Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 23.08.2007, Blaðsíða 44
Þar minnkar maður með aldrinum, full- orðnir leika börn og börnin leika þá fullorðnu… 46 » reykjavíkreykjavík Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is HÉR á landi eru staddir tveir dans- arar úr hinum heimsfræga dansflokki Pinu Bausch, Tanztheater Wupper- tal. Hjónin Julie Shanahan og Rainer Behr hafa starfað með Bausch í mörg ár og komu m.a hingað til lands síð- astliðið haust þegar flokkurinn sýndi í Borgarleikhúsinu. Þau eru nú hér á eigin vegum til að halda námskeið fyrir dansnema í Listaháskóla Ís- lands, leikara Borgarleikhússins og dansara Íslenska dansflokksins. „Námskeiðin eru byggð á reynslu okkar og erum við bæði með fyrir- lestra og danskennslu en við byggj- um kennsluna mikið á einstaklingn- um og að hann finni sína eigin leiðir,“ segir Shanahan og bætir við að þeim finnist áhugavert að vinna með ís- lensku listamönnunum. „Þeir hafa verið mjög opnir og áhugasamir,“ segir hún og tekur ekki undir klisj- una um að Íslendingar séu lokaðir. „Fólkið sem við erum að vinna með er a.m.k. ekki lokað, við höfum þurft að kreista heilmikið út úr því en þetta er ekki eina landið í heiminum þar sem þarf að kreista. Það er frekar að þá skorti þekkingu til að ná ýmsu út úr sér en við hjálpum þeim við það. Með því að finna hvað það er sem gerir mann sérstakan verður sköpunin heiðarlegri.“ Fjölskylduferð Shanahan kemur frá Ástralíu en Behr er Þjóðverji, þau kynntust í danshópnum og eru hér með tvö börn sín, 3 mánaða og 5 ára. Spurð hvernig sé að ferðast svona mikið með fjöl- skylduna vegna vinnunnar segir Sha- nahan að það sé auðvitað erfitt. „Þetta er samt mikil reynsla fyrir börnin, eldra barnið veit t.d. mikið um landafræði og getur borðað allan heimsins mat.“ Shanahan segir að þrátt fyrir ferðalögin sé mjög gott að vinna í danshópi Bausch enda sé hún búin að vera þar í 19 ár. „Það er mikil áskorun, maður þarf að gefa mjög mikið af sjálfum sér í sköpunina en fyrir vikið þekkir maður sjálfan sig vel.“ Shanahan segir að það sé und- antekning að þau haldi námskeið líkt og hér á landi því þau geri það í frí- tíma sínum. „Vinnan með Bausch er mikil en okkur langaði mjög að koma til Íslands, það er líka mikilvægt að koma þekkingunni áfram.“ Heiðarleg sköpun Morgunblaðið/G.Rúnar Hjón Julie Shanahan og Rainer Behr eru dansarar hjá Tanztheater Wuppertal og héldu námskeið hér á landi fyrir listamenn.  Tónlistarmað- urinn Svavar Knútur er um þessar mundir staddur í Ástralíu á tónleikaferð. Svavar skrifar heim í Poppland á Rás 2 og í síðasta bréfi lýsir hann tónleikaferð sinni um Melbourne, Sydney og aðra smærri bæi þessa gríðarstóra lands. Merkilegust er þó frásögn hans frá Tasmaníu þar sem hann dvaldi í góðu yfirlæti hjá Brian nokkrum Ritchie sem Svavar kynntist á MySpace. Fóru þeir í skemmtilega skoðunarferð um eyj- una sem varð svo töluvert merki- legri þegar það rann upp fyrir Svavari, eftir tveggja tíma bílferð, að hann var að rúnta með bassa- leikara Violent Femmes. „Hafið þið nokkuð gefið út plötu?“  Vinahljómsveitirnar Á móti sól og Sóldögg ætla að leggja land und- ir fót á næstu dögum og fara til Danmerkur. Tilgangur ferðarinnar er að skella sér á tónleika með Sting og félögum hans í hljómsveit- inni The Police sem verða í Árósum 1. september. Eins og margir ef- laust vita var sveitin endurvakin nýverið og hefur verið á gríðarlega vel heppnuðu tónleikaferðalagi um heiminn. Nú er bara spurning hvort Magni fái ekki að skella sér upp á svið og syngja dúett með Sting … Skella sér á Lögguna  Glöggir lesendur Morgunblaðs- ins hafa eflaust tekið eftir því að á forsíðu blaðsins í gær var talað um minningartónleika og Tom Waits í sömu setningu. Af því tilefni skal áréttað að Waits er enn í fullu fjöri, enda ekki nema 57 ára gamall. Tom Waits er á lífi Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is „ÉG ER upphaflega djass-gítar- leikari og hef leikið á gítar síðan ég var barn,“ segir Búi nokkur Dam, færeyskur tónlistarmaður sem ætlar að leika fyrir Íslendinga í Norræna húsinu á morgun. Búi hefur einnig fengist talsvert við leiklist enda kemur hann úr mikilli leikarafjölskyldu í Fær- eyjum. Fyrir tveimur árum hóf hann svo upp raust sína, hóf að syngja og semja lög. „Mig langaði að segja sögur,“ segir Búi um þessa ákvörðun sína að gerast tónlistarmaður. Hann hefur ekki langað að skrifa bók fyrst hann vildi koma frá sér sögum? „Jú það er reyndar á planinu líka,“ viðurkennir Búi, en sögurnar hans eru um „stóru hlutina í lífinu, ástina, dauðann og konur.“ Talar íslensku Budam er listamannsnafn Búa og einnig nafnið á hljómsveitinni hans sem sendi nýverið frá sér sína fyrstu plötu, Stories of Devils, Angels, Lovers and Murderers. Platan hefur fram að þessu að- eins verið gefin út í Færeyjum, Búi segist þó vonast til þess að platan og hljómsveitin nái eyrum fleiri en landa sinna. „Það er mikið af nýj- um listamönnum að koma upp hér í Færeyjum. Ég held að það sé að gerast hér það sama og gerðist hjá ykkur á Íslandi fyrir svona 20 ár- um, þegar erlendir aðilar fóru að uppgötva tónlistina ykkar,“ segir Búi. „Það er auðvelt að ná athygli fjöldans hér í Færeyjum vegna þess hve við erum fá en á móti er maður líka fljótur að gleymast sé maður ekki duglegur að minna á sig.“ Sex manns verða Búa til full- tingis á tónleikunum á morgun, hann ætlar sjálfur að syngja og „taka aðeins í gítarinn“.Aðspurður segist Búi ekki vera að koma til Ís- lands í fyrsta sinn. „Ég tala meira að segja íslensku,“ segir hann skyndilega á næstum lýtalausri ís- lensku og gerir blaðamanni það óþarft að halda uppi samræðum á erlendu tungumáli. Budam halda tónleika í Norræna húsinu á morgun, föstudag, klukk- an 22.30 en tónleikarnir eru hluti af dagskrá Reyfis – Menning- argnægð Norræna hússins sem nú stendur yfir. Sveitin heldur einnig tónleika á Sirkus á laugardagskvöld. Tónleikar Búa Dam eru hluti af dagskrá Reyfis í Norræna húsinu Færeyskur Búi Dam telur Færeyjar líklegar til að komast á alþjóðlega tónlistarkortið líkt og Ísland gerði fyrir tuttugu árum. Sögur af ástkonum, morðingjum og englum myspace.com/budam

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.