Morgunblaðið - 04.05.2006, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Tilkynningar
Auglýsing frá
yfirkjörstjórn
Seltjarnarnesbæjar
Framboðsfrestur til bæjarstjórnarkosninga á
Seltjarnarnesi, sem fram skulu fara laugardag-
inn 27. maí 2006, rennur út laugardaginn
6. maí 2006 kl. 12.00 á hádegi.
Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum
þann dag milli kl. 11.00 og 12.00 á bæjarskrif-
stofu Seltjarnarnesbæjar, II. hæð, á Austur-
strönd 2, Seltjarnarnesi.
F.h. yfirkjörstjórnar
Seltjarnarnesbæjar,
Halldór Árnason.
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg-
ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum,
er hér með auglýst tillaga að breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík.
Kringlumýrarbraut/Suðurlandsbraut.
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi við
gatnamót Kringlumýrarbrautar og Suður-
landsbrautar vegna uppsetningar flettiskiltis.
Tillagan gerir ráð fyrir sett verði upp flettiskilti
á grasflöt norðan Suðurlandsbrautar og
austan Kringlumýrarbrautar. Ekki er gerð
breyting á göngustígum né öðru á svæðinu.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur-
borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
8:20 – 16:15, frá 4. maí til og með 15. júní
2006. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu
sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að
kynna sér tillöguna. Ábendingum og athuga-
semdum við tillöguna skal skila skriflega eða
á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og
byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi
síðar en 15. júní 2006.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 4. maí 2006
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Aðalfundur Nýrrar dögunar verður
í Bústaðakirkju, neðri hæð,
í kvöld 4. maí kl. 20-22.
Venjuleg aðalfundarstörf. Allir velkomnir!
Aðalfundur
Til íbúa í Grafarholti
Aðalsafnaðarfundur Grafarholtssóknar í
Reykjavík verður haldinn í salnum á jarðhæð
í Þórðarsveigi 3 þriðjudagskvöldið 9. maí nk.
kl. 20:00.
Á fundinum verða hefðbundin aðalfundarstörf
en sérstaklega fjallað um hugmyndir og áform
um kirkjubyggingu í Grafarholti.
Hvetjum íbúa hinnar ungu sóknar í Grafarholti
til að mæta og taka þátt í mótun hverfisins okkar.
Sóknarnefndin.
Mat á umhverfisáhrifum -
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um
matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati
á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat
á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b.
Breytingar á rekstri fiskeldisstöðvarinnar
Hólalax hf. í Hjaltadal, Sveitarfélaginu
Skagafirði.
Framkvæmdir við Hringveg í Hrútafirði,
Bæjarhreppi og Húnaþingi vestra, Vatns-
veita á Vatnsendaheiði, Kópavogi.
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær er einnig
að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar:
www.skipulag.is .
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 6. júní
2006.
Skipulagsstofnun.
Auglýsing
um breytingu á aðalskipulagi Snæfells-
bæjar 1995-2015
Með vísan í 18. grein skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 er auglýst eftir athugasemdum
við breytingu á Aðalskipulagi Snæfellsbæjar
1995-2015 vatnsverndarsvæði sunnan Rifs,
stækkun þéttbýlis á Rifi.
Breytingartillagan er tvíþætt og felst í eftirfar-
andi:
1. Afmörkun vatnsverndarsvæðis og skilgrein-
ingu vatnsverndar í Skarðshrauni er breytt
á þann veg að í stað þess að skilgreina
svæðið sem fjarsvæði vatnsverndar eru skil-
greind þrjú ný brunnsvæði auk grannsvæðis
og fjarsvæðis. Lega vatnslagnar frá vatns-
bólunum til Rifs er sýnd á uppdrætti og tekið
fram að helgunarsvæði lagnarinnar sé 2 m
til beggja átta.
2. Þéttbýlisafmörkun Rifs á sveitarfélagsupp-
drætti er stækkuð.
Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrif-
stofu Snæfellsbæjar, Snæfellsási 2, frá og með
4. maí nk. til 1. júní 2006.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
er hér með gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við tillöguna. Frestur til þess að skila
inn athugasemdum er til 15. júní 2006.
Athugasemdir ef einhverjar eru skulu vera
skriflegar og berast bæjarskrifstofu Snæfells-
bæjar, Snæfellsási 2. Hver sá sem ekki gerir
athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest
telst samþykkur henni.
Smári Björnsson,
skipulags- og byggingarfull-
trúi Snæfellsbæjar.
Raðauglýsingar 569 1100
Auglýsing
um breytingu á aðalskipulagi Snæfells-
bæjar 1995-2015
Með vísan í 18. grein skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 er auglýst eftir athugasemdum
við breytingu á Aðalskipulagi Snæfellsbæjar
1995-2015 Hellissandur/Rif, hafnarsvæði og
íbúðarsvæði á Rifi.
Breytingartillagan er tvíþætt og felst annars
vegar í því að svæðið sem er skilgreint sem
iðnaðarsvæði (skv. gildandi aðalskipulagi) við
höfnina á Rifi er breytt í hafnarsvæði auk þess
sem svæðið er stækkað og nær nú einnig til
svæðis sem áður var skilgreint til síðari nota
sunnan hafnar, hins vegar er íbúðarsvæði við
Háarif stækkað til vesturs.
Breytingartillagan verður til sýnis á bæjarskrif-
stofu Snæfellsbæjar, Snæfellsási 2, frá og með
4. maí nk. til 1. júní 2006.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
er hér með gefinn kostur á að gera athuga-
semdir við tillöguna. Frestur til þess að skila
inn athugasemdum er til 15. júní 2006.
Athugasemdir ef einhverjar eru skulu vera
skriflegar og berast bæjarskrifstofu Snæfells-
bæjar, Snæfellsási 2. Hver sá sem ekki gerir
athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest
telst samþykkur henni.
Smári Björnsson,
skipulags- og byggingar-
fulltrúi í Snæfellsbæ.
Félagslíf
I.O.O.F. 11 187548½
Í kvöld kl. 20.00
Kvöldvaka. Umsjón Anne Marie
og Harold Reinholdtsen. Veiting-
ar og happdrætti.
I.O.O.F. 5 187548
Fimmtudagur 4. maí 2006
Í kvöld kl. 20:00 munum við
fagna opnun nýrrar félagsmið-
stöðvar í Stangarhyl 3, Reykja-
vík. Söngur og vitnisburður.
Allir hjartanlega velkomnir!
ATH. NÝ STAÐSETNING Í
STANGARHYL 3, 110 RVÍK.
www.samhjalp.is
VEITINGAHÚSIÐ La
Primavera í Austurstræti
bryddar upp á þeirri ný-
breytni að bjóða upp á djass
á fimmtudagskvöldum í maí.
Gestum veitingahússins er
boðið upp á fjögurra rétta
máltíð og jass í samstarfi við
vínframleiðandann Castello
Banfi. Í kvöld spila Björn
Thoroddsen á gítar, Guð-
mundur Steingrímsson á
trommur og Jón Rafnsson á
bassa. Næsta fimmtudag
syngur Kristjana Stef-
ánsdóttir ásamt félögum,
þarnæst spilar Sigurður
Flosason og loks Óskar Guð-
jónsson.
Djass á La
Primavera
Morgunblaðið/ÞÖK
HALDIÐ verður upp á megr-
unarlausa daginn (Internatio-
nal No Diet Day) hér á landi
6. maí, en það er í fyrsta skipti
sem það er gert. Þessi dagur
er alþjóðlegur baráttudagur
gegn megrun, átröskunum og
fordómum í garð feitra. Í til-
efni dagsins verður boðið upp
á dagskrá í Öskju, náttúru-
fræðahúsi Háskóla Íslands
(bak við Norræna húsið) frá
kl. 13–16 laugardaginn 6. maí.
Fluttir verða fyrirlestrar
um megrunarþráhyggju sam-
félagsins, hið raunverulega
samband þyngdar og heilsu
og rætt um farsælar leiðir til
að hlúa að líkama og sál án
áherslu á líkamsþyngd. Auk
þess verður heimildarmyndin
„Dieting: At war with our
bodies“ frumsýnd, sem veitir
nýja og fróðlega sýn á hina ei-
lífu baráttu okkar við fitu. Að-
gangur er ókeypis. Nánari
dagskrá er að finna á
www.likamsvirding.is.
Fyrsti megrunarlausi dagurinn
Nafn féll niður
Í FORMÁLA minningar-
greina um Pál Gísla Stef-
ánsson á bls. 24 í Morg-
unblaðinu þriðjudaginn 2. maí
féll niður nafn uppeldissystur
hans, Báru Sæmundsdóttur.
Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
LEIÐRÉTT