Skinfaxi - 01.04.1935, Qupperneq 35
SKJXFAXI
35
ungmennafélaganna og er það eðlileg afleiðing þess loss,
og hins reikula hugsunarháttar, sem svo mjög liefu
einkennt síðustu tima, eins og eg' hefi áður drepið á.
En meginkjarni þjóðernisstefnunnar er og verður að
vera verndun og viðhald móðurmálsins. Islenzk tunga
er helgasta tákn ættar og uppruna þjóðar vorrar, og
það eru einmitt bókmenntir, og þar með hin gamla og
göfuga tunga, sem mestá eftirtekt hefir á oss vakið
meðal erlendra þjóða.
Þessvegna verður það framtíðarverkefni ungmenna ■
l'élaganna, eins og á liðnum árum, að vernda málið, og
gelur alls ekki talizt vansalaust, er þau reyna ekki af
freinsta megni að verja það átroðslu og tízku spillts
tiðaranda. Eg trúi því, að ef U. M. F. eiga eftir að ná
sér aflur, og komast upp úr yfirstandandi örðugleikum,
þá verði þeim það Ijóst, hversu það er áriðandi, að hinni
gömlu þjóðarmenningu vorri sé sómi sýndur, þótt nú
víki það lyrir öðru, meðan mestu breytingarnar eru
að verða. og margt er að reyna að komast á fastari
gi'undvöll. ,
Það mætti henda á ýmislegt í sambandi við þjóðern-
ismalin, sem sjálfkjörin verkefni fyrir æskuna að vinna
að, og hversu hún gæli mótað verk sin og umhverfi eft-
ir þjóðlegum fornum fvrirmyndum, og þannig tengt
saman i lífræna lieild það sérstæða, sem þróazt hefir
með þjóð vorri í margar aldir, — og hinsvegar þarfir
og kröfur hins nýja tíma. En því verður sleppt, enda
efni í ihugun úl af fyrir sig.
Eg hefi drepið á þjóðernismálin til að sýna, að það
þarf ekki og má ekki rekast á, að sinna stærstu máluni
sinnar samtíðar, — vera vakandi — og það hinsvegar,
að liafa heilbrigt viðhorf til liinnar gömlu þjóðmenn-
ingar, sem verið hefir aflgjafi ungmennafélaganna, og
getur verið það í nútíð og framtíð.
Einar Kristjánsson.
3*