það. Mig vantaði eiginlega bara eitthvað að gera og skellti mér í prófið. Notaði svo hvert færi sem gafst síðasta sumar til að „krúsa“ um göturnar.“ Þar sem Birna er svo nýbyrjuð í sportinu hefur hún mest hjólað í nágrenni borgarinnar, en hún stefnir á lengri ferðalög um landið næsta sumar. „Foreldrar mín- ir hafa hins farið út til Flórída á veg- um Harley Davidson-klúbbsins á Ís- landi og hjólað þar. Í sumar ætla þau að hjóla um í Skandinavíu. Ég á þetta eftir, er eiginlega ennþá bara sunnu- dags- og „í góðuveðri-hjólari“.“ Jafnréttið í nýrri mynd? Mótorhjólaeign landsmanna hefur aukist gríðarlega undanfarin ár og þeim fjölgar stöðugt sem stunda það að hjóla, að sögn Birnu. „Það hefur aukist mikið að konur taki prófið. Bæði eru það ungar konur og jafnvel fullorðnar sem hafa í mörg ár setið aftan á hjá manninum sínum en eru núna búnar að taka prófið og vilja fá að hjóla sjálfar.“ Kannski er jafnrétt- isbaráttan að skila sér þar á óvæntan hátt. „Það sem maður fær út úr því að hjóla er kannski spenna og töff- araskapur í senn,“ segir Birna skelm- islega. Lærði neðansjávar- ljósmyndun í Miami Nú eru hjólin og útivistin aðal- áhugamál Birnu en ekki er langt síð- an köfunin var mál málanna. „Ég bjó í Bandaríkjunum í mörg ár og þegar ég bjó í Miami lærði ég köf- un og stundaði hana mikið allan vet- urinn,“ segir Birna María. „Ég fór m.a. í stórkostlega ferð til Bonaire, sem kölluð er Paradís kafaranna.“ Bonaire er eyja í Karíbahafinu, rétt hjá Venesúela. „Þar kafaði ég um tíma og lærði m.a. að taka neðansjáv- arljósmyndir og hitti fyrir ótrúlegar lífverur, t.d. sæhesta, risaskötur og sæslöngur. Ég hef ekki enn lagt fyrir mig köfun hér heima á Fróni en það kemur sjálfsagt að því einhvern tím- ann. Í dag uni ég mér þó hvergi betur en á fjöllum í íslenskri náttúru eða á nýbónuðu hjólinu í góðum gír,“ segir hin hressa Birna María að lokum.  ÁHUGAMÁLIÐ | Spenna og töffaraskapur í senn Fékk mótorhjóladelluna frá mömmu og pabba Morgunblaðið/Sverrir Birna María Björnsdóttir hjólar um á Honda Shadow, 1100 kúbika. Ljósmynd/Birna María Björnsdóttir Birna María hefur áhuga á köfun og hefur lært neðansjávarljósmyndun. Jesústyttunni á myndinni til hægri var sökkt undan ströndum Flórída fyrir mörgum árum og þar er vinsæll köfunarstaður. Jafnvel eru dæmi um að pör láti gefa sig saman við styttuna. Hinar neðansjávarmyndirnar eru teknar við Bonaire. Eftir Sigrúnu Ásmundar sia@mbl.is NÝ RANNSÓKN við skoska háskól- ann í Paisley bendir til þess að kynlíf sé besti undirbúningurinn fyrir ræðuhöld. Sálfræðingurinn Stuart Brody, sem vann rannsóknina, segir kynlíf losa um streitu en aðeins ef um samfarir er að ræða. Annars konar kynlíf sé ekki streitulosandi. Brody mældi blóðþrýsting hjá fólki við streitumyndandi aðstæður. 24 konur og 22 karlar héldu þá dag- bók í tvær vikur yfir hvers konar kynlíf sitt. Að því loknu var streitu- próf lagt fyrir fólkið, sem fólst meðal annars í því að ávarpa fjölda manns og að reikna í huganum en upphátt. Þeir þátttakenda sem höfðu sam- farir virtust afslappaðri en aðrir og blóðþrýstingur þeirra lækkaði hrað- ar en hjá þeim sem stunduðu sjálfsfróun. Þeir, sem hvorki stund- uðu sjálfsfróun né nutu hvers konar kynlífs, voru með hæstan blóðþrýst- ing við álagsaðstæður. Örvun ólíkra tauga Brody segir þessar niðurstöður einnig eiga við þegar persónuleiki fólks sé tekinn til greina. Sagði hann við fréttavef BBC að þessi róandi áhrif tengdust líklega örvun fjölda ólíkra tauga við kynmök, sem ekki væru örvaðar við annars konar kyn- lífsiðkun. Líklega væri það tengt þróun mannsins að samfarir hefðu margvísleg jákvæð áhrif á hegðun manna. Þeim mun hærri tíðni kynlífs þeim mun meiri væri ávinningurinn. Peter Bull, prófessor í félags- og stjórnmálasálfræði við háskólann í York á Englandi, segir þó ýmsar aðrar leiðir til þess að undirbúa ræðuhöld og líklegri til góðs árang- urs. „Það er líklega betra að hugsa um hvað maður ætli að segja og und- irbúa það vel, frekar en að hafa sam- farir kvöldið fyrir ræðuna,“ segir Bull. Fréttavefur BBC greinir frá þessu.  RANNSÓKN Kynlíf fyrir ræðuhöldin Reuters Þeir þátttakenda sem höfðu haft samfarir virtust mun afslappaðri en aðrir og blóðþrýstingur hafði lækkað töluvert. SPERGILKÁLSSÚPAN með osti á matseðli Ruby Tuesday þykir sérlega góð. Grunn- urinn er ættaður frá höf- uðstöðvum Ruby Tuesday í Bandaríkjunum en Haukur Hermannsson, matreiðslu- maður á Ruby Tuesday, hefur farið höndum um íslensku út- gáfuna og aðlagað. „Banda- ríkjamenn vilja mun þykkari súpur en við eigum að venjast þannig að ég þynnti hana,“ segir hann. Súpan nýtur mikilla vin- sælda og er oftast að finna á matseðlinum og hér kemur uppskriftin: Spergilkálssúpa með osti 100 g laukur, fínt skorinn 100 g sellerí, fínt skorið 100 g gulrætur fínt skornar 550 g spergilkál (broccoli) í hæfilega stóra bita 900 g ostasósa (tilbúin í dósum) 1 tsk. hvítur pipar 1 msk. tabasco 1 msk. Worchestersósa 0,5 l rjómi 3,5 l vatn Til að þykkja súpuna þarf 200 g smjörlíki og 70 g hveiti í smjörbollu en einnig má nota sósujafnara. rjómi eftir smekk Laukur, sellerí, gulrætur og vatn sett í pott og soðið í 3–5 mínútur. Ostasósu bætt út í og hrært saman við. Athugið vel að það verður að hræra stöðugt í pottinum. Tabasco, worchester og pipar bætt út í ásamt sperg- ilkálinu. Suðan látin koma upp og smjörbollunni bætt út í. Að lokum er rjóma bætt í súpuna.  MATARKISTAN Firnagóð spergil- kálssúpa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.