Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Á LAUGARDAG verður Viðeyj- arhátíð og minnst 100 ára afmæl- is þorpsins í Viðey með því að skapa ósvikna þorpsstemningu. Hátíðin markar endapunktinn á sumardagskrá Viðeyjar þetta ár- ið. Dagskráin stendur frá kl. 12- 24. Meðal dagskrárliða má nefna útimarkað, kaffisölu, göngur um eyjuna og margvíslega dagskrá fyrir börnin. Þá gefst kostur á að snæða glæsilega þriggja rétta há- tíðarmáltíð í Viðeyjarstofu. Kl. 21 verður svo slegið upp heljarinnar dansiballi á palli við Viðeyjarstofu. Þjóðdansafélag Reykjavíkur stígur dans og í kjöl- far þess munu Karl Jónatansson og Neistarnir og hópur úr Harm- onikkufélaginu Hljómum leika fyrir dansi. Sérstakur gestur verður Raggi Bjarna sem flytur nokkra þekkta slagara. Dagskrá hátíðarinnar er ókeypis utan ferjutoll, en ferjan mun ganga út í eyjuna fram yfir miðnætti. Haldið upp á 100 ára afmæli þorpsins í Viðey með viðhöfn Helgin Á Viðeyjarhátíð verður minnst 100 ára afmælis þorpsins. KARL V. Matthíasson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins var kjörinn formaður á 10 ára afmælisársfundi ráðsins sem haldinn er í Nuuk, Grænlandi, dagana 20. til 24. ágúst. Hann tekur við embættinu af Jonathan Motzfeldt, for- seta grænlenska Landsþingsins. Karl sagði í ræðu sinni er hann tók við embættinu að hann myndi leggja höfuðáherslu á fjögur málefni í for- mannstíð sinni. Hann sagðist myndi fylgja eftir þeirri vinnu sem Jonathan Motzfeldt hefur ýtt úr vör um að fá Evrópusambandið til að beina í auknum mæli sjónum sínum að þeim vandamálum sem skapast hafa í og við norðurskautið vegna hlýnunar, þar sem ESB hefur verið helst til áhuga- laust um málefni norðurskautsins. Auk Karls sitja Henrik Old, þingmaður í Færeyjum, og Jonathan Motz- feldt, forseti Landsþings Grænlands, í forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins. Formaður ráðsins er kjörinn til eins árs. Karl V. Matthíasson kjörinn formaður Vestnorræna ráðsins Karl V. Matthías- son þingmaður. HÁTT í 90% landsmanna eru jákvæð í garð Öryrkjabandalags Íslands, samkvæmt könnun sem Capacent Gallup gerði könnunina fyrir ÖBÍ í júlí, en markmiðið var að kanna ímynd almennings á starfsemi bandalagsins. Þegar spurt var hvort fólk væri jákvætt eða neikvætt gagnvart ÖBÍ sögðust 88,9% svarenda mjög eða frekar jákvæð í garð bandalagsins. 8,1% svöruðu hvorki né en 3% voru frekar eða mjög neikvæð. Um 70% svarenda kváðust bera mikið eða frekar mikið traust til bandalagsins og rúm 75% tölu að ÖBÍ sinnti réttindamálum öryrkja mjög vel eða frekar vel. Þá taldi yfir helmingur svarenda að félagið væri mjög eða frekar sýnilegt í um- ræðum um réttindamál öryrkja. Segir ÖBÍ að niðurstöðurnar sýni ótvírætt sterka stöðu ÖBÍ í samfélaginu. Könnunin var framkvæmd þannig að hringt var í 1.350 manns á öllu landinu á aldrinum 16-75 ára, en úrtakið var valið af handahófi úr þjóð- skrá. Svarhlutfall var 61,4%. Flestir jákvæðir í garð ÖBÍ GÍSLI Tryggvason, talsmaður neyt- enda, vill að sumarhúsaeigendur njóti forleiguréttar í skipulagðri frístundabyggð. Þetta kemur fram í umsögn hans um drög að laga- frumvarpi um réttindi og skyldur eigenda og leigjenda lóða í skipu- lagðri frístundabyggð. Hann bendir á að í frumvarpinu sé ekki tekið nægjanlegt tillit til hagsmuna og réttinda lóðarleigutaka. Lagðar eru til ýmsar úrbætur, svo sem for- leiguréttur við lok leigutíma í skipulagðri frístundabyggð til handa leigutaka. Að öðrum kosti geti leigutaki staðið frammi fyrir afarkostum eins og mikilli hækkun leigu, tilboð um lóðarkaup gegn mjög háu verði eða kröfu um brott- flutning með tilheyrandi kostnaði og missi jarðarbóta. Morgunblaðið/Sverrir Lög Fyrirhugað er að setja lög um réttarstöðu í frístundabyggðum. Réttur leigu- taka batni BOR 2 setti nýtt met í afköstum við borun við Kárahnjúka í síðustu viku þegar hann skilaði tæplega 364 metrum í aðrennslisgöngum Jök- ulsárveitu. Fyrra vikumetið átti bor 3 og það var frá því í júní 2004. Heimsmet í afköstum bors af þess- ari stærð mun vera 372 metrar á einni viku. Þetta kemur fram á vef Kárahnjúkavirkjunar. Sami bor náði mestum sólarhringsafköstum allra boranna þriggja frá upphafi virkjunarframkvæmda í sumar þegar hann boraði 106,12 metra. Met í borun MENNTARÁÐ Reykjavík- urborgar hefur ákveðið að meta með heildrænum hætti gæði skólastarfs í borginni. Markmiðið er að skapa betri yfirsýn yfir alla þætti skólastarfsins, efla starf- semi grunnskólanna og greina hvernig menntastefnu borg- arinnar er framfylgt. Með svoköll- uðu heildarmati, sem verður við- bót við árlegt sjálfsmat skólanna, verður leitast við að styrkja inn- viði og skólabrag og veita starfs- fólki og skólastjórnendum mark- vissan stuðning og hvatningu. Stefnt er að því að meta gæði skólastarfs í 6-7 skólum á þessu skólaári og verður höfð hliðsjón af árangri nemenda og nið- urstöðum kannana við val á skól- um. Unnið verður eftir ákveðnu ferli sem mótað var við til- raunaúttekt í einum skóla skóla- árið 2006-2007. Meta skólastarfið GPG fiskverkun á Húsavík hefur keypt nýjan bát, Háey II ÞH, með línubeitningarvél. Báturinn er keyptur af bátasmiðjunni Sam- taki og er Víkingur 1200. GPG gerir einnig út beitningavélabát- inn Lágey og á auk þess hlut í út- gerðarfyrirtækinu Doddu ehf. sem gerir út Karólínu ÞH sem er yfirbyggður línubátur frá Trefj- um og kom til Húsavíkur fyrir tæpum 2 árum. Nú eru þeir með í smíðum samskonar bát og Háey II sem verður afhent í kringum áramótin. Háey II er tæpir 12 metrar að lengd og ríflega 4 á breidd. Í lest er pláss fyrir 28 460 lítra fiskikör. Vélin er af Yanmar-gerð 710 hest- öfl. Veiðarfæri og beitningarvél fyrir 21.000 króka er frá Sjóvél- um. Svefnpláss er fyrir fjóra í lúkar, þar er salerni og velbúið eldhús. Í brú er matsalur fyrir sex auk fiskileitar- og skipstjórn- artækja. Auk þess að gera út bátana þrjá kemur GPG að útgerð og rekstri nokkurra annarra báta, bæði stærri og minni. Gunnlaugur Karl Hreinsson, eigandi GPG, segir að ekki sé enn ljóst hvort leggja verði einhverjum af þeim bátum, sem tengjast rekstrinum vegna niðurskurðarins á þorsk- kvótanum. Hann segir að fyrir- tækið, sem er með vinnslur á Raufarhöfn, Húsavík og í Stykk- ishólmi, vinni úr um 12.000 tonn- um á ári. Bátarnir veiði aðeins um helming þess magns. Því kaupi fyrirtækið mikið af fiski til vinnslu á mörkuðum og í beinum viðskiptum. Ætlunin sé hins veg- ar að auka eigin hlut í veiðunum með bátakaupunum. GPG kaupir nýjan bát Mennirnir í brúnni Útgerðarmaðurinn Gunnlaugur Karl Hreinsson og skip- stjórinn Konráð Sigurðsson eru ánægðir með nýja bátinn frá Samtaki. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Báturinn Háey II ÞH er vel útbúinn smábátur með línubeitningarvél. ÚR VERINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.