Morgunblaðið - 19.01.2008, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 19.01.2008, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 55 Eigum við að fara í bíó í kvöld?er spurning sem heyristreglulega meðal fólks og virðist oftast vera svarað játandi a.m.k miðað við aðsóknartölur í kvikmyndahús á Íslandi árið 2007 sem voru birtar nýlega. Íslendingar eyddu 1.104.938.460 krónum árið 2007 í aðgangseyri í kvikmyndahús landsins og 1.477.278 miðar voru seldir. Flestir sáu myndina um Simp- sons-fjölskylduna á síðasta ári eða 57.067 en Astrópía skilaði mestu í kassann, 45,6 milljónum króna með 46.313 áhorfendur. Ástæðan fyrir því að hún trónir efst á lista yfir tekjuhæstu myndirnar en ekki Simpsons er að það kostar meira inn á íslenskar myndir en erlendar. Simpsons skilaði hins vegar 41,6 milljónum króna í kassann. Samkvæmt tilkynningu frá SMÁ- ÍS, Samtökum myndrétthafa á Ís- landi, jukust tekjur af miðasölu á árinu 2007 um 2% frá árinu 2006 en þá hafði hún aukist um 8,7 % frá árinu 2005. Á seinasta ári minnkuðu tekjur af miðasölu í Noregi um 10%, jukust í Bretlandi um 8% og 5% í Bandaríkjunum.    Kvikmyndahúsin hafa stundumbarmað sér yfir að niðurhal á myndum af netinu taki frá þeim að- sókn en svo virðist ekki vera hér á landi. Íslendingar eru allra þjóða duglegastir við að fara í bíó en hver maður fer að meðaltali fimm sinnum í bíó á ári. Eins og búast má við voru banda- rískar kvikmyndir vinsælastar hér í fyrra með um 82 % hlutdeild af markaðinum. Enda boðið upp á fátt annað en bandarískar myndir nema um sérstakar kvikmyndahátíðar sé að ræða. Íslenskar myndir eru þó með um 9% hlutdeild og ná þrjár inn á topp 20.    Bíómenning Íslendinga kemstreglulega í umræðuna og þykir neytendavitund þeirra dofin í þeim efnum sem mörgum öðrum. Það má til dæmis spyrja sig af hverju það kostar jafn mikið inn á ótextaða mynd, eins og I’m not there sem er nú í sýningu, eins og textaða. Ætti það sem sparast í þýðingarlaun ekki að skila sér í lægra miðaverði? Hvers vegna sættum við okkur við langar auglýsingar fyrir hverja mynd og hlé í hápunkti hennar? Ætti ekki að vera ódýrara inn á myndir með auglýsingum og hléi því bíóhúsin fá auka tekjur af því. Hlé- menningin hefur reyndar verið lengi í umræðunni og finnst mér persónulega að það ætti að vera val um sýningar með eða án hlés. T.d sýning kl. 20 er með hléi en ekki kl. 18 og 22, en bíóhúsin sjá líklega ekki hag sinn í því að missa sjopputekj- urnar. Ef við gerum ráð fyrir að hver manneskja af þeim 1.477.278 sem fóru í bíó á seinasta ári hafi eytt að meðaltali 500 kr. í sjoppunni í hverri ferð fá bíóhúsin 738.639.000 kr. í kassann fyrir utan miðaverð, dágóð upphæð það. Sem háskólanemi í nokkur ár fór ég ýmsar leiðir til að spara aurinn. Meðal annars stóð ég í smygli í hvert skipti sem ég fór í bíó. Var með heimapoppað popp í tösku og vatn á flösku. Bíófélagana setti oft rauða þegar ég dró svo herlegheitin upp inni í salnum og skildu ekkert í nísk- unni í mér að vilja ekki láta bíóhúsin fá meira af mínum peningum með því að versla í okursjoppunni. Ég hafði oft áhyggjur af því að vera „tekin“ fyrir þetta athæfi mitt af bí- ólöggunni og gert að greiða sekt fyrir að þau græddu ekki meira á mér.    Þó að margir vildu eflaust sjábreytingar í rekstri bíóhús- anna, neytendum til góða, er ánægjuefni að þeim gangi svona vel og gaman að íslensk kvikmynd sé sú tekjuhæsta annað árið í röð, en Mýr- in trónaði á aðsóknartoppnum eftir árið 2006. Bíóþjóð með dofna neytendavitund AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir » Íslendingar eyddu1.104.938.460 krón- um árið 2007 í aðgangs- eyri í kvikmyndahús landsins og 1.477.278 miðar voru seldir. 4 % ' 5( . 67(        ' !   () *) +) ,) -) .) /) 0) 1) (2) (() (*) (+) (,) (-) (.) (/) (0) (1) *2)   3 4 !  !"  !  5  6  7!#8  9 ! $ :4! # !!  '!$ ,)2 #! 9 +22 9 );! < $ : 7  8!  !9 !8 ! 83 ;!= 7!; !>8 8 ?   @#3 ? $ 9!!7!?   #!  ; !  A : '  '  '# '  '  '# '# '  '  '  '# '# '  &1  '  '# &1  '  '# '  @ 8:  B  !  ,.)+(+ -*).-* -/)2./ -2)2(- -2)+0. ++)0+- +()2(/ +2)+1, *1)(*- *.),0. */)**1 (/)/.( *2).1- *+)0+/ *1)/./ (,)./. (1)(-/ *2),22 (0)*,+ (0)-2- 9B3   3 ,-C. ,*C. ,(C. +0C, +*C. */C( *,C+ **C+ *2C1 *2C* *2C* (1C. (1C+ (0C0 (/C- (.C. (,C. (,C- (+C0 (+C0 ingveldur@mbl.is Skemmtileg Astrópía var tekjuhæsta myndin á Íslandi í fyrra. BARNASTARF KIRKJUNNAR ALLA SUNNUDAGA Í KIRKJUNNI ÞINNI Fræðsla við hæfi barna og foreldra Söngur gleði gaman Nánar í kirkjustarfsdálki Morgunblaðsins á laugardögum. Einnig á Kirkjan.is/barnastarf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.