Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 22
neytendur 22 FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ Bónus Gildir 23. ágúst - 26. ágúst verð nú verð áður mælie. verð Ferskir kjúklingabitar .................. 275 354 275 kr. kg Fersk, úrbeinuð kjúklingalæri ...... 599 899 599 kr. kg Ferskt blandað hakk .................. 498 639 498 kr. kg Myllu heimilisbrauð, 770 g ......... 98 159 127 kr. kg Bónus heimilisbollur, 320 g........ 159 198 497 kr. kg Kók light, 2 l.............................. 89 143 44 kr. ltr Svali, 3x250 ml ......................... 69 91 92 kr. ltr Trópí, 3x250 ml ......................... 129 149 172 kr. ltr Núðlur í boxi, 65 g ..................... 39 49 600 kr. kg Kaffitár, vinarkaffi, 250 g, ný uppsk. ...................................... 398 0 1.592 kr. kg Hagkaup Gildir 23. ágúst - 26. ágúst verð nú verð áður mælie. verð Nýsjál. nautalundir úr kjötborði ... 2.998 3.698 2.998 kr. kg Andabringur rifsberjal. úr kjötb. ... 2.498 3.198 2.498 kr. kg Þorskur í bananalaufi ................. 1.890 0 1.890 kr. kg Kjúklingur 1/1, ferskur ............... 419 699 419 kr. kg Krónan Gildir 23. ágúst - 26. ágúst verð nú verð áður mælie. verð Ungnautahakk........................... 889 1.389 889 kr. kg Grísagúllas................................ 989 1.500 989 kr. kg Grísasnitsel ............................... 1.098 1.594 1.098 kr. kg Móa kjúklingabringur ................. 1.698 2.515 1.698 kr. kg Móa BBQ kjúklingalæri/leggir ..... 388 562 388 kr. kg Goða lambalæri, frosið í plp ....... 899 1.098 899 kr. kg Goða kæfa, 4 gerðir, 150 g......... 149 193 993 kr. kg Grand It. Pastas., 3 gerðir, 425 g 199 269 468 kr. kg NV Granola Bar, 3 gerðir, 252 g .. 199 269 199 kr. stk. Ariel Regular & Color, 2,85 kg..... 998 1.299 399 kr. kg Nóatún Gildir 23. ágúst - 26. ágúst verð nú verð áður mælie. verð Lambalæri af nýslátruðu............. 1.098 1.598 1.098 kr. kg Lambahryggur af nýslátruðu........ 1.298 1.798 1.298 kr. kg Lamba súpukjöt af nýslátruðu ..... 399 779 399 kr. kg Lambafille m/fiturönd................ 2.698 3.298 2.698 kr. kg Ýsa í raspi ................................. 998 1.298 998 kr. kg Myllu Brallarabrauð, 770 g ......... 149 215 194 kr. kg Líf Safar Appels./Epla/Ace, 1 l ... 89 109 89 kr. ltr Hellm. Majónes Reg./Lig., 283 ml ............................................ 199 249 703 kr. ltr Sprite / Sprite Zero, 2 l .............. 99 182 99 kr. stk. Nóatúns eldhúsrúllur, 4 stk......... 299 375 299 kr. pk. Samkaup/Úrval Gildir 23. ágúst - 26. ágúst verð nú verð áður mælie. verð Kjötborð lambalæri, nýslátrað ..... 1.119 1.499 1.119 kr. kg Borgarnes lambasaltkjöt, bland- að ............................................ 597 853 597 kr. kg Matfugl kjúklingur, ferskur 1/1.... 489 699 489 kr. kg Ísfugl BBQ kjúklingaleggir ........... 349 468 349 kr. kg Toppur sítrónu 1,5 l.................... 99 148 66 kr. ltr Freschetta Brick oven itali. 2 stk.. 399 499 399 kr. pk. Frissi fríski appelsínu, 2 l ............ 149 205 75 kr. kg Myllu heimilisbrauð.................... 179 209 179 kr. stk. Sætar kartöflur .......................... 209 277 209 kr. kg Vínber, rauð .............................. 299 379 299 kr. kg helgartilboðin Kjöt af nýslátruðu og hakk í helgarmatinn Morgunblaðið/Jim Smart SKAFTHOLT í Gnúpverjahreppi hefur verið kennt við lífrænan bú- skap allt frá árinu 1980 en að Skaft- holti er rekið sambýli og verndaður vinnustaður eftir mannspeki Ru- dolfs Steiners. Að Skaftholti er öll framleiðsla líf- ræn og vinna á sambýlinu 8 vist- menn en rúmlega 20 manns koma að starfseminni á einn eða annan hátt. Síðastliðin 15 ár hefur verið haldið opið hús þar sem fólk getur komið og séð hvernig lífrænn búskapur er rekinn en á opna deginum verður veitingasala og getur þá fólk komist í kynni við framleiðsluna sem annars fæst eingöngu að staðaldri í Yggdrasil. Nánast sjálfbært samfélag Atie Bakker að Skaftholti segir að reynt sé að hafa þar samfélag þar sem allir leggja sitt af mörkum eftir bestu getu. „Við reynum að leyfa hverjum og einum að blómstra og dafna vel í fal- legu umhverfi. Eins og við reynum að hlúa að okkar matvörum þá reyn- um við að hlúa að okkur sjálfum. Við erum með hænur, kýr og kindur, úti- ræktun og allt er lífrænt ræktað“ segir Atie og bætir við að Skaftholt sé nánast sjálfbært samfélag. „Við ræktum ekki kaffi og sykur,“ segir hún og hlær um leið og hún leggur áherslu á að á Skaftholti sé hægt að fá allar mjólkurvörur, kjöt, græn- meti og egg, sem er nokkuð vel af sér vikið hvað sjálfbæra og lífræna ræktun varðar. Mannspeki Kenningar Rudolfs Steiner ganga út á það að einstaklingar geti nýtt hæfileika sína í sátt við lífið og nátt- úruna og eru í hávegum hafðar í Skaftholti. Þar er t.d. ekkert sjón- varp og mikil áhersla lögð á lifandi tónlist og maturinn skiptir ekki minna máli en andleg málefni og þar af leiðandi er allur matur sem ekki er hægt að búa til á staðnum einnig lífrænt ræktaður. Um helgina verða vinnustofur, gróðurhús, garðar, fjós, fjárhús og ostagerðin til sýnis þannig að fólk geti gengið um og skoðað, bæði inni og úti. Leikandi lífrænt að Skaftholti Lífrænt Karólína Steinbach og Lina Thander reyta arfa í grænmetisgarði Skaftholts, en samfélagið þar er nánast sjálbært. byrjaði herlegheitin. Sá gamli var nú ekki alveg til í það og þá sagði hún unglingunum að þegar þeir lentu í svona ættu þeir ekki að gera mann- eskjunni, í þessu tilfelli gamla manninum, þann greiða að svara honum því svona væri ekki svaravert. Þeir ættu að bera meiri virðingu fyr- ir sér en það og bara ganga í burtu. Ungling- arnir hlustuðu á hana og gengu í burtu frá gamla manninum, þakklátir vinkonunni fyrir að standa með þeim því eflaust hefðu flestir tekið málstað gamla mannsins sem var í rauninni hinn eini og sanni óróasegg- ur. Gamli maðurinn virtist ekkert skammast sín fyrir þessa uppákomu og gekk tuðandi inn í búðina, líklega fúll út í vinkonuna fyrir að hafa komið í veg fyrir að hann lenti í slagsmálum sem hann gæti síðar kennt unga fólk- inu um. Vinkonan var virkilega ánægð með sig að hafa stoppað leikana og sýnt unglingunum fram á að það er til fólk sem stendur með þeim ef vegið er að þeim á ósanngjarnan hátt. Vinkona Víkverjasagði honum lær- dómsríka sögu um dag- inn. Vinkonan var að hlaða innkaupapokum í bílinn sinn fyrir framan eina matvöruverslun höfuðborgarinnar. Fyr- ir framan verslunina hékk hópur unglinga og virtist ekki vera að gera neitt annað en að tala saman. Þá kemur að gamall maður, gengur framhjá unglingahópn- um og hreytir í hann um leið óyrðum sem hljóðuðu eitthvað á þessa leið: „Helvítis unglingar.“ Auðvitað svöruðu ung- lingarnir fyrir sig, eins og þeirra er von og vísa, og leiddi það til ljóts orðaskaks á milli hópsins og gamla mannsins sem hafði byrjað alltsaman. x x x Vinkonan var ekki sátt við þessaframkomu gamla mannsins gagnvart unglingunum því þeir höfðu ekki gert honum nokkurn skapaðan hlut og ákvað að skerast í leikinn. Hún stoppaði orðaskakið og sagði gamla manninum að biðja unglingana afsökunar því hún hefði séð að hann         víkverji skrifar | vikverji@mbl.is AÐ KAUPA VÍN ER EKKERT GRÍN Haf›u skilríkin me›fer›is. Takk fyrir að sýna okkur skilríki að eigin frumkvæði þegar þú kemur í Vínbúðina. Þannig leggjumst við á eitt um að takmarka aðgengi unglinga að áfengi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.