Morgunblaðið - 27.01.2006, Page 41

Morgunblaðið - 27.01.2006, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 2006 41 MINNINGAR ✝ Sesselja Ol-geirsdóttir fæddist í Bolungar- vík 16. janúar 1922. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Ísafirði 21. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Rannveig Bene- diktsdóttir og Ol- geir Gunnar Jóns- son. Bróðir sammæðra var Garðar Eymunds- son, lést af slysför- um 1978. Systkini samfeðra eru Brynhildur, búsett í Reykjavík, og Rafn Franklin, látinn. Sesselja giftist 28. maí 1944 Sigurði Helgasyni vélstjóra, f. 20. nóvember 1917. Börn þeirra eru: 1) Friðrik Sigurðsson, búsettur á Akranesi, kvæntur Sigríði Maríu Gunnarsdóttur og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. 2) Rann- veig Sigurðardóttir, búsett í Reykjavík, gift Hólmgeiri Hregg- viðssyni og eiga þau þrjár dætur og þrjú barnabörn. 3) Páll Helgi, d. 1960. 4) Pálína Sigurðar- dóttir, búsett í Nes- kaupstað, gift Guðna Geirssyni og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn. Sesselja ólst upp í Bolungarvík og Ísa- firði. Eftir að hún gifti sig bjó hún á Ísafirði og var ein af þessum duglegu vestfirsku sjómannskon- um. Hún starfaði við rækju- vinnslu, í frystihúsi, leikskóla og sem matráðskona á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Sesselja starfaði mikið fyrir Kvenfélagið Hlíf og var þar heiðursfélagi. Útför Sesselju fer fram frá Ísa- fjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku besta mamma mín, nú ert þú farin frá okkur og komin til Palla. Líf þitt hefur ekki alltaf verið dans á rósum. 15 ára gömul misstir þú mömmu þína og varst nánast á eigin vegum eftir það. Þá kom dugnaður þinn og styrkur í ljós. Síðan hófst hamingjutímabil þeg- ar þú kynntist honum pabba, sem elskaði þig og dáði og við tók líf hinnar vestfirsku sjómannskonu. Baráttan var oft hörð og efnin ekki mikil. Dugnaður þinn var einstakur hvort sem var í frystihúsinu, á sjúkrahúsinu eða heima. Aldrei féll þér verk úr hendi, prjónaðir allt á okkur og marga fleiri. Þú varst al- gjör listamaður í höndunum. Þið urðuð fyrir þeirri sáru sorg að missa Palla okkar sem lést á þriðja ári. Við systkinin fengum gott uppeldi, okkur var uppálagt að standa við okkar og treysta öðrum og trúa á guð. Mamma mín það er ótrúlegt að hugsa til þess sem þú þessi litla og netta kona fékkst áorkað um ævina og aldrei kvartaðir þú og alltaf sástu það jákvæða í fari fólks en þoldir ekki illt umtal og illdeilur. Nú er pabbi einn eftir á Hlíf og ég lofa þér að hugsa vel um pabba. Hann er svo duglegur og mikið hörkutól. Elsku mamma mín ég þakka þér allt það góða sem þú gafst mér og mínum. Guð geymi þig, þín Rannveig. Þegar ég nú munda pennann minn í þeim tilgangi að rita minn- ingargrein um kæra tengdamóður mína verður mér hugsað til þess að væri ég jafn ritfær og hún var í hannyrðum gæti ég fyllt allt blaðið og meira til af fallegum orðum. Þvílíkur snillingur sem hún var í höndunum. Þess bera vitni peys- urnar, sokkarnir og öll mjúku barnateppin sem hún heklaði og prjónaði um dagana. Doffí, eins og hún var alltaf köll- uð, lét nú ekki fara mikið fyrir sér í daglegu lífi. Hún fór sér hægt. Þegar hún brá undir sig betri fæt- inum og var á ferðinni þá var hlaupið frekar en gengið. Kraftur hennar var engum líkur þegar hún var upp á sitt besta. Gilti þá einu hvort hún var að elda mat með Gunnu vinkonu sinni á gamla sjúkrahúsinu eða stóð við borðið sitt í Íshúsfélagi Ísfirðinga. Frásagnarhæfileikar hennar voru alveg sér á parti. Hún mundi tímana tvenna og í huga hennar var allt skýrt og skemmtilegt. Ætt- fræði vafðist ekki fyrir henni og aldrei hafði hún kynnst neinum nema ljúfmennum. Í það minnsta hafði hún aldrei neitt ljótt að muna úr fari annarra. Allir voru dýrðleg- ir eins og hún gjarnan sló fram og alltaf var lífið dásamlegt að hennar mati. Pjöttuð var tengdamamma alltaf. Ávallt svo fín til fara. Hún átti lit- ríkar, fallegar blússur og kjólarnir ávallt með fallegum hnöppum og nælum. Nákvæmnin við fötin var líka mikil. Ermarnar urðu að vera réttar. Ekki of stuttar og ekki of síðar. Nákvæmlega réttar. Elsku besta tengdamamma. Ég á þér margt og mikið að þakka sem gaman væri að geta um. Samræður okkar tveggja eftir góðan mat eða kaffi eru mér skemmtilegar og verðmætar minn- ingar og þeim mun ég aldrei gleyma. Við Iddi, börnin okkar og barnabörnin þökkum þér fyrir allt. Góða nótt elsku mamma, tengda- mamma, amma og langamma. Um leið og við þökkum þér fyrir allt vonum við að afi verði duglegur. Nú hverfur sól í haf og húmið kemur skjótt. Ég lofa góðan Guð, sem gefur dag og nótt, minn vökudag, minn draum og nótt. (Sigurbjörn Einarsson.) Sigríður María (Sigga Maja). Elsku amma, þegar við systkinin settumst niður til þess að rifja upp minningar um þig kom margt upp í hugann. Sérstaklega hversu gott það var að koma heim til þín og afa. Það var alltaf kökuilmur úr eldhúsinu og það besta sem við fengum var ísköld mjólk og lagkak- an þín fræga en hún var orðin svo fræg að barnabarnabörnin pöntuðu hana á milli landa. Nafnið„prjónaamma“ varð til hjá yngri kynslóð fjölskyldunnar og það átti bara mjög vel við þig því þú varst alltaf með prjóna í hönd- unum. Við eigum öll ótrúlega fal- legar flíkur sem þú hefur prjónað fyrir okkur í gegnum tíðina og ber þá helst að nefna fallegu ullarpeys- urnar okkar. Þær munu hlýja okkur um ókomna tíð og mun hugur okkar alltaf leita til þín þegar við klæð- umst þeim. Elsku amma. Eftir stendur ótæmandi brunnur af góðum minn- ingum um þig og kveðjum við þig með söknuði. Þín barnabörn, Helga Kristín, Gunnar Hólm, Sigurður Friðgeir og fjölskyldur. SESSELJA OLGEIRSDÓTTIR Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, KRISTBJARGAR ÞÓRÐARDÓTTUR, Tindaflöt 3, Akranesi. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Sjúkrahúss Akraness fyrir góða umönnun. Hilmar Njáll Þórarinsson, Þórður H. Hilmarsson, Hjördís Kristinsdóttir, Valgerður Hilmarsdóttir, Elvar Holm Ríkarðsson og ömmubörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, HJÁLMFRÍÐUR S. GUÐMUNDSDÓTTIR, Silfurgötu 8a, Ísafirði, sem andaðist á Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar miðvikudaginn 19. janúar, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 28. janúar kl. 14.00. Guðjón Ebbi Sigtryggsson, Halldóra Þorláksdóttir, Alda Sigtryggsdóttir, Birgir Hermannsson, Helga Sigurgeirsdóttir, Anna Sigtryggsdóttir, Tryggvi Sigtryggsson, Guðrún Ásbjörg Stefánsdóttir, Hólmfríður Sigtryggsdóttir, Árni Sigtryggsson, Guðbjörg Skúladóttir, Jón Björn Sigtryggsson, Magdalena Sirrý Þórisdóttir, Hreiðar Sigtryggsson, Salóme Anna Þórisdóttir, Katrín Sigtryggsdóttir Steingrímur Jónsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, VALGERÐUR EINARSDÓTTIR, áður Núpi, Vestur-Eyjafjöllum, verður jarðsungin frá Ásólfsskálakirkju laugar- daginn 28. janúar kl. 14.00. Eygló Ragnarsdóttir, Lárus Björnsson, Sigrún Jensen, Klaus Jensen, Einar Ragnarsson, Guðmundur Ragnarsson, Margrét Einarsdóttir, Ragnar Valur Ragnarsson, Ingibjörg Hrönn Guðmundsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDU INGIMARS frá Þórshöfn. Soffía Jónsdóttir, María Jónsdóttir, Hallgrímur Ingólfsson, Arngrímur Jónsson, Hildur Ingvarsdóttir, Eyþór Atli Jónsson, Svala Sævarsdóttir, Víkingur Jónsson, Sigríður Harpa Jóhannesdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, MATTHEA KATRÍN PÉTURSDÓTTIR, Álfaborgum 9, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju mánudag- inn 30. janúar kl. 13.00. Snæbjörn Ólafsson, Ágústa Sigurðardóttir, Lýður Ásgeirsson, Hilmir Freyr Sigurðsson, Svanhildur Jóna Erlingsdóttir, Eva Björg Sigurðardóttir, Aðalsteinn Jóhannsson, Auður Pétursdóttir, Haraldur Finnsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, SIGRÚN STEFÁNSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Siglufjarðarkirkju laugar- daginn 28. janúar kl. 14:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Heil- brigðisstofnun Siglufjarðar. Anna Vignis, Kristrún Ástvaldsdóttir, Ólafur Pétursson, ömmu-, lang- og langalangömmubörn. Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður og ömmu, STEINVARAR KRISTÓFERSDÓTTUR, Vitastíg 8a, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa sóknarnefndum Útskála- og Hvalsnessafnaða. Barði Guðmundsson, Elísabet Guðmundsdóttir, Orhan Karaali, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Ingólfur H. Eyfells og barnabörn. Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista Steinsmiðjan MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík sími 587 1960 • www.mosaik.is 10-50% afsláttur TILBOÐ á legsteinum, fylgihlutum og uppsetningu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.