Morgunblaðið - 19.01.2008, Side 20

Morgunblaðið - 19.01.2008, Side 20
20 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI LANDIÐ  Þórunn Elísabet Sveinsdóttir opnar sýninguna Blíðlyndi í Galleríi BOXI í dag kl. 16.  Dagrún Matthíasdóttir, sem er á myndinni að ofan, opnar í dag kl. 17 sýningu sína, Lífið er saltfiskur, á Veggverki og í DaLí Gallery.  Guðrún Pálína Guðmundsdóttir opnar í dag málverkasýninguna Andlit í Jónas Viðar Galleríi kl. 14.30.  Sýningin Búdda er á Akureyri verður opnuð í Listasafninu kl. 15 í dag. Nánar er fjallað um sýninguna í Lesbók Morgunblaðsins í dag.  Þorvaldur Þorsteinsson opnar í dag kl. 14 myndlistarsýninguna Leikmyndir í Populus tremula. Um leið kemur út bókin Mónólógar eft- ir Þorvald. Sýningin er bara opin í dag og á morgun, kl. 14-17.  Ástralska listakonan Amy Rush opnar sýninguna Rainbow Holo- grams í Deiglunni í dag kl. 14. Einnig verður Djonam Saltani, listamaður frá Frakklandi, með opna gestavinnustofu á sama tíma.  Í tilefni af 180 ára starfsafmæli Amtsbókasafnsins á Akureyri í fyrra eru nú til sýnis 180 bækur, ein frá hverju starfsári safnsins á ár- unum.  Ólafur Páll Jónsson heimspek- ingur verður með fyrirlestur í dag kl. 13.30 í Bókaverslun Eymunds- sonar í Hafnarstræti og á morgun verður hann á heimspekikaffihúsi á Bláu könnunni kl. 11. Árvakur/Skapti Hallgrímsson Saltfiskur og heimspeki DAGNÝ Linda Kristjánsdóttir úr Skíðafélagi Akureyrar var kjörin íþróttamaður Akureyrar fyrir nýlið- ið ár. Þetta var kunngjört í hófi sem Íþróttabandalag Akureyrar hélt í samstarfi við íþróttaráð Akureyrar í Ketilhúsinu í vikunni. Dagný Linda hefur verið fremsta skíðakona Íslendinga undanfarin ár. Kynnir hófsins í vikunni sagði m.a. um Dagnýju: „Stærsta verkefni hennar á árinu 2007 var heimsmeist- aramótið í Åre í Svíþjóð þar sem hún stóð sig með miklum ágætum í harðri keppni. Þar varð Dagný í 26. sæti bæði í bruni og risasvigi og 45. sæti í stórsvigi. Dagný Linda varð tvisvar í hópi 20 bestu á Evrópubik- armótaröðinni og tók alls þátt í 18 heimsbikarmótum á árinu. Hún náði frábærum árangri á sænska meist- aramótinu þar sem hún varð í þriðja sæti í bruni og fimmta sæti í tví- keppni. Þá varð hún þrefaldur Ís- landsmeistari.“ Dagný Linda er er- lendis við æfingar og keppni og móðir hennar, Kolbrún Ingólfsdótt- ir, tók við viðurkenningu hennar. Annar í kjörinu að þessu sinni varð Davíð Búi Halldórsson, blak- maður í KA. Fram kom í hófinu að Davíð Búi hefði um árabil verið einn albesti leikmaður KA í blaki. „Síð- astliðið ár var þó óvenjuglæsilegt hjá honum og er það samdóma álit flestra að hann hafi verið besti leik- maður Íslandsmótsins 2006-2007 og hann var kjölfestan í liði KA í úrslita- leik bikarkeppninnar þá um vorið. Að auki skoraði hann flest sóknar- stig á Íslandsmótin og vann reyndar heildarstigakeppnina með yfirburð- um. Blaksamband Íslands valdi hann blakmann ársins 2007,“ sagði kynnir kvöldsins um Davíð Búa. Þriðja í kjörinu að þessu sinni var Audrey Freyja Clarke úr Skauta- félagi Akureyrar. Fram kom í hófinu að listskautaíþróttin væri ung á Ak- ureyri; þegar Audrey Freyja Clarke hóf ferilinn á útisvelli árið 1997 voru 6 iðkendur en eru nú yfir 130 og það væri ekki síst fyrir góða fyrirmynd hennar sem iðkanda, keppanda og þjálfara. „Hún hefur orðið Íslands- meistari í Juniorflokki fimm sinnum á síðustu sex árum og í haust varð hún bikarmeistari í Seniorflokki. Síðastliðið vor var Audrey Freyja valin í fyrsta landslið Íslands í þess- ari íþrótt,“ var sagt um skauta- konuna. Íþróttaráð Akureyrar veitti fjórar heiðursviðurkenningar á hátíðinni. Helga Sigurðardóttir og Benedikt Sigurðarson fengu viðurkenningu fyrir störf sín í þágu sundíþróttar- innar, Guðmundur Brynjarsson fyrir starf og uppbyggingu skotíþróttar- innar og Gunnar Hallsson fékk við- urkenningu fyrir störf og uppbygg- ingu siglingaíþrótta á Akureyri. Dagný Linda íþrótta- maður Akureyrar Ljósmynd/Þórir Tryggvason Kjörið Viðar Jónsson með viðurkenningu Audreyjar Freyju Clarke, Davíð Búi Halldórsson, Kolbrún Ingólfsdóttir, móðir Dagnýjar Lindu, Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri og Þröstur Guðjónsson, formaður ÍBA. Í HNOTSKURN »Fjórtán voru tilnefndir í kjör-inu. Auk þriggja efstu: Andri Snær Stefánsson, Baldvin Ari Guðlaugsson, Baldvin Þór Gunn- arsson, Bjarki Gíslason, Bryndís Rún Hansen, Björn Guðmunds- son, Haukur Svansson, Kristján Skjóldal, Óðinn Ásgeirsson, Sig- urður Áki Sigurðsson og Stefán Thorarensen. Best Dagný Linda Kristjánsdóttir. MÆLINGAR við Glerárgötu á Ak- ureyri sýna að svifryk í andrúmslofti var a.m.k. 40 daga yfir heilsuvernd- armörkum á nýliðnu ár, og liggja þó enn ekki fyrir tölur vegna síðustu viku ársins. Þess ber einnig að geta að mælirinn, sem staðsettur er á mótum Tryggvabrautar og Glerár- götu, var bilaður frá maí til septem- ber en ástandið er þó jafnan talið best yfir sumarið. Ástandið var skárra í fyrra en árið þar áður þegar svifrykið var yfir heilsuverndarmörkum 50 daga (en þá var mælirinn reyndar líka bilaður yfir sumartímann). Leyfilegur fjöldi yfir mörkunum var þá að hámarki 29 dagar en 23 í fyrra. Lögum samkvæmt verður há- marksfjöldi kominn niður í 7 daga árið 2010. „Það er auðvitað ánægjulegt að dögum yfir heilsuverndarmörkum fækki en ástandið er samt alls ekki nógu gott,“ sagði Alfreð Schiöth, heilbrigðisfulltrúi Norðurlands eystra í samtali við Morgunblaðið. Alfreð segir Akureyrarbæ hafa gripið til ráðstafana til að minnka svifryk, til dæmis með því að auka þrif á götum og von sé á nýjum, fær- anlegum svifryksmæli sem Akureyr- arbær og ríkið kaupi saman. Með því að geta mælt á mismunandi stöðum í bænum gefist betri heildarmynd af ástandinu. Eins og áður hefur komið fram er svifryk slæmt fyrir fólk með lungna- sjúkdóma og Alfreð segir sænska rannsókn sýna fram á að svif- ryksmengun verður fleiri Stokk- hólmsbúum að aldurtila en umferð- arslys í borginni; svifryk er sem sagt hættulegra en bílaumferð. Þá segir hann svifryk geta aukið hættu á heilablóðfalli og hjartaáföllum. Svifryk enn allt of mikið Eftir Björn Björnsson Sauðárkrókur | Ekki liggur fyrir hvort hægt verður að endurbyggja húsið við Aðalgötu 16 á Sauðárkróki en það stórskemmdist í eldi í fyrri- nótt. Húsið er tæplega 120 ára gamalt og eitt af merkustu húsum Sauðár- króks. Þar var lengi rekin verslun en veitingastaðurinn Kaffi Krókur síð- ustu árin. Rétt eftir klukkan hálf eitt aðfara- nótt föstudags barst til Neyðarlín- unnar tilkynning frá vegfaranda um að reyk legði frá suðurgafli hússins á Aðalgötu 16 á Sauðárkróki. Þegar var kallað út allt lið Brunavarna Skaga- fjarðar á Sauðárkróki, og síðar var kallað út viðbótarlið frá Hofsósi og Varmahlíð. Að sögn Vernharðs Guðnasonar slökkviliðsstjóra reynd- ist erfitt að komast að eldinum, en eft- ir að það tókst, náðist fljótlega að slökkva eldinn og var lögreglu afhent- ur vettvangur á fimmta tímanum. Vernharð sagði að ljóst hefði verið að eldur var laus á efri hæð hússins en illa hefði gengið að komast að honum með þeim tækjum sem liðið hafði yfir að ráða. Þá var brugðið á það ráð að fá kranabíl með krabba og með honum tókst að rjúfa þekjuna og eftir það var eftirleikurinn auðveldari, og var slökkvistarfi að mestu lokið rétt um klukkan þrjú. Vernharð sagðist mjög ánægður með störf sinna manna, allt hefði gengið eins vel og mögulegt hafi verið, utan það að einn liðsmaður á vettvangi varð fyrir því óhappi að járnstoð féll á öxl hans og bak og var sá fluttur á Heilbrigðisstofnunina, en meiðsl hans voru óveruleg og var hann útskrifaður að morgni. Sögufrægt hús Húsið Aðalgata 16 er talið eitt af merkari húsum á Sauðárkróki, en það var byggt af Vigfúsi Guðmundssyni á árunum 1887 til 1890 og þjónaði á byggingartíma sínum ýmsum hlut- verkum, meðal annars sem geymslu- hús, en auk þess voru í því hálfbyggðu haldnar ýmsar samkomur og settir upp sjónleikir. Fullbyggt var húsið selt Jóhannesi Ólafssyni sýslumanni, föður dr. Alex- anders Jóhannessonar síðar háskóla- rektors, sem fluttist til Sauðárkróks frá Gili í Borgarsveit. Um alllangt skeið varð húsið aðsetur sýslumanna Skagafjarðar, skrifstofa embættisins og fangelsi. Auk Jóhannesar bjuggu á Aðalgötu 16 sýslumennirnir Eggert Ólafur Briem, þá Páll Vídalín Bjarna- son og loks Guðmundur Björnsson. Síðla árs 1912 var húsið selt fyrir átta þúsund krónur, og var kaupand- inn Jörgen Frank Michelsen úrsmið- ur og bjó hann í því ásamt fjölskyldu sinni en rak auk þess úrsmíðaverk- stæði og verslun. Þá voru ýmsar verslanir auk úr- smíðaverslunarinnar reknar í húsinu um lengri eða skemmri tíma og má þar nefna Sápuhúsið og verslun Jó- hönnu Blöndal. Þegar fjölskylda Franks Michelsen flutti frá Sauðárkróki 1945 keypti húsið Gunnþórunn Sveinsdóttir frá Mælifellsá og stundaði þar verslunar- störf. Gunnþórunn réðst í að byggja við húsið til norðurs og jók þar með verslunarrýmið. Síðar komst Aðalgata 16 í eigu Kaupfélags Skagfirðinga sem enn byggði við húsið til austurs og rak þar byggingavöru- og raftækjaverslun. Á fyrri hluta níunda áratugar síð- ustu aldar flutti Kaupfélag Skagfirð- inga alla starfsemi úr húsinu og í um áratug var húsið ónotað og lenti í nokkurri niðurníðslu en þá keyptu hjónin María Björk Ingvadóttir og Ómar Bragi Stefánsson það, endur- gerðu verulega og opnuðu veitinga- staðinn Kaffi Krók hinn 24. maí 1994. Núverandi eigendur eru Alda Kristinsdóttir og Jón Daníel Jónsson veitingamaður og eignuðust þau húsið í nóvember 2001. Hvatt til uppbyggingar Ljóst er að tjón eigenda Aðalgötu 16 er mjög mikið og tilfinnanlegt, en auk þess að hafa skapað veitinga- húsinu enn betra orðspor, hafði Jón Daníel nýverið gert samning við sveit- arfélagið Skagafjörð um framleiðslu á skólamáltíðum fyrir Árskóla á Sauð- árkróki, sem átti að hefjast nú fyrsta febrúar. Gert var ráð fyrir að hefja uppsetningu á nýjum tækjum í eld- húsi veitingastaðarins í byrjun næstu viku svo unnt yrði að uppfylla samn- inginn, en nú eru öll áform þar um í verulegu uppnámi. Jón Daníel sagði í samtali við fréttavefinn mbl.is í gær að hann ætti eftir að átta sig á framhaldinu. Hann sagðist hafa skyldum að gegna við við- skiptavini og þyrfti að keyra rekstur- inn áfram. Enginn sem haft var samband við taldi unnt að segja fyrir um hvort unnt væri að endurbyggja þetta hús, enda unnu lögreglumenn enn að rannsókn á upptökum eldsins síðdegis í gær og þá hafði tryggingafélag eigenda ekki átt þess kost að vinna tjónamat. Unnar Ingvarsson skjalavörður segir á heimasíðu sinni: „Aðalgata 16 er með sögufrægustu húsum Sauðár- króks. Það er von þess er þetta skrifar að húsið verði endurbyggt á uppruna- legum stað. Væri vel við hæfi að Blön- dalshús sem stóð við hlið Aðalgötu 16 fengi aftur þegnrétt sinn á lóðinni norðan við. Þau hús endurbyggð yrðu sannkölluð staðarprýði.“ Sögufrægt hús stórskemmt eftir eldsvoða Morgunblaðið/Björn Björnsson Brunarústir Húsið Aðalgata 16 er stórskemmt af eldi. Svona leit húsið út í gærmorgun. Ekki liggur fyrir hvort hægt er að endurbyggja húsið. Ljósmynd/Óli Arnar Brynjarsson Kaffi Krókur Mikið líf var oft í og við Kaffi Krók en veitingastaðurinn var rekinn í gömlu verslunarhúsi. Myndin var tekin sumarið 2004.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.