Morgunblaðið - 12.10.2008, Page 6

Morgunblaðið - 12.10.2008, Page 6
6 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is „ÞETTA var orðin spurningin um að gera þetta eða hætta. Það var ann- aðhvort – eða. Ef við hefðum ekki byggt upp hefði orðið að draga smám saman úr starfseminni,“ segir Björn Sveinsson, hrossabóndi á Varmalæk í Skagafirði. Björn og sambýliskona hans, Magnea K. Guð- mundsdóttir, hafa byggt glæsilega aðstöðu fyrir hrossarækt sína og ferðaþjónustu; hesthús og reiðhöll sem þau nefna Hrímnishöllina. „Ég var með lítið og gamalt hest- hús og þurfti að breyta til. Aðstæður eru orðnar gjörbreyttar frá því sem áður var. Nú þarf að vera hægt að temja allt árið. Við ákváðum að byggja upp frá grunni,“ segir Björn. Húsið reis á skömmum tíma. Fyrsta skóflustungan var í lok september á síðasta ári og húsið tekið í notkun í júní. Fyrsta sölusýningin í húsinu var síðan haldin á föstudaginn fyrir Laufskálarétt í haust. Í Hrímnishöllinni og á velli fyrir utan hana er góð vinnuaðstaða til tamninga og umhirðu hestanna. Þar er einnig aðstaða til að taka á móti ferðahópum. Björn tók á sínum tíma þátt í að þróa vinsæla hestasýningu, „Til fundar við íslenska hestinn“, sem lengst af var á Vindheimamel- um á sumrin. Nú hafa þau keypt þessa sýningu og eiga nú möguleika á að bjóða upp á hana í Hrímnishöll- inni allt árið. Hestasýningarnar eru aðeins dæmi um þá möguleika sem Björn og Magnea sjá í Hrímnishöll- inni og hyggjast þróa í framtíðinni. Vill vera sjálfs síns herra Bygging mannvirkis eins og Hrímnishallarinnar er mikið átak fyrir einstaklinga, eins og Björn og Magneu. Þau undirbjuggu fram- kvæmdina vel og unnu eins mikið í henni sjálf og hægt var. „Maður fer ekki út í svona framkvæmd nema vera bjartsýnn og ákveðinn,“ segir Björn og Magnea bætir við: „Við höfðum óbilandi trú á því að við gæt- um gert þetta. Við vorum svo heppin að bankastofnun hér í Skagafirði hafði trú á verkefninu og mikilvægi þess fyrir Skagafjörð og vildi taka þátt í því með okkur,“ segir Magnea. Mikið er um að fjársterkir menn, innlendir og erlendir, kaupi jarðir og byggi upp aðstöðu, stundum í sam- vinnu við hrossaræktendur og tamn- ingamenn. Björn segir að slík sam- vinna hafi sums staðar komið vel út og verið til góðs fyrir sveitirnar en telur að það henti sér ekki. „Ég held að ég sé orðinn of gamall til að setja mig í þannig stöðu. Ég þrífst á því að vera sjálfs míns herra í hrossarækt- inni. Þegar aðrir eru komnir með meirihlutann ræður maður ekki lengur. Það hlýtur að vera meira hvetjandi fyrir okkur að láta rekst- urinn ganga þegar við berum alla ábyrgðina sjálf. Við stöndum og föll- um með þessu,“ segir Björn. Með góðan efnivið Björn og Magnea segjast lítið hafa orðið vör við samdrátt vegna efna- hagslægðarinnar margumtöluðu. „Ég er bara brattur. Við erum með góðan efnivið og fullt af hrossum til sölu. Það skiptir mestu máli að vera með fyrsta flokks hross því góð hross seljast alltaf en meðalhross og léleg síður. Ég hef haft þá stefnu að vera frekar með fáar hryssur en góð- ar í uppeldinu. Mér finnst vera fram- farir í hrossaræktinni hér,“ segir Björn. Hrossaræktin á Varmalæk stend- ur á gömlum merg. Björn starfaði með föður sínum, Sveini Jóhanns- syni, frá unga aldri. „Pabbi var alltaf með mörg hross. Ég byrjaði snemma að rækta sjálfur,“ segir Björn. „Það er stórkostlega skemmtilegt að vinna við það sem manni finnst skemmtilegt og sjá hvernig þetta þróast. Það fylgir því spenna að æxla saman mismunandi einstaklinga og sjá hvað út úr því kemur. Heppnin spilar þar líka mikið inn í,“ segir Björn. Möguleikar til framtíðar Björn Sveinsson og Magnea Guðmundsdóttir á Varmalæk leggja allt undir til að skapa sér góða aðstöðu til að sinna vinnunni sem jafnframt er aðaláhugamálið Góð aðstaða Hrímnishöllin er ekki einungis hönnuð sem hesthús og reiðhöll heldur er þar hugsað fyrir móttöku gesta. Þetta er vinnustaður Björns Sveinssonar hrossabónda. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason LAUFSKÁLARÉTTARHELGIN í Skagafirði hefur sérstaka þýðingu í huga Magneu Guðmundsdóttur og Björns Sveinssonar. Ekki eingöngu vegna þeirrar hátíðar hesta- áhugafólks sem hún er, heldur vegna þess að stóðréttirnar leiddu þau saman. Magnea er Vestfirðingur. Var búsett á Flateyri þar sem hún var í hreppsnefnd og síðar í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar. Hún varð þjóð- þekkt á einum sólarhring, sem odd- viti, þegar snjóflóðin féllu á byggð- ina á Flateyri haustið 1995. Magnea er úr sveit og hefur allt- af haft áhuga á hestum. Það var þó að frumkvæði systur hennar sem hún lagði land undir fót og fór í Laufskálarétt haustið 2000. Þau Björn rugluðu reytum saman árið eftir þegar Magnea flutti að Varmalæk. Hestarnir leiddu þau saman Saman Magnea Guðmundsdóttir og Björn Sveinsson standa í stórræðum á Varmalæk. NAFN reiðhallarinnar á Varmalæk er til heiðurs miklum gæðingi sem tengist nafni Björns Sveinssonar ávallt, Hrímni frá Hrafnagili. Hugmyndin að höllin bæri nafn Hrímnis kom upp á byggingartímanum en Björn og Magnea voru ekki sérstaklega að hugsa um það. Þau ákváðu heitið skömmu fyrir opnunina í júní. „Ég taldi nafnið við hæfi. Þetta eru tveir tímamótaatburðir í mínu lífi, tilkoma Hrímnis á sínum tíma og síðan Hrímnishallarinnar,“ segir Björn. Hrímnir frá Hrafnagili var einn fegursti og mesti gæðingur Íslandssögunnar. Björn eign- aðist Hrímni með föður sínum 1980 og síðar alfarið og þeir fylgdust að allt tíð, þangað til Hrímnir var felldur á síðasta ári, 32 vetra. Ekki er þó langt á milli þeirra því hesturinn var heygður undir húsveggnum á Varmalæk. „Hrímnir kom mér á framfæri sem hestamanni. Það vissu allir áhugamenn um íslenska hestinn, hvar sem er í heiminum, hver Hrímnir var og ég fékk stundum að fljóta með,“ segir Björn. „Hrímnir kom mér á framfæri“ Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is EINS og málum er komið er brýnt að leita eft- ir láni og aðstoð hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF), að mati Ólafs Ísleifssonar, hagfræðings og kennara við Háskólann í Reykjavík. Hann sat í framkvæmdastjórn sjóðsins á árunum 2002 til 2003. Óski Ísland eftir aðstoð IMF gerir Ólafur ráð fyrir að sérfræðingar frá sjóðnum muni að- stoða við gerð efnahagsáætlunar sem hafi að markmiði að leggja traustan grundvöll að stöð- ugleika og endurreisn íslensks efnahagslífs. Áætlunin muni fela í sér aðgerðir sem studdar verði fé frá sjóðnum. Hugsanlega geti aðkoma sjóðsins dregið fleiri lánveitendur að borðinu sem telji sér kleift að lána hingað fé í krafti þess að IMF geri það. Sendinefndir IMF hafa framkvæmt árlega skoðun á efnahagslífinu hér í samræmi við eft- irlitshluverk sjóðsins. Óski Íslendingar eftir láni IMF mun sjóðurinn koma hingað í öðru hlutverki, það er sem lánveitandi og ráðgjafi. Ólafur segir það sérstaklega athyglisvert að í nýjustu skýrslu sendinefndar IMF frá því í júlí síðastliðnum komi fram að langtíma- horfur Íslendinga í efna- hagsmálum séu „öfunds- verðar“. „Það er ljóst að sjóðurinn telur hér mjög góðan grund- völl til þess að byggja á,“ sagði Ólafur. „Ég geri ráð fyrir að efnahagsáætlun sem yrði samin í sam- vinnu við íslensk stjórnvöld tæki mið af þessu áliti sjóðsins sem hann hefur lýst skýrt og skorinort í mjög vandaðri skýrslu.“ Skýrslan var nýlega rædd í framkvæmdastjórn IMF. Ólafur telur að í fyrsta lagi muni IMF leggja hér drög að nýrri stefnu í gjaldeyris- og pen- ingamálum. Hún muni leysa af hólmi þá stefnu sem fylgt hefur verið frá því 2001 með fljótandi krónu og verðbólgumarkmiði. Sú tilraun hefur mistekist að mati Ólafs líkt og hrun krónunnar ber vitni um. „Ný skipan í gjaldeyris- og peningamálum þarf að vera studd raunhæfri stefnu í fjár- málum ríkisins,“ sagði Ólafur. „Ég geri ekki ráð fyrir að af hálfu sjóðsins verði af okkur krafist annars en þess sem nauðsynlegt og skynsamlegt er að gera við þessar aðstæður. Auk þess geri ég ráð fyrir því að þessi áætlun, studd lánsfé sjóðsins, geti laðað aðra að sem þátttakendur í þessu verkefni. Niðurstaðan gæti orðið sú að Íslendingar muni leggja grundvöll að leið út úr þessum vanda í sam- starfi við alþjóðlegar stofnanir og fleiri erlenda aðila. Mér sýnist þetta vera í vændum. Slík efnahagsáætlun fyrir Ísland gæti orðið fyr- irmynd fyrir önnur lönd í okkar heimshluta sem kynnu að rata í sambærilega stöðu.“ Ólafur telur að raunhæf áætlun um að rata út úr efnahagsvandanum, studd lánsfé IMF og fleiri, geti orðið fyrsta skrefið til þess að end- urheimta traust á íslensku efnahagslífi. „Ég tel víst að frumskilyrði af hálfu sjóðsins og annarra verði að af hálfu ríkissjóðs verði að fullu staðið við skuldbindingar sem hann hefur stofnað til í útlöndum,“ sagði Ólafur. Brýnt að leita eftir aðstoð IMF  Ólafur Ísleifsson hagfræðingur telur að verði leitað til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) muni fleiri lán- veitendur koma að borðinu  Líklega lagður grunnur að nýrri stefnu í gjaldeyris- og peningamálum Ólafur Ísleifsson hagfræðingur Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kom í árlega eftirlitsferð á liðnu sumri. Í skýrslu hennar kom fram að langtímahorfur Íslands í efnahagsmálum væru öfundsverðar. Einnig að Seðlabanki Íslands eigi áfram að fylgja aðhalds- samri stefnu í peningamálum. Nauðsyn- legt sé að efna fyrri loforð um end- urbætur á Íbúðalánasjóði. Beita þurfi aðhaldi í ríkisfjármálum. Ríki og sveit- arfélög þurfi að hægja á mikilli aukningu sem ráðgerð var í fjárfestingum hins op- inbera. Bent er á að styrkja þurfi fjárlag- arammann. Sendinefndin benti á verulega áhættu- þætti varðandi bankageirann. M.a. taldi hún að styrkja þyrfti viðbragðsáætlun vegna bankanna með því að veita Fjár- málaeftirlitinu auknar lagaheimildir. Bentu á áhættuna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.