Morgunblaðið - 19.01.2008, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 19.01.2008, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Meiri verðlækkun 40-70% afsláttur Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið virka daga 10.00-18.00 Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00 Flott útsala 40-90% afsláttur Útsala iðunn tískuverslun Laugavegi 51, s. 561 1680 Kringlunni, s. 588 1680 nú 50% afsláttur www.friendtex.is Faxafen 10 sími 568 2870 NÚ ALGJÖRT VERÐHRUN Allir jakkar á 1.900 Kápa 3.900 Allar buxur á 1.900 Allar peysur á 1.900 1.500 og 2000 Komið og gerið frábærlega skemmtileg kaup Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-16 ATH. síðasta laguardagsopnunin okkar Útsölunni lýkur þriðjudaginn 22. janúar Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um: • Þroska barna, sjálfsmynd og samskipti. • Vandamál sem geta komið upp í samskiptum innan fjölskyldunnar. • Aðferð til þess að kenna börnum að taka ábyrgð. • Hvernig hægt er að tala við börn og tryggja að þau hlusti. • Aðferð til þess að kenna börnum tillitssemi og sjálfsaga. • Aðferðir sem varast að það séu sigurvegarar og taparar í samskiptum. • Hugmyndir um hvernig hægt er að hafa áhrif á gildismat barna. HUGO ÞÓRISSON Sálfræðingur WILHELM NORÐFJÖRÐ Sálfræðingur NÝTT NÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST Upplýsingar og skráning í síma 562 1132 og 562 6632 eftir kl. 16.00 og um helgar og á hugo@hugo.is www.samskipti.org Hverafold 1-3 (hjá Nóatúni) sími 562 6062 Útsala Laugavegi 63 • S: 551 4422 VETRAR- YFIRHAFNIR STÓRÚTSALA Opið hús Hrísrimi 11, 112 Reykjavík (íbúð 201) Fasteignakaup kynnir 3ja her- bergja, 87,5 fm íbúð á annarri hæð í fallegu húsi með 34,4 fm bílgeymslu í Grafarvogi. Svefn- herbergin eru tvö með flísum á gólfi og fataskápur er í öðru. Flís- ar eru á stofunni en þaðan er út- gengi út á rúmgóðar suðursvalir. Í eldhúsi er ljós innrétting og borðkrókur. Í baðherb. er flísalagt gólf og baðkar með sturtu, t/f þvottavél. Hús að utan og nánasta umhverfi: Húsið lítur mjög vel að utan og aðeins eru 6 íbúðir í stigaganginum sem er snyrtilegur. Gervihnattadiskur. Íbúðin er laus við kaupsamning. Verð 23,9 millj. Opið hús í dag milli kl. 15 og 15.30 Nánari upplýsingar um eignina gefur sölufulltrúi Fasteignakaupa Guðmundur Valtýsson 865 3022 Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali. Sími 515 0500 www.fasteignakaup.is Laugavegi 82, á horni Barónsstígs sími 551 4473 Útsala 20% afsláttur af útsöluvörum og öllum vörum í dag Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn ÖSSUR Skarphéðinsson iðnaðarráð- herra sendi í gær frá sér rökstuðning vegna skipunar Ólafar Ýrar Atla- dóttur í embætti ferðamálastjóra en síðustu daga hefur skipunin verið gagnrýnd af ýmsum. Er í rökstuðningnum lögð áhersla á að breytt staða ferðamála í stjórn- kerfinu og endurskipulagning kalli á nýja hugsun og mikinn samstarfs- vilja. Af því tilefni hafi sérstaklega verið tekið fram í auglýsingu að um- sækjendur þyrftu að vera tilbúnir að vera leiðandi í breytingaferli. „Ég tel að miðað við reynslu og þekkingar- öflun Ólafar Ýrar sé hún vel til þess fallin að takast á við framangreint. Hún lýsti í viðtölum skýrri framtíð- arsýn fyrir Ferðamálastofu og ís- lenska ferðaþjónustu og tel ég hana líklegri en aðra umsækjendur til að hleypa nýju blóði í starfsemi stofn- unarinnar þannig að Ferðamálastofa geti verið burðarás í því breytinga- ferli sem framundan er, m.a. við flutning á málaflokknum til iðnaðar- ráðuneytis,“ segir meðal annars í rökstuðningi iðnaðarráðherra. Varðandi þær almennu kröfur sem gerðar verði til ferðmálastjóra bend- ir ráðherra á að í lögunum séu ekki gerðar neinar menntunar- eða hæfn- iskröfur til þeirra sem gegna stöðu ferðamálastjóra og gilda því almenn hæfisskilyrði laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna rík- isins. Í auglýsingu hafi aftur á móti verið gerðar ákveðnar menntunar- og hæfniskröfur. Eru síðan færð fyr- ir því rök að Ólöf Ýrr hafi bakgrunn sem falli vel að þeim kröfum. Tekið hafi verið mið af lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Fjölbreytt menntun Ólafar Síðan segir í rökstuðningnum: „Ólöf Ýrr hefur að baki mikinn og fjölbreyttan menntunarferil sem nýtast mun vel í yfirgripsmiklu starfi ferðamálastjóra. Hún er íslensku- fræðingur BA og líffræðingur BSc frá Háskóla Íslands. Hún er með meistarapróf, MSc í líffræði frá Uni- versity of East Anglia. Þá hefur Ólöf lokið MPA-námi í opinberri stjórn- sýslu og diplómaprófi í þróunarfræð- um frá HÍ. Ólöf hefur ennfremur birt vísindagreinar á sviði líffræði. Ekki leikur nokkur vafi á því að hún hefur skarpan og greinandi hug sem er ag- aður af vísindalegum vinnubrögðum og nákvæmni. Ólöf hefur fimm ára reynslu af stjórnun í opinberum rekstri þar sem hún bar ábyrgð á starfsmanna- haldi, hafði fjármálalega ábyrgð og annaðist skjalastjórn. Fékk hún bestu meðmæli fyrir frammistöðu í því starfi. Í sínu fyrra starfi stóð hún m.a. fyrir breytingum á verkferlum sem mæltust vel fyrir. Auk menntunar á sviði bók- mennta- og náttúrufræði hefur Ólöf reynslu á sviði ferðaþjónustu úr landvörslu og fararstjórn, hún var einnig forstöðumaður Kviku, fræða- garðs við Mývatn sem m.a. stóð fyrir nýjungum á sviði þekkingartengdrar ferðaþjónustu. Ólöf hefur einnig kennt við ferðamáladeild Hólaskóla og verið fengin til að kynna nátt- úrufar og ferðamennsku á Íslandi hér heima og erlendis. Ólöf er með háskólapróf í íslensku en auk þess talar hún ensku, sænsku og þýsku og hefur flutt erindi á öllum þessum tungumálum á málþingum og ráðstefnum víða um lönd. Ólöf hefur tekið þátt í erlendu samstarfi með margvíslegum hætti. Hún hefur m.a. verið fulltrúi Íslands á fundum sérfræðinefndar Evrópu- ráðsins um lífsiðfræði, flutt fyrir- lestra á ráðstefnum og tekið þátt í rannsóknarverkefnum. Í námi jafnt sem störfum hefur Ólöf Ýrr vakið athygli fyrir frum- kvæði og ákveðni og sýnt að hún er óhrædd við að fara ótroðnar slóðir og standa að nýjungum,“ segir í rök- stuðningi iðnaðarráðherra. Færir rök fyrir skipun Ólafar í embætti ferðamálastjóra

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.