Morgunblaðið - 12.10.2008, Page 30

Morgunblaðið - 12.10.2008, Page 30
30 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Guðna Th. Jóhannesson N ú fáiði að borga fyrir þorskastríðin. Von- andi frjósiði í hel í vet- ur. Þið eigið það skilið, helvítis þjófarnir ykk- ar.“ Þessar bölbænir í tölvupósti til ís- lensks fjölmiðils í vikunni lýsa því kannski vel hvernig þeim Bretum, sem lögðu sparifé sitt inn á Icesave- reikning, líður þessa dagana. Þær hótanir breskra ráðamanna að lög- sækja íslenskra ríkið, svo ekki sé minnst á beitingu laga sem eiga að öllu jöfnu við um hryðjuverkamenn, sýna líka þá hörku sem er hlaupin í samskipti Íslands og Bretlands. Og sannast sagna hafa þau ekki alltaf verið vinsamleg. Í ljósi þeirra efnahagshamfara sem nú geysa er nærtækt að minnast fyrst á kreppuna miklu og eftirköst hennar á fjórða áratug síðustu aldar. Íslendingar lentu þá í miklum hremmingum og leituðu lánsfjár er- lendis, meðal annars í London, há- borg viðskiptanna í Evrópu á þeim árum. En það skilaði litlu sem engu. „Ríkisstjórn Íslands á enga aðstoð skilið frá okkur,“ sögðu breskir dipló- matar. Svo kom stríðið og bjargaði efna- hag Íslands. Við hernám Breta 1940 og varnarsamning við Bandaríkin ár- ið eftir hvarf atvinnuleysi í landinu. Íslendingar sigldu auk þess með fisk til Bretlands, seldu hann þar dýru verði því engin var samkeppnin, og söfnuðu digrum sjóðum. Á sama tíma voru breskir togarasjómenn, sem höfðu sótt á Íslandsmið í um hálfa öld, að berjast á vígvöllum stríðsins. Þó ótrúlegt sé tókst Íslendingum að sólunda stríðsgróðanum á nokkr- um árum. Aftur var nauðsynlegt að leita á náðir útlendinga, meðal annars í London. Þeir voru þá til sem sögðu að smáþjóðin í norðri mætti éta það sem úti frýs. Einn embættismaðurinn rifjaði upp að snemma í stríðinu hefði verið ráðist á íslenskan togara á leið til Bretlands, Íslendingar hefðu hótað að hætta öllum siglingum og þeim hefði aðeins snúist hugur þegar breskir ráðamenn buðu enn hærra verð fyrir aflann, nauðugir viljugir. „Aðstoð til þeirra sem haga sér svona er til einskis nýt,“ sagði hann. „Þeir eru alls engir vinir í raun og græðgi þeirra á sér engin takmörk.“ Íslendingar gátu vissulega bent á að þeir færðu sínar fórnir í stríðinu. Sjómenn létu lífið í árásum Þjóðverja, fimmta hverjum togara var sökkt og nær helmingi kaupskipaflotans. Raunin var enda sú að íslenskir ráða- menn voru bænheyrðir í þetta sinn. Kalda stríðið var hafið og Íslendingar og Bretar voru bandamenn í þeirri baráttu. Sumarið 1949 fékk íslenska ríkisstjórnin lán í London, fyrst allra erlendra stjórna eftir stríðið. Stuttu síðar nöguðu Bretar sig kannski í handarbökin. Frá árinu 1901 höfðu Íslendingar búið við samning Bretlands og Danmerkur um þriggja sjómílna lögsögu um- hverfis landið en nú hófst landhelg- isbaráttan fyrir fullri alvöru. Árið 1952 lýstu íslensk stjórnvöld yfir fjög- urra mílna landhelgi. Breskir útgerð- armenn og sjómenn brugðust ókvæða við og nutu þegjandi stuðnings ráða- manna í London. Sett var lönd- unarbann á ísfisk frá Íslandi og þær efnahagsþvinganir hlutu að virka því breski markaðurinn var afar mik- ilvægur. Þegar bannið hafði verið í gildi í nokkra mánuði skrifaði starfs- maður Englandsbanka að „við erum með kverkatak á Íslendingum (og getum gengið af þeim dauðum áður en langt um líður)“. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Íslenskir ráðamenn leit- uðu nýrra markaða og fundu þann mikilvægasta þar sem þess var kannski síst að vænta því Sovétríkin buðust til að kaupa sjávarafurðir fyrir olíu og ýmsar vörur. Fyrst eftir stríð- ið höfðu Sovétmenn átt í viðskiptum við Íslendinga en hættu því snarlega þegar kalda stríðið var komið í al- gleyming og pólitískar ástæður réðu líka mestu um það að þeir ákváðu að taka upp þráðinn á nýjan leik. Vald- hafar í Moskvu vildu auka áhrif sín hér á landi og efla andstöðu við Bandaríkin og NATO. Það skipti ís- lenska ráðamenn þó litlu í hita leiks- ins. Mest um vert var að lönd- unarbannið beit ekki lengur og árið 1956 neyddust Bretar til að gefa eftir. Næsta lota hófst tveimur árum síð- ar þegar lögsagan var færð út í 12 mílur. Þá vissu breskir valdhafar af biturri reynslu að löndunarbann myndi litlu skila og því urðu þeir að bregðast öðru vísi við. Sumarið 1958, þegar útfærslan var í vændum, sagði breski sendiherrann í Reykjavík vel koma til greina að frysta allar eigur Íslendinga í breskum bönkum. Svo fór ekki en Bretar sendu herskip á miðin til að verja togara sína og tókst það sæmilega. Þeir gátu þó ekki beitt öllu afli og það fór í taugarnar á sum- um þeirra, til dæmis sendiherranum hér sem lagði til að Gullfoss, flagg- skip Íslendinga, yrði kyrrsettur næst þegar hann kæmi í breska höfn, og flugvélar Íslendinga sömuleiðis. „Hvað lögfræðingarnir hafa að segja um þetta má guð vita,“ bætti hann við, „en ég vona bara að eins og sakir standa þurfum við ekki að fara í öllu eftir lagabókstafnum“. Þessu fyrsta þorskastríði lauk árið 1961 með samningi bresku rík- isstjórnarinnar og viðreisnarstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks sem kvað meðal annars á um það að risi aftur ágreiningur um útfærslu fiskveiðilögsögunnar mætti skjóta honum til Alþjóðadómstólsins í Haag. Bretar mátu þetta ákvæði mikils og því urðu þeir bæði reiðir og undrandi áratug síðar þegar ný ríkisstjórn á Ís- landi ákvað að hunsa samninginn með öllu. Forsvarsmenn viðreisnarflokk- anna höfðu áður sagt að þannig hög- uðu „siðaðar þjóðir“ sér ekki og breskir embættismenn rifjuðu seinna upp að þeir hefðu spurt sig í for- undran: „Er ekki að marka orð og gerða samninga við Íslendinga?“ Sagan hefur sýnt að Bretar hafa ekki alltaf verið barnanna bestir í samskiptum við önnur ríki og íslensk stjórnvöld höfðu ýmislegt til síns máls. En þannig hófst annað þorska- stríðið árið 1972 þegar fiskveiði- lögsagan var færð í 50 mílur. Aftur komu herskip á miðin en í þetta sinn beittu varðskipin klippunum frægu þannig að leikurinn jafnaðist á mið- unum. Sumir í breska stjórnkerfinu – svo ekki sé minnst á togarakarlana – vildu svara með því að hertaka og jafnvel sökkva varðskipunum en staða alþjóðamála leyfði það ekki. Þróun hafréttar var Íslendingum í vil og Bretar gátu ekki beitt öllu afli gegn bandalagsþjóð í NATO. Aftur urðu þeir að gefa eftir en náðu reynd- ar málamiðlun um stundarsakir. Staðan var svipuð í síðasta þorska- stríðinu 1975-1976 þegar lögsagan varð 200 mílur og breski sjóherinn sigldi norður á bóginn eina ferðina enn. Í þetta sinn kom til harkalegra árekstra á miðunum og íslensk stjórnvöld slitu stjórnmálasambandi við Bretland. Þetta var og er eins- dæmi í samskiptum tveggja NATO- ríkja. Bretum gramdist auðvitað að Íslendingar beittu „NATO-vopninu“ á þennan hátt en þeir urðu að játa sig sigraða. Hernaðarmikilvægi Íslands var það mikið. Úthafsveiðar Breta liðu nær alveg undir lok. Togarabæirnir Grimsby, Hull og Fleetwood urðu ekki svipur hjá sjón. Þessum lyktum hafa sumir í Bretlandi ekki gleymt eins og nýliðn- ir atburðir sýna. Hvort hefnd þeirra verður sæt kemur í ljós. Ljósmynd/Friðgeir Olgeirsson Þorskastríð Freigátan Leander kemur öslandi upp að bakborðssíðu Þórs í þorskastríðinu vegna útfærslu landhelginnar í 200 mílur. Vinaþjóðir? Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Mótmæli Íslendingar mótmæla atgangi Breta á Íslandsmiðum árið 1976 og segja þeim að koma sér heim til drottn- ingar. Á skiltinu er mynd af breskri freigátu og varðskipinu Ægi, til að sýna stærðarmun skipanna. Sagan hefur sýnt að Bretar hafa ekki allt- af verið barnanna bestir í samskiptum við önnur ríki Samskipti Bretlands og Íslands á liðnum árum Höfundur er lektor við Háskólann í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.