Morgunblaðið - 27.01.2006, Side 22

Morgunblaðið - 27.01.2006, Side 22
22 FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR AKUREYRI JAKOB Björnsson, formaður bæjarráðs Akureyr- ar og oddviti Framsóknarflokksins í bæjarstjórn, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs við sveitastjórnarkosningarnar í vor. Hann var fyrst kjörinn í bæjarstjórn 1990, hefur setið þar í 16 ár samfleytt og gegndi starfi bæjarstjóra frá 1994 til 1998. Þrír framsóknarmenn eru í bæjarstjórn þetta kjörtímabil og mynda meirihluta ásamt fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Auk Jakobs eru það Jóhannes Gunnar Bjarnason og Gerður Jónsdóttir. Áður en Jakob greindi frá því að hann hætti í vor höfðu Jó- hannes og Gerður bæði boðið sig fram í 1.-2. sæti listans, þannig að gera má ráð fyrir að þau keppi um forystusætið. Þó er rétt að geta þess að hægt er að tilkynna þátttöku í prófkjöri flokksins til 1. febr- úar. „Ég velti þessu heilmikið fyrir mér. Það togaðist á í mér hvort ég ætti að hætta eða halda áfram, en nú þegar niðurstaðan liggur fyrir er ég sáttur við hana,“ sagði Jakob í samtali við Morgunblaðið í gær. „Auðvitað var ljóst að sá dagur kæmi að ég hætti, maður yngist ekki með árunum og ég hafði einsett mér að vera ekki eins og maður sem boðið er til veislu og dvelur svo lengi að allir bíði eftir að hann fari. Jafnvel að allir séu komnir í náttfötin en hann sitji sem fastast!“ Jakob segir margs að minnast frá árunum 16 en bæjarstjóratíðin komi fyrst upp í hugann þegar spurt er. Þá var t.d. harkalega tekist á um það hvort bæjarfélagið seldi hlut sinn í Útgerðarfélagi Akureyringa eður ei, og þá hverjum. „Það urðu gíf- urleg átök um þetta. Andstæðan var mikil, í okkar hópi sem annars staðar, en ég tel okkur hafa gert rétt og sé ekki eftir sölunni. Við fylgdum þarna þró- un sem varð í sjávarútvegi og reyndar atvinnulífi almennt. Það er ekki hlutverk bæjarfélaga að halda uppi svona atvinnurekstri,“ sagði Jakob Björnsson. Sjö hafa þegar gefið kost á sér í prófkjörinu; Jó- hannes Gunnar Bjarnason, íþróttakennari og bæj- arfulltrúi, sem gefur kost á sér í 1.–2. sæti, Gerður Jónsdóttir bæjarfulltrúi, gefur kost á sér í 1.–2. sæti, Guðlaug Kristinsdóttir framkvæmda- stjóri, gefur kost á sér í 2.–4. sæti, Þorsteinn Pét- ursson lögreglumaður, sem gefur kost á sér í 3.–5. sæti, Geir Hólmarsson, nemi í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, gefur kost á sér í 3.–5. sæti, Jón Vigfús Guðjónsson sem gefur kost á sér í 4.–6. og Örlygur Þór Helgason íþróttafræðingur, gefur kost á sér 3.–6. sæti. Oddviti framsóknarmanna dregur sig í hlé eftir 16 ára setu í bæjarstjórn Akureyrar Jakob Björnsson hættir í vor Jakob Björnsson EKKI amalegt að vinna úti við þessa góðviðrisdaga sem kætt hafa menn liðna daga. Og útlit fyrir að það verði bara bærilegt áfram. Þessi tveir nutu þeirra for- réttinda að sinna störfum undir beru lofti í gærdag, unnu af kappi við grjóthleðslu á flötinni neðan Samkomuhússins, en þar er verið að útbúa bílastæði. Þau munu ef- laust, ekki síður er góða veðrið, kæta gesti leikhússins enda þau stæði sem boðið hefur verið upp á undanfarin ár af skornum skammti.Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Grjóthleðsla í góðu veðri Á LIÐNU ári voru urðuð 16.600 tonn af úrgangi á urðunarstað Sorp- eyðingar Eyjafjarðar bs. á Glerár- dal. Árið á undan voru þar urðuð 17.500 tonn, þannig að um 5% minnkun er að ræða milli ára. Mesta magn til urðunar á einu ári á Glerárdal var árið 2002, 21.500 tonn. Síðan hefur dregið úr henni á hverju ári, samtals um 23%. „Þetta er í samræmi við áætlanir um að draga úr urðun úrgangs,“ segir Guðmundur Guðlaugsson, framkvæmdastjóri Sorpeyðingar Eyjafjarðar. „Menn eru ánægðir með þennan árangur, þetta er mjög gott.“ Meginskýringin á þessari þróun er að heimili, stofnanir og fyrirtæki í Eyjafirði skila sífellt meiru af úr- gangi sínum til endurvinnslu. Fólk skili í auknum mæli fernum og dag- blöðum inn til endurvinnslu, „það hjálpast allt að við að draga úr því magni sorps sem fer til urðunar“. Þá segir Guðmundur að þó nokk- uð magn úrgangs fari til jarðgerðar á vegum fyrirtækisins Tætingar, magnið nam um 3.200 tonnum í fyrra, einkum slátur- og fiskúrgang- ur sem og hrossatað og gróðurúr- gangur. Sorphirðugjald á Akureyri er nú 9.400 krónur, hækkað úr 8.500 krón- um og segir Guðmundur að með hækkuninni hafi menn nálgast nokkuð raunkostnað við sorphirðu í bænum. Sífellt minna urðað af sorpi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.