Morgunblaðið - 06.11.2007, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Þórunn Gunn-arsdóttir fædd-
ist í Stykkishólmi
13. ágúst 1924. Hún
lést á heimili sínu
29. október síðast-
liðinn. Foreldrar
hennar voru Krist-
ensa Valdís Jóns-
dóttir og Gunnar
Guðmundsson. Þór-
unn átti 14 systkini,
þau eru Inga, látin,
Guðmundur, Hall-
dóra, Jórunn, látin,
Bjarghildur, Guð-
rún, Hrefna, Ingibjörg, Konráð,
látinn, Rannveig, látin, Lovísa,
Jónas og tveir drengir sem létust
í bensku.
Þórunn giftist 2. apríl 1953
Matthíasi Laxdal Björnssyni, f. 6.
nóvember 1919, d. 31. mars 2002
11. nóvember 1960, maki Pétur
Svavarsson, börn þeirra eru
Svavar Ólafur, Steinar, Elísabet
og Ragnhildur Dagbjört. 6)
Soffía Jakobína, f. 15. september
1963, sambýlismaður Guðjón
Haukur Hauksson, börn hennar
og Sverris Reynissonar eru Reyn-
ir Andri, Björn Daníel og Stefan
Mickael. Fyrir átti Þórunn soninn
Gunnar Eldar, f. 16. október
1947, d. 18. júlí 1999, maki Ragna
Jóhannesdóttir, börn þeirra eru
Matthías Þór, Jóhannes Örn, Karl
Eldar, Ágúst Fannar og Krist-
ensa Valdís. Langömmubörn Þór-
unnar eru 15 talsins.
Þórunn gekk í Húsmæðraskól-
ann á Staðafelli í Dölum. Lengst
af starfaði hún í mötuneytum og
við fiskvinnslu. Á efri árum var
hún mjög virk í starfi eldri borg-
ara á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útför Þórunnar fer fram frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í
dag og hefst athöfnin klukkan
15.
. Dætur þeirra eru:
1) Hallfríður Anna,
f. 1. febrúar 1953,
maki Sverrir Víg-
lundsson, börn
þeirra eru Víg-
lundur Laxdal og
Ólöf Magnea. 2) Vil-
borg, f. 2. júní 1955,
maki Ásmundur
Jónsson, börn þeirra
eru Jón Viðar, Sig-
urður Rúnar, Sigrún
og Ásmundur Þór. 3)
Þjóðhildur Birna, f.
24. júní 1956, sam-
býlismaður Jóhann Sæmundsson,
börn hennar og Karls Árnasonar
eru Guðrún Þóra, Matthías Finns
og Árni Rúnar. 4) Steingerður, f.
13. nóvember 1958, börn hennar
eru Þórunn Guðmundsdóttir og
Sturla Reynisson. 5) Kolfinna, f.
Ég ætla að skrifa nokkur orð um
mömmu. Fráfall mömmu bar brátt
að, hún hafði talað við mig í síma rétt
áður en hún dó. Hún var svo ánægð,
Inga systir hennar var hjá henni.
Inga á mínar innilegustu þakkir fyr-
ir hvað hún hefur reynst mömmu vel,
það var dýrmætt að vita af Ingu hjá
mömmu.
Mamma var skemmtileg kona,
hún sagði það sem hún hugsaði og
kom þá ýmislegt skemmtileg út úr
henni. Mamma þurfti alltaf við vita
hvort allir væru komnir heim til sín
áður en hún gekk til náða. Hún
hringdi oft til að athuga hvort ekki
væri allt í lagi. Í veikindum mínum
hefur hún reynst mér vel, hún sagði
kannski ekki allt sem hún vissi, en
hún gat komið orðunum þannig frá
sér að þau veittu huggun og hlýju.
Ég sakna símhringinganna frá
henni. Hún missti mikið þegar pabbi
féll frá, hún talaði oft um hann og
hvað hann hefði nú gert eða sagt við
ýmsu. Hún sá persónuleika og gjörð-
ir hans mikið í Betu minni, hún er
fædd á afmælisdegi hans. Mömmu
fannst gaman þegar stelpan kom til
hennar og hringdi ætíð þegar Beta
var farin frá henni og sagði „mikið
líkist hún afa sínum í öllu stelpan“.
Mamma var hörkudugleg kona og
myndarleg í höndunum, hún var
dugleg við handavinnu, sérstaklega
eftir að hún fór að dveljast í dagvist á
Hrafnistu. Það kom í ljós að hún
prjónaði mjög fallega og gerði marga
falllega hluti. Mamma var myndar-
leg húsmóðir og hún og pabbi áttu
alltaf fallegt heimili. Þau ólu upp 6
fjörugar stelpur og 1 strák. Það hef-
ur ekki verið auðvelt verk að ala upp
allan þennan barnafjölda, og ekki
vantaði fjörið í okkur, það var sleg-
ist, rifist. En alltaf gátu foreldrar
okkar komið á friði og haldið ró sinni,
kannski var ekki skrítið að þau yrðu
gráhærð ung.
Mamma var mikil félagsvera. Hún
hafði gaman af að dansa og ekki voru
fáar frásagnirnar af gömlu mönnun-
um sem voru að reyna að fá hana til
að dansa á skemmtikvöldunum á
Hrafnistu. Þvottavélin hennar hafði
verið biluð um stund, og hafði hún þá
sent mér þvott. Alltaf á föstudögum
hringdi hún og spurði: „Ætlar Stein-
ar eða Beta að sækja þvott til mín?“
Síðan var hringt daginn eftir og at-
hugað hvort ekki væri einhver að
koma að skila þvottinum.
Við erum aldrei tilbúin þegar kall-
ið kemur, ég hefði viljað kveðja
mömmu. En síðustu minningarnar
þegar ég lá hjá henni í rúminu, hún
komin yfir móðuna miklu, það var
svo mikill friður yfir henni, ég strauk
henni um ennið og kinnarnar, reyndi
að vekja hana. Þetta eru mér dýr-
mæt augnablik og minningar sem ég
ætla að muna.
Ég hef oft sagt að sum sár grói
aldrei en við lærum að lifa með þeim
og þannig er það yfirleitt við fráfall.
Það verður erfitt næstu mánuði að
hafa mömmu ekki, hún var stór og
fastur punktur í daglegu lífi mínu.
Aldrei aftur á ég eftir að sjá á síman-
um -amma þóra-. Elsku mamma, ég
kveð þig með söknuði og vona að
eitthvað bíði okkar eftir dvölina hér.
Ég sakna þín mikið. Elsku systur,
mágar og aðrir aðstandendur, nú
reynir á okkur að halda utan um
hvert annað og sýna okkar styrk.
Guð blessi okkur öll.
Kolfinna Matthíasdóttir.
Elsku fallega mamma mín.
Allt í einu ertu farin frá okkur.
Þetta var eitthvað sem við áttum
ekki von á, sem lýsir því best á
sunnudaginn þá vorum við Guðjón
úti að ganga og hann spurði mig
hvort við ættum ekki að kíkja í kaffi
til þín, en ég svaraði, „nei, við förum
bara í vikunni“, enda varst þú ekkert
að fara neitt. En svo gerist það sem
enginn á von á.
Þú varst svo yndisleg kona, alltaf
svo fín og sæt og gaman að sitja og
spjalla við þig, þú varst félagslynd og
þótti ekkert skemmtilegra en að
vera meðal fólks. Þú eldaðir góðan
mat, þú varst brosmild og skemmti-
leg, þú varst þakklát fyrir allt sem
við gerðum fyrir þig, þú hafðir svo
slétta húð að við systurnar öfunduð-
um þig, þú varst góð mamma, þú
varst góð amma, þú varst góð
langamma, þú varst allt sem ég gat
óskað mér.
Það er svo margs að minnast um
mömmu að það væri hægt að gefa út
bækur um það. Hún var ótrúleg
kona. Ég er svo þakklát að Inga
systir þín var hjá þér þegar þú
kvaddir þennan heim. Ég minnist
þess í sumar þegar við vorum uppi í
sumarbústað hjá Haddý systur, hvað
þér leið vel, við dekruðum við þig og
þér þótti það ekki leiðinlegt enda var
það okkar að skylda að gera allt fyrir
þig. Þú áttir allt það besta skilið.
Nú ertu kominn til pabba og það
er gott að vita að þið séuð aftur sam-
an, hann er eflaust búinn að vera að
bíða eftir þér.
Elsku fallega mamma, ég á eftir
að sakna þín og það eiga allir eftir að
sakna þín, veislurnar verða ekki þær
sömu án þín og ekkert verður það
sama án þín.
Takk fyrir allt, elsku, fallega
mamma.
Þín dóttir,
Soffía.
Þórunn Gunnarsdóttir
Fleiri minningargreinar um Þór-
unni Gunnarsdóttur bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs föður, tengda-
föður, afa og langafa,
BÖRGE GERHARD PETERSEN
Ingolf og Sigrún Petersen, barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR BENNÝ GUÐJÓNSDÓTTIR
(Lilla frá Ási),
Nestúni 2,
Hvammstanga,
sem andaðist á Sjúkrahúsinu Hvammstanga
föstudaginn 26. október, verður jarðsungin frá
Hvammstangakirkju fimmtudaginn 8. nóvember
kl.14.00.
Hallgeir S. Pálmason, Helga Jakobsdóttir,
Jakob Hallgeirsson, Sandra Guðlaug Zarif,
Berglind Þóra Hallgeirsdóttir, Sigurður Flosason,
Alex Rafn Guðlaugsson, Ísak Geir Jakobsson.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GYLFI KRISTJÁNSSON
blaðamaður,
Steinahlíð 5h,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
8. nóvember kl. 11.00.
Birna Blöndal,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SVANHILDUR MARÍASDÓTTIR,
áður til heimilis að Álfaskeiði 49, Hafnarfirði,
verður jarðsungin miðvikudaginn 7. nóvember
frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, klukkan 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldór Elíasson.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
ástkærs sonar míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
OTTÓS H. KARLSSONAR,
Eskivöllum 9b,
Hafnarfirði.
Klara G. Þórðardóttir,
Klara Jóhanna Ottósdóttir,
Ólafur Þór Ottósson, Helga Björg Sigurðardóttir,
Aðalheiður Björk Ottósdóttir,
Ása Hrund Ottósdóttir,
Katrín Alexandra, Ottó Gauti
og Birgitta Rún.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi,
bróðir, mágur og frændi,
ERLINGUR BERTELSSON
lögfræðingur,
Unnarbraut 13b,
Seltjarnarnesi,
lést á heimli sínu mánudaginn 29. október.
Útförin verður gerð frá Kristskirkju, Landakoti, föstudaginn 9. nóvember
klukkan 13.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Hjartavernd eða á Rannsóknasjóð Ingibjargar R. Magnúsdóttur,
Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði, Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
(sími 525 5280).
Marga Thome,
Katrín Erlingsdóttir, Kristján Freyr Einarsson,
Erlingur Snær Kristjánsson,
Sigríður Bertelsdóttir,
Alfons Thome, Agathe Hahn
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR IBSEN,
Brúnavegi 9,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju miðvikudaginn
7. nóvember kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Krabbameins-
félagið í Skógarhlíð.
Kristín Guðmundsdóttir, Kristján Sigurgeirsson,
Dröfn Guðmundsdóttir, Sigurður M. Magnússon,
Þórir Ibsen, Dominique Ambroise,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓNÍNA VALDÍS EIRÍKSDÓTTIR,
Írabakka 26,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum, Fossvogi, föstudaginn
26. október.
Útför hennar fer fram frá Bústaðarkirkju, fimmtu-
daginn 8. nóvember kl. 13.00.
Marel Einarsson,
Stefanía Einarsdóttir, Stefán Árnason,
Margrét Einarsdóttir, Ásmundur Bjarnason,
Hafdís McDowell, Martin McDowell,
Einar Valur Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.