Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 28

Skinfaxi - 01.05.2000, Blaðsíða 28
standa fyrir í október. Um hvað snýst hún og hvert er markmiöið með henni? „Við erum kannski að fara dálítið nýjar leiðir í þessu sem er kannski mér að kenna því ég er orðinn dálítið leiður á þessum hefðbundnu vímu- og forvarnarátökum. Við ætlum að kynna fyrir unglingum á menntaskólaldri hvað þau geta gert sér til skemmtunar án þess að að vera í einhverju rugli og vitleysu. Ég vil að orðin vímu- og forvarnir verði bannorð á ráðstefnunni því við ætlum að vera á jákvæðu nótunum. Við ætlum að sýna fram á hvaða möguleikar eru í boði fyrir þennan aldurshóp með því að fá unga Ef unglingarnir hafa nóg að gera þá lenda þeir síöur í vandræðum og hafa auk þess minni tíma til að fá sér í glas fyrirlesara af öllu landinu á ráðstefnuna. Þau ætla síðan að segja okkur hvaða skemmtilegu hluti þau hafa verið að gera í sinni heimabyggð. Á þessari ráðstefnu verða bæði stór og fræg eyru, t.d. ráðamenn þjóðarinnar og blaðamenn, sem fá upplýsingar um hvað er að gerast í landinu. Einnig fá öll sveitarfélög boð um að senda ungling frá sínum landshluta til að koma sem áheyrnarfulltrúi. Hann glósar hjá sér hvað er að gerast og getur síðan fylgt því eftir í sinni heimabyggð." - Aö hafa eitthvaö fyrir stafni - er það virkasta forvörnin í dag? „Já, ég tel það. Ef unglingar hafa nóg að gera þá lenda þeir síður í vandræðum og hafa auk þess minni tíma til að fá sér í glas. Þetta er bara staðreynd sem bæjarfélögin þurfa að stíla inn á. Þau þurfa að vera vakandi og geta boðið upp á næga afþreyingu fyrir unglinga á aldrinum 16 til 20 ára. Ég veit nefnilega að í mörgum bæjarfélögum dettur öll starfsemi fyrir unglinga á þessum aldri niður. Þetta eru mikil viðbrigði fyrir þau því í grunnskólanum eru þau á kafi í verkefnum og hafa af nógu að taka. Það má ekki skera svona snöggt á þetta." - Ráðstefnan ber yfirskriftina „Jeg tarf ekki sjuss”. Hvaöan kemur þetta nafn? „Þessu er stolið úr myndinni Stella í orlofi þar sem Salomon, Svíinn sem fer með Stellu fyrir misskilning í veiðferð, segir þessa setningu. Hann er alkóhólisti og var að koma í meðferð til íslands. í veiðiferðinni, sem hann heldur að sé hluti af meðferðinni, býður Stella honum alltaf einn sjúss fyrir hvern fisk sem hann veiðir en þegar hún býður honum sopa í þriðja skiptið segir hann: „Jeg tarf ekki sjuss". En þá stendur hann úti í miðri á, tínir fiskana upp úr ánni og hefur ekki tíma til að fá sér sjuss því hann hefur í nógu að snúast. Það er nákvæmlega þetta sem við viljum gera út á, að unglingar hafi nóg fyrir stafni." - Veröur þessi ráðstefna opin fyrir alla? „Já, hún er opin fyrir alla og við hvetjum fólk til þess að koma. En við bjóðum einnig ákveðnu fólki sem getur haft áhrif og hjálpað okkur við að fylgja þessu eftir. Ef unglingar hafa nóg fyrir stafni þá hafa þau ekki tíma til að vera í einhverju rugli."

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.