Morgunblaðið - 10.02.2008, Síða 21
Það er gömul saga og ný að
fremstu sparkendur beygi tuðruna
og sveigi með innanfótarspyrnum
en hrein ristarspyrna af þessu tagi,
þar sem boltinn rís fyrstu metrana
en missir svo skyndilega hæð eins
og allt loft sé úr honum, er sjaldséð.
„Hvert er leyndarmálið? Það gef
ég ekki upp,“ sagði Ronaldo eftir
leikinn og glotti út í annað. „Ég get
þó upplýst að allt veltur þetta á lík-
amsstöðunni, tilhlaupinu og aðkom-
unni að knettinum.“
Það skýrir ritúalið fyrir hverja
spyrnu. Fjögur stór skref til baka,
djúpan andardrátt og myndastyttu-
leikinn. Þetta eru vísindi.
Niður í svörðinn
Glöggir sparkrýnendur hafa veitt
því athygli að í stað þess að leggja
knöttinn frá sér, líkt og flestir
aukaspyrnendur, þrýstir Ronaldo
honum niður í svörðinn. Þetta gerir
það að verkum að þegar leikmað-
urinn nálgast knöttinn mjakar
þunginn frá vinstri fætinum honum
lítillega upp úr grasinu sem aftur
gerir Ronaldo kleift að lyfta knett-
inum með þeim hægri yfir varn-
arvegginn. Spyrnan fær í raun eig-
inleika spyrnu sem tekin er á lofti,
rís fyrst en missir svo skyndilega
hæð í tæka tíð áður en knötturinn
syngur í netinu. (Sjá grafík.)
Þessa tækni æfir Ronaldo iðulega
að loknum hefðbundnum æfingum
hjá United og hefur Wayne Roo-
ney, Ryan Giggs, Nani og Anderson
til skrafs og ráðagerða.
Og viti menn, þetta er að skila
árangri. Ronaldo hefur gert sex
mörk úr aukaspyrnum á ferli sínum
í úrvalsdeildinni og hafa fjögur
þeirra komið á undanförnum fjór-
tán mánuðum. Meðan kappinn var
að fínpússa tæknina voru áhorfend-
ur á Old Trafford líklegri til að leita
skjóls undir sætunum fremur en
grípa í dauðans ofboði til mynda-
vélasímanna, eins og þeir gera nú.
Sé horft til tölfræðinnar stendur
Ronaldo að vísu forvera sínum hjá
United, David Beckham, langt að
baki hvað aukaspyrnur varðar. 11%
deildarmarka hans hafa komið úr
slíkum spyrnum (6 af 54) en 24%
hjá Beckham (15 af 63). Þetta hlut-
fall gæti þó átt eftir að jafnast á
komandi misserum.
En það er ekki bara spyrnugetan
sem gerir Ronaldo að góðum leik-
manni. Knatttækni hans er vita-
skuld einstök og árásareðlið með
þeim hætti að hann minnir á köflum
á hlébarða í antilópuhjörð. And-
stæðingarnir sundrast í allar áttir.
Þá er kappinn afburða skallamaður
en sex af 27 mörkum sínum á yf-
irstandandi leiktíð hefur hann gert
með höfðinu.
27 mörk segi ég og skrifa. Og það
er bara 10. febrúar. Markamet
miðvellings á einu tímabili hjá
United á enginn annar en
George Best en hann kom
tuðrunni 32 sinnum í netið
fyrir réttum fjörutíu árum.
Komi ekkert óvænt uppá
er næsta víst að Ronaldo mun
bæta þann árangur. Raunhæf-
ara er að horfa til félagsmets
Denis Laws sem gerði 46 mörk vet-
urinn 1963-64. Næstur honum kem-
ur Ruud van Nistelrooy, aldavinur
Ronaldos, sem var 44 sinnum á
skotskónum leiktíðina 2002-03. Báð-
ir voru þeir vitaskuld miðherjar.
Fá mörk gegn þeim bestu
Helsti ljóður á ráði Ronaldos er,
að sumra mati, rýrt markaframlag
hans í leikjum gegn sterkustu lið-
unum í úrvalsdeildinni, þ.e. hinum
þremur „stóru“. Í níu leikjum gegn
Chelsea og sjö gegn Liverpool hef-
ur honum enn ekki tekist að skora.
Tíu sinnum hefur Ronaldo glímt við
Arsenal og gert í þeim leikjum þrjú
mörk. Athygli vekur að þetta eru
aðeins þrjú mörk í 26 leikjum.
Það er gömul saga og ný að As-
hley Cole og Gaël Clichy eigi í fullu
tré við Ronaldo en skýtur ekki
skökku við að John Arne Riise hafi
verið að þvælast fyrir honum? Á
móti kemur að það eru fleiri menn í
vörn en vinstri-bakvörðurinn.
Ronaldo til málsbóta má segja að
hann var ekki keyptur til Man-
chester United sem markaskorari
sumarið 2003 og byrjaði í raun ekki
að raða inn mörkum fyrr en á síð-
ustu leiktíð. Fullyrða má að hann sé
kominn fram úr öllum væntingum í
vetur. „Við horfðum fyrst og fremst
á eiginleika hans sem útherja, hæfi-
leikann til að ráðast á varnir. Það
var helsta ástæðan fyrir kaupun-
um,“ sagði Sir Alex þegar hann
horfði í baksýnisspegilinn á dög-
unum. Mörkin eru bara uppbót.
„Hann er ennþá að leika sem út-
herji og gefur okkur mikla breidd.
Ógnar stöðugt af kantinum. Ro-
naldo er alltaf að bæta sig, ákvarð-
anatakan er góð og stöðugt að
batna. Svo kann hann að klára fær-
in sín.“
Ronaldo er sannarlega í góðum
höndum hjá manni sem sættir sig
ekki við neitt nema það besta. Sir
Alex heldur sínum manni líka við
efnið þá sjaldan hann slær slöku við
á æfingum. Gleymir sér eitt augna-
blik yfir geldollum og glingri.
„Heyrðu lagsi, ætlar þú ekki að
verða besti knattspyrnumaður í
heimi?“
! " #
$! %
"%
&
!& #
'
()%
& $!
% #
*
!
&
%
! $!
#
»Hann er ennþá aðleika sem útherji
og gefur okkur mikla
breidd. Ógnar stöðugt
af kantinum. Ronaldo
er alltaf að bæta sig,
ákvarðanatakan er
góð og stöðugt að
batna. Svo kann hann
að klára færin sín.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 2008 21
FRÁBÆRT FERÐASUMAR!
Bókaðu strax og tryggðu þér lægsta
verðið og bestu gistinguna!
Tenerife
– á verði sem hefur ekki sést áður á Íslandi!
Frá 38.495
Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v.
2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára á Granada Park
íbúðahótelinu ***, 27. maí í 2 vikur.
Ótrúlegt verð!
2 vikur
Bibione
– ítalska strandperlan!
Frá 53.595
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11
ára, Vikuferð, 25. maí, 1. júní, 31. ágúst, 7., 14.
og 21. september, Planterium Village.
Gisting í sérflokki
100% ánægja!
Búlgaría – Golden Sands
– þú færð hvergi meira frí fyrir peninginn
Frá 59.995
Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2
fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í fjölskylduherbergi
í viku með „öllu inniföldu“, 2. eða 30. júní, 7. eða
14. júlí eða 18. ágúst, Hotel Kristal.
Frábært verð – allt innifalið
Þökkum frábærar viðtökur – fyrstu brottfarir að seljast upp!
Salou & Pineda
– sólarperlurnar á Costa Dorada
Frá 39.995
Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v.
2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð í viku,
23. eða 30. maí, 29. ágúst, 5., 12. eða 19. sept.,
Cye Holiday Center
Frábært verð
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík · Sími: 591 9000
www.terranova.is · Akureyri, sími: 461 1099
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Frá 52.195
Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti,
m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í fjöl-
skylduherbergi í viku með „öllu inniföldu“,
26. maí eða 25. ágúst, Hotel Kristal.
www.terranova.is
þú getur bókað og skoðað sumarbæklinginn á netinu!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
19
67
Birt með fyrirvara um prentvillur. Terra Nova áskilur sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.