Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1935, Side 35

Skinfaxi - 01.04.1935, Side 35
SKJXFAXI 35 ungmennafélaganna og er það eðlileg afleiðing þess loss, og hins reikula hugsunarháttar, sem svo mjög liefu einkennt síðustu tima, eins og eg' hefi áður drepið á. En meginkjarni þjóðernisstefnunnar er og verður að vera verndun og viðhald móðurmálsins. Islenzk tunga er helgasta tákn ættar og uppruna þjóðar vorrar, og það eru einmitt bókmenntir, og þar með hin gamla og göfuga tunga, sem mestá eftirtekt hefir á oss vakið meðal erlendra þjóða. Þessvegna verður það framtíðarverkefni ungmenna ■ l'élaganna, eins og á liðnum árum, að vernda málið, og gelur alls ekki talizt vansalaust, er þau reyna ekki af freinsta megni að verja það átroðslu og tízku spillts tiðaranda. Eg trúi því, að ef U. M. F. eiga eftir að ná sér aflur, og komast upp úr yfirstandandi örðugleikum, þá verði þeim það Ijóst, hversu það er áriðandi, að hinni gömlu þjóðarmenningu vorri sé sómi sýndur, þótt nú víki það lyrir öðru, meðan mestu breytingarnar eru að verða. og margt er að reyna að komast á fastari gi'undvöll. , Það mætti henda á ýmislegt í sambandi við þjóðern- ismalin, sem sjálfkjörin verkefni fyrir æskuna að vinna að, og hversu hún gæli mótað verk sin og umhverfi eft- ir þjóðlegum fornum fvrirmyndum, og þannig tengt saman i lífræna lieild það sérstæða, sem þróazt hefir með þjóð vorri í margar aldir, — og hinsvegar þarfir og kröfur hins nýja tíma. En því verður sleppt, enda efni í ihugun úl af fyrir sig. Eg hefi drepið á þjóðernismálin til að sýna, að það þarf ekki og má ekki rekast á, að sinna stærstu máluni sinnar samtíðar, — vera vakandi — og það hinsvegar, að liafa heilbrigt viðhorf til liinnar gömlu þjóðmenn- ingar, sem verið hefir aflgjafi ungmennafélaganna, og getur verið það í nútíð og framtíð. Einar Kristjánsson. 3*

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.