Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 9
- Ertu ekki fallegasta heimasætan á íslandi? „Það verður hver og einn að dæma um það en ég á líklega jafna möguleika og aðrar heimasætur," segir hún hlæjandi. - Þaö hefur varla veriö vandamál fyrir pabba þinn aö fá vinnumenn yfir sumartímann þegar þeir vissu aö þú værir heimasætan á bænum og þeir hafa sjálfsagt veriö tilbúnir aö borga meö sér? „Það reyndi eiginlega aldrei á þetta því ég á rhárga 'firaraursem hafa alla tíð unnið með pabba þannig að við höfum aldrei þurft að fá vinnumenn til okkar yfir sumartímann. Og ef það komu einhverjir til að hjálpa voru það frændur okkar." - Hvaö gerir maöur yfir daginn í sveitinni? „Maður er náttúrulega í vinnu frá morgni til kvölds en það fer síðan eftir árstíma hver helstu verkefnin eru. Maður byrjar þó í fjósinu á hverjum degi þar sem er mjólkað, heyið gefið og skítnum mokað en svo er t.d. heyskapur, sauðburður, það þarf að dytta að húsunum, gefa dýrunum o.fl. Þetta er svo fjölþætt og þar síðasta sumar vorum við t.d. að reisa ný fjárhús." - Einhvern veginn sé ég þaö ekki fyrir mér aö Fegurðardrottning íslands skuli moka skít úr fjósinu. Hvernig er það eiginlega - ertu þá meö kórónuna á höföinu, í vinnugallanum og meö fe| lakkaðar neglur? „Nei, ekki alveg en þetta tvennt fer þó alveg ágætlega saman. Það breytist ekkert þótt ég hafi verið valin Fegurðardrottning Islands ég held bara áfram að vera ég sjálf og gera þá hluti sem ég er vön að gera." - En hvernig er aö vera Feguröar- drottning íslands? „Það er mjög skemmtilegt en það breytist voðalega lítið í mínu lífi. Ég ber þennan titil í eitt ár og þetta er því ársævintýri sem ég ætla að njóta." - Er eitthvað á dagskrá hjá þér tengt þessum titli? ...þegar maður er innan um reykingafólk, sem er að reykja, kemur vond lykt af fötunum manns „Já, ég fer út í lok september og tek þátt í keppninni Ungfrú Skandinavía. Keppnin verður haldin um borð í 11 hæða skemmtiferðaskipi MS Viking Cindarella sem siglir á milli Helsinki og Tallin í Eistlandi. Við munum ferðast um Finnland í viku þar sem keppendur og keppnin verður kynnt. Svo tek ég þátt í Ungfrú Evrópu sem fer fram 10. nóvember í Líbanon. Þannig að það eru skemmtilegir tímar framundan." - Nú hefur Ungfrú Vesturland síöustu tvö árin hreppt titilinn Feguröardrottning íslands. Hvaö er eiginlega í gangi í þessum landshluta? „Það er erfitt að segja til um það en við hljótum að eiga svona mikið af fallegu kvenfólki á þessum slóðum og ekki eru strákarnir síðri." - En er þaö rétt aö fasteignaverð hafi rokiö upp á Akranesi vegna ágangs einhleypra karla sem vilja ólmir flytja upp á Skaga? „Ég hef nú ekki orðið vör við það. En ef þetta er tilfellið þá fagna ég því bara. Það er alltaf gaman að fá nýtt fólk upp á Skaga," segir hún hlæjandi. - Hvorki þú né Katrín Rós, Feguröardrottning íslands frá því í fyrra, reykið. Getur þaö veriö ein af ástæðunum fyrir því aö þiö hrepptuð þennan titil? „Já, ég gæti alveg trúað því að þessi staðreynd ætti hlut að máli. Reykingar eru óhollar, maður fær fyrr hrukkur, gulari tennur og þær gera mann því eldri fyrr en ella." - Hvaö finnst þér um reykingar? „Það fylgir þeim ákveðinn sóðaskapur. Ég á reyndar nokkrar vinkonur sem reykja og þegar maður er innan um reykingafólk, sem er að reykja, kemur oftast vond lykt af fötunum manns og manni sjálfum. Reykingar eru einnig mjög skaðlegar heilsunni og stytta líf manns. Því miður reykja alltof rnargir í kringum mig en ég er algjörlega á móti reykingum." - Reykingar viröast vera í tísku hjá ungu fólki í dag. Hvernig stendur á því? „Ég veit það ekki en þeim finnst sjálfsagt spennandi að prófa eitthvað nýtt og svo eru sjálfsagt margir sem falla í þessa gryfju vegna hópþrýstings. En það er alls ekki flott að reykja og mér finnst ömurlegt að sjá allt þetta unga fólk reykja í dag." - Elín er trúlofuö Valþóri Ásgríms- syni en hvaö myndi hún gera ef hann byrjaði aö reykja? „Það segir náttúrulega ekkert um manneskjuna þótt hún reyki þannig ég myndi aðeins gefa mínum manni áminningu. Fyrst og fremst vegna þess að ég myndi hafa áhyggjur af heilsu hans. En sem betur fer þarf ég ekki að hafa áhyggjur af því, því að hann er mjög á móti reykingum og á líklega aldrei eftir að reykja." - Hvernig finnst þér sveitin? „Mér finnst hún frábær því þar er hreinna loft en í þéttbýlinu. Þá er allt rniklu frjálslegra og svo skemmir það ekki fyrir að vera innan um dýrin." - Varstu þá komin í smiðs- hlutverkiö? „Já, alveg eins, m.a. var maður að járnabinda, steypa og smíða. Maður gerði bara það sem maður gat og þurfti að gera."

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.