Morgunblaðið - 06.01.2008, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 5. TBL. 96. ÁRG. SUNNUDAGUR 6. JANÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
SUNNUDAGUR
LÆRÐI AÐ
SEGJA NEI
ER HAMINGJAN
BOTNLAUS VINNA?
MANNAUÐUR >> 30
POTTUR-
INN Í PARÍS
LISTIR OG MANNLÍF
Í HEIMSBORGINNI
LISTIR >> 28
Eftir Freystein Jóhannsson
og Orra Pál Ormarsson
„EINHLIÐA utanríkisstefna okkar hefur grafið
jafnt og þétt undan okkur. Það nær vitaskuld
engri átt að láta eins og við séum hafin yfir lög og
reglur sem allir aðrir halda í heiðri. Við getum
heldur ekki sniðgengið réttindi erlendra borgara
eins og ekkert sé, réttindi sem við myndum aldrei
sætta okkur við að tekin væru af okkur sjálfum.“
Svo mælir David Cole, lagaprófessor við
Georgetown-háskóla í Washington, en hann hefur
verið einn helsti gagnrýnandi stefnu Bandaríkja-
stjórnar í stríðinu gegn hryðjuverkum. Hann er
sannfærður um að Bush-stjórnin hafi þegar í upp-
hafi tekið rangan pól í hæðina og fyrir vikið sé hún
að tapa þessu stríði.
Sami þrýstingur á demókrötum
Bandaríkjamönnum er legið á hálsi fyrir að
víkja lögum til hliðar í meðferð sinni á meintum
hryðjuverkamönnum sem hún hefur haldið án
þess að birta þeim ákæru, sumum hverjum árum
saman. „Það er alltaf farsælla að fara að lögum en
sveigja þau og beygja. Hefðum við haft það sjón-
armið að leiðarljósi í upphafi þessarar vegferðar
væri betur fyrir okkur komið í dag,“ segir Cole.
George W. Bush lætur af embætti forseta
Bandaríkjanna í byrjun næsta árs. Þegar Cole er
spurður hvaða væntingar hann hafi til nýs forseta
og ríkisstjórnar hans svarar hann af varfærni. „Ég
vona að nýja ríkisstjórnin læri af mistökum Bush-
stjórnarinnar. Það veltur þó á því hver verður
kjörinn forseti. En forseti úr röðum demókrata
verður ekkert undralyf, þar sem demókratar, rétt
eins og repúblikanar, eru undir miklum pólitískum
þrýstingi þegar kemur að baráttunni gegn hryðju-
verkum. Þeir verða að vera „harðir í horn að taka“.
Gildir þá einu hvort sú „harka“ dugar eða hefur,
eins og ég hef bent á, öfug áhrif.“
Bandaríkin fari að lögum
Lagaprófessor í Washington segir bandarísk stjórnvöld hafa gert afdrifarík mistök í stríðinu gegn
hryðjuverkum Einhliða utanríkisstefna óheppileg Forseti úr röðum demókrata ekkert undralyf
Frelsið fyrir öryggisgler | 10
Í HNOTSKURN
»Bandaríkjastjórn hefur ekkitalað neina tæpitungu í bar-
áttunni gegn hryðjuverkum eftir
árásina 11. september 2001.
»Bandaríkjamenn hafa veriðgrunaðir um mannréttinda-
brot og pyntingar í fangelsum en
þeir hafa einatt vísað slíku á bug.
»Khalid El-Masri, sem Banda-ríkjamenn héldu fyrir mis-
tök, kveðst hafa sætt ofbeldi.
laust kveðja einhverjir jólin í kvöld með hátíðar-
brag, fara á brennu og skjóta upp blysum þótt
von sé á rigningu enn og aftur.
MARGIR hafa nýtt góða veðrið á nýju ári til að
stunda útiveru eftir langvarandi rok og rign-
ingar. Þessi maður naut lífsins með hundi sínum
í morgunbirtunni við Rauðavatn í gærmorgun.
Í dag er þrettándinn, síðasti dagur jóla, og þá
skundar síðasti jólasveinninn heim til fjalla. Ef-
Jólin kvödd í dag
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunganga við Rauðavatn
VIKUSPEGILL
Opið 13–18 í dag
Íslenski dansflokkurinn >> 56
Komdu á danssýningu
Leikhúsin í landinu
Í TÍÐ George Bush Bandaríkja-
forseta hefur lítil áhersla verið lögð
á Evrópu og gamlir bandamenn
hafa jafnvel fengið kaldar kveðjur.
Eru þeir sem nú sækjast eftir for-
setaembættinu líklegir til að breyta
því?
Bandaríkin
og Evrópa
SAMTÖKIN Skynsemi í vísindum
hafa sannleikann að leiðarljósi. Þau
eru með sérfræðinga á sínum snær-
um til að leiðrétta bábiljur sem
kenndar eru við vísindi og dægur-
stjörnur og fleiri úttala sig um í
fjölmiðlum.
Bull í vísinda-
legum búningi
KÍNVERJAR hafa sett ný lög til að
bæta stöðu verkamanna, en oft er
vandinn ekki rammi laganna, held-
ur viðgangast mannréttindabrot og
vinnuþrælkun vegna þess að lög-
unum er ekki fylgt eftir og eftirlit
er í molum.
Vandi verka-
manna í Kína
ÞEGAR einar
dyr lokast opnast
aðrar. Hallgrím-
ur Snorrason er
hættur sem hag-
stofustjóri en
honum bjóðast
ýmis verkefni
tengd skipulagi
hagstofa á er-
lendum vett-
vangi. Mun hann
t.d. fara til Erítreu í febrúar til að
skoða hagstofumál þar og menn í
Palestínu bera í hann víurnar í
sama tilgangi. Hallgrímur er þriðji
hagstofustjóri Íslendinga og jafn-
framt sá síðasti. Hagstofunni hefur
nú verið breytt með löggjöf og er
ekki lengur ráðuneyti. Hallgrímur
samdi frumdrög að lögum þess efn-
is sem þegar hafa verið samþykkt
og í þeim lagði hann sitt eigið starf
niður. Fyrri hagstofustjórar voru
þeir Þorsteinn Þorsteinsson, sem
átti sæti í Sambandslaganefnd 1908
til 1918 og sat til 1950 sem hag-
stofustjóri, og svo Klemens
Tryggvason, sem þá tók við og
stýrði Hagstofunni til 1985, þegar
Hallgrímur Snorrason tók við. Í
viðtali inni í blaðinu segir Hall-
grímur Snorrason frá ýmsu sem
snertir lífshlaup hans og feril. | 24
Frá Hagstofu til Erítreu
Hallgrímur
Snorrason