Morgunblaðið - 23.10.2006, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.10.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 2006 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Peysur úr ull og silki Mánudagur 23. okt. Orkuhleifur m. rótargrænm.mús Þriðjudagur 24. okt. Sítrónukarrý og spínatbuff Miðvikudagur 25. okt. Brokkolirúlla m. heitri sósu Fimmtudagur 26. okt. Pottréttur í appelsínusósu og buff Föstudagur 27. okt. Grænmetislasagna m. pestó Helgin 28.-29. okt. Marokkóskur pottur og buff Mér finnst... ... að lyf, eins og öll önnur heilbrigðis- þjónusta eigi að vera án virðisaukaskatts. Með því getur lyfjaverð til almennings lækkað umtalsvert. Það yrði raunveruleg kjarabót, ekki síst fyrir þá sem þjást af langvarandi sjúkdómum. www.astamoller.is 6Jóhann PállSímonarsonKjósum sjómann á þingí prófkjöri sjálfstæðismannaí Reykjavík Netfang: stakkhamrarv@simnet.is - sími 863 2094 Kjósið Jóhann Pál í 6. sæti Nýbýlavegi 12, Kóp. Sími 554 4433. Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16. Úlpur og kápur Dögg Pálsdóttir 4.í sætiðwww.dogg.isPrófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík, 27. og 28. október 2006 Opinn kynningarfundur Stuðningsmenn Daggar Pálsdóttur boða til opins kynningarfundar á kosningaskrifstofunni með stjórnum og félags- mönnum í hverfafélögunum í Reykjavík mánudaginn 23. október kl. 17:30. Á fundinum mun Dögg kynna áherslumál sín og svara fyrirspurnum. Allir velkomnir. KOSNINGASKRIFSTOFA Laugavegi 170, 2. hæð opnunartími virka daga kl. 16-22 og um helgar frá kl. 12-18 dogg@dogg.is sími 517-8388 EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt á stjórnarfundi Sam- bands ungra sjálfstæðismanna sl. þriðjudag: „Stjórn Sambands ungra sjálf- stæðismanna gagnrýnir harðlega þá miklu útgjaldaaukningu sem fram kemur í nýframkomnu fjár- lagafrumvarpi. Þrátt fyrir að staða ríkissjóðs hafi sjaldan verið sterk- ari, er áfram mikilvægt að gætt sé fyllsta aðhalds í rekstri ríkissjóðs, ekki síst með tilliti til þess að tryggja stöðugleika í efnahagslíf- inu. SUS skorar á fjárveitingar- valdið að koma í veg fyrir að til- lögur um aukin útgjöld nái fram að ganga.“ Skattalækkun fagnað „SUS fagnar boðaðri lækkun á virðisaukaskatti og þeirri fyrirætl- an ríkisstjórnarinnar að draga úr innflutningshöftum með lækkun á vörugjöldum og tollum. Hér er stigið mikilvægt skref í rétt átt, þótt fyllsta ástæða hefði verið til að afnema slík innflutningshöft með öllu. SUS harmar þá tilhneigingu til neyslustýringar sem fram kem- ur í mismunandi vörugjöldum og skattþrepum eftir vörutegundum. SUS harmar að frestun á fram- kvæmdum ríkisvaldsins skuli hafa verið aflétt.“ SUS gagn- rýnir útgjalda- aukningu Í NÓVEMBER og desember nk. mun Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands bjóða í fyrsta skipti sex vikna námskeið um stjórnsýslulögin og stjórnsýslu- rétt, sem sérstaklega er ætlað öllum stjórnendum og starfsmönnum sveitarfélaga, sem koma að meðferð mála og undirbúningi ákvarðana. Áður hefur námskeiðið verið haldið þrisvar fyrir bæði starfsmenn ríkis og sveitarfélaga, en vegna sérstakra óska er það haldið nú fyrir sveit- arstjórnarstigið. Námskeiðið er haldið í samstarfi við þjónustu- og rekstrarsvið Reykjavíkurborgar og er hluti þátttakenda þaðan. Þótt námskeiðið sé fyrst og fremst ætlað ólöglærðum, getur það nýst lögfræðingum til upprifjunar. Nemendur hlýða á fyrirlestra, taka þátt í umræðum, lesa kennslurit o.fl. Umsjónarmaður er Páll Hreins- son, lagaprófessor við HÍ. Kennarar auk hans verða Róbert R. Spanó, dósent við lagadeild HÍ, Trausti Fannar Valsson, cand. jur., stunda- kennari við HÍ og doktorsnemi í sveitarstjórnarrétti við lagadeild Háskóla Íslands, og Tryggvi Gunn- arsson, umboðsmaður Alþingis. Kennt verður í 36 klukkustundir, þriðjudaga og föstudaga kl. 13.15– 16. Námskeiðið hefst 3. nóvember og stendur til 12. desember. Þátt- tökugjald er kr. 41.000. Helstu lög sem kennd verða eru: a) Stjórn- sýslulög nr. 37/1993. b) Upplýsinga- lög nr. 50/1996. c) Lög nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð per- sónuupplýsinga. d) Lög nr. 21/1993 um upplýsingamiðlun og aðgang upplýsingum um umhverfismál. e) Óskráðar meginreglur stjórnsýslu- réttarins. Skráning fer fram til og með 31. október á netinu: http://www.stjorn- syslustofnun.hi.is/page/stjornsyslu- rettur Allar nánari upplýsingar veitir Margrét S. Björnsdóttir í síma 525 4254 eða í tölvupósti: msb@hi.is Stjórnsýsluréttur og stjórnsýsla sveitarfélaga Páll Hreinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.