Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 31.12.2006, Blaðsíða 72
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 365. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: auglysingar@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Yfirleitt hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Él eða snjókoma norðantil en annars stöku él. Kólnandi veður. » 8 Heitast Kaldast 4°C 1°C HAUKUR Harðarson, sveitarforingi hjá Hjálparsveit skáta í Reykjavík, segir allt útlit fyrir góða sölu á flugeldum í ár. „Flugeldarnir eru seldir á fjórum dögum milli jóla og nýárs og er það okkar reynsla að langstærstur hluti selst á seinni dögunum tveimur. Gerum við ráð fyrir að á fimmtudag og föstudag höfum við selt um einn tíunda af heildarsölu ársins.“ Þrjú slys hafa orðið á fólki af völdum flug- elda það sem af er en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er ekkert þeirra alvarlegt. Herdís Storgaard hjá Forvarnarhúsi Sjóvár segir langalgengast að drengir á aldrinum 8– 16 ára verði fyrir slysum af þessu tagi, að- allega eftir að þeir hafa verið að fikta í skot- eldum og taka þá í sundur. Herdís varar við því að börn eigi það til að safna flugeldum og sprengja löngu eftir að löglegu skot- eldatímabili sé lokið. Slysatíminn vari allt fram í miðjan janúar en um 20 alvarleg slys af þessu tagi verði að jafnaði á ári. Morgunblaðið/Golli Útlit fyrir góða sölu flugelda í ár EKKI eru líkur á að önnur stór- virkjun á borð við Kárahnjúka- virkjun rísi hér á landi næstu árin og kannski aldrei, að mati Geirs H. Haarde, forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins. Þetta kemur fram í áramótagrein hans í Morgunblaðinu í dag. Geir segir þar m.a. að fram- kvæmdirnar við virkjunina og nýtt álver á Reyðarfirði hafi haft mikil og jákvæð áhrif á mannlíf og atvinnuástand á Austurlandi og muni gera um langa framtíð. Þær hafi einnig ýtt undir hagvöxt í landinu. Útflutningur frá álverinu muni skjótt vega upp á móti þeim neikvæðu áhrifum á viðskiptajöfn- uð sem innflutningur vegna fram- kvæmdanna hefur haft síðustu ár. Geir nefnir að deilur um þessar framkvæmdir hafi verið miklar. Þýðingarlaust sé að halda þeim áfram því mannvirkin séu risin. Mikilvægt sé að draga af þeim lærdóm fyrir framtíðina. Þrátt fyrir litlar líkur á að önnur stórvirkjun á borð við Kárahnjúkavirkjun rísi telur Geir að það væri glapræði að segja þar með skilið við þá stefnu að nýta orkulindir þjóðarinnar til að bæta lífskjörin í landinu. Geir fjallar einnig um skatta- mál og segir að lækkun skattlagn- ingar á matvæli og fleira muni leiða til verulegrar lækkunar á neysluverðsvísitölu og auka kaup- mátt heimilanna. Þá lækki tekju- skattur um eitt prósent um ára- mótin og einnig verður persónu- afsláttur aukinn. Geir rifjar upp að ákveðið hafi verið eftir samráð við aðila vinnumarkaðarins að auka persónuafslátt meira en áður var ráðgert og lækka tekjuskatt um eitt prósent í stað tveggja. „Viðbótarlækkun tekjuskatts um eitt prósentustig bíður því næsta kjörtímabils og vonandi verður svigrúm til að gera enn betur,“ skrifar Geir. Um varnarmálin segir Geir m.a. að ákvörðun Bandaríkjamanna að hverfa héðan með herlið sitt hafi valdið vonbrigðum en þó ekki verið óvænt að öllu leyti. „Stærstu tímamótin í þessu sambandi eru þó e.t.v. þau að framvegis verða Íslendingar að gera ráð fyrir að vera sjálfir virk- ari þátttakendur í eigin öryggis- málum og verja til þeirra mun meiri fjármunum en áður. Það er ekki lengur hægt að ætla skatt- greiðendum í öðrum löndum að taka á sig allan kostnað af vörnum landsins,“ skrifar Geir. Önnur stórvirkjun ólíkleg Forsætisráðherra segir að frekari tekjuskattslækkun bíði nýs kjörtímabils Í HNOTSKURN » Framkvæmdirnar áAusturlandi hafa haft jákvæð áhrif á atvinnu og mannlíf og ýtt undir hag- vöxt í landinu. » Mikilvægt er að dragalærdóm fyrir framtíðina af deilunum um virkjunina og álverið á Reyðarfirði. Geir H. Haarde  Við áramót | 30 ÞRÁTT fyrir að ærnar á Gerðum í Flóa- hreppi hafi verið á bænum frekar af til- finningalegum ástæðum en fjárhagslegum þykir fjölskyldunni erfitt að horfa á eftir þeim. Allt féð, alls 80 ær, var skorið niður í vikunni vegna riðuveiki. „Við erum ekki fyrsti bærinn sem lendir í þessu og örugglega ekki sá síðasti,“ segir Geir Ágústsson bóndi á bænum í viðtali við Morgunblaðið í dag. Geir hefur áhyggjur af útbreiðslu rið- unnar og segir að löngu ætti að vera búið að taka á þessu máli. Honum þykir trúlegt að smitið hafi komið í gegnum afrétt. „Það var ekki bannað að setja á Hruna- mannaafréttinn og ekki girt milli afrétta sem hefði verið auðveldasta leiðin. Sumir segja að það sé svo dýrt en ég segi að ennþá dýrara sé að farga öllu fé á þessu svæði, Flóa og Skeiða- og Gnúpverja- hreppi.“ Einnig er rætt við Sigurð Sigurðarson, dýralækni á Keldum. Hann segir mestu smithættuna vera annars staðar en í af- rétti en leggur áherslu á að dýralæknar vilji koma á öflugri samvinnu við bændur um þessi mál. „Við höfum beðið sveit- arstjórnir að tilnefna menn í nefndir með okkur. Það er útilokað fyrir okkur að ráða við þetta án virkrar þátttöku heima- manna.“ Engin lömb í vor Tapað fé Allt féð á Gerðum í Flóahreppi var skorið niður á föstudag. Morgunblaðið/RAX  Það þýðir ekkert | 10 BIRKIR Hermannsson, rúmlega hálfs árs gamall Eyjapeyi, var prúðbúinn þegar ljós- myndara Morgunblaðsins bar að garði á heimili hans og ekki á honum að sjá að hann hefði þurft að hafa jafnmikið fyrir fyrstu dögum lífs síns og raun bar vitni. Birkir fæddist með mjög alvarlegan hjartagalla og þurfti hann að gangast undir hjartaþræð- ingu aðeins sex klukkustundum eftir fæð- ingu. Móðir Birkis segir að Birkir hafi náð full- um bata og reiknar með því að hann hætti á lyfjagjöf í janúar. „Þetta er þannig séð búið í okkar huga,“ segir hún. Lárus Guðmundsson og félagar hans í Hjálparsveit skáta í Hveragerði sjá heldur ekki ástæðu til annars en að horfa bjartsýnir fram á veginn þótt þeir hafi þurft að fylgjast með húsnæði sveitarinnar, þeirra öðru heim- ili, brenna til kaldra kola fyrir ári. Í huga Baltasars Kormáks er árið einnig mjög minnisstætt, uppskeran hefur sjaldan verið meiri auk þess sem hann flutti úr ið- andi mannlífinu í miðbænum í sveitasæluna í Skagafirðinum. Sveitasælan hefur sennilega ekki verið mjög ofarlega í huga Magnúsar Scheving en hann hefur unnið baki brotnu að kynningu Latabæjar í ár og borið ríkulega úr býtum, fengið fjölda viðurkenninga og ótrúlegt áhorf barna víðs vegar um heiminn. Hress Eyjapeyi Birkir Hermannsson. Eyjapeyinn Birkir aldrei verið brattari  Fólk og fréttir | B 12–18 MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út þriðjudaginn 2. janúar. Um áramót- in verður fréttaþjónusta á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt er að senda ábendingar um fréttir á net- fangið netfrett@mbl.is. Á gamlársdag verður áskriftar- deildin opin frá kl. 9 til 12 en deildin verður lokuð á nýársdag. Auglýs- ingadeildin er lokuð bæði á gaml- ársdag og nýársdag. Skiptiborð Morgunblaðsins er lokað á gamlárs- dag en opið á nýársdag frá kl. 13 til 20. Fréttavakt á mbl.is yfir áramótin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.