Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 4

Náttúrufræðingurinn - 1998, Blaðsíða 4
Hverjir eiga HÁLENDIÐ? Um fátt hefur verið meira rætt undanfarna mánuði og misseri en áform Landsvirkjunar um virkjanir og tilheyrandi miðlunarlón á hálendinu. Ekkert virðist áköfustu virkjunar- mönnum heilagt. Það á ekki bara að sökkva Eyjabökkum og Þjórsárverum; jafnvel Detti- foss á að leggja í krana - og skrúfa svo bara frá ef þjóðhöfðingja ber að garði! Þessi áform eru leifar af úreltri stóriðju- stefnu 7. og 8. áratugarins þegar fátt þótti til bjargar vesælli þjóð annað en raforkusala til stóriðju. Álverið í Straumsvík var reist 1967 eftir hatrammar pólitískar deilur, en þær snerust ekki um Búrfellsvirkjun sem slíka. Og enda þótt deilt hafi verið unr Járnblendi- verksmiðjuna á Grundartanga, nýtt álver á sama stað og stækkunina í Straumsvík, þá snerust þær deilur ekki um virkjanirnar sem að baki liggja, heldur um hugsanlega mengun frá iðjuverunum, um atvinnustefnu og um byggðapólitík. Umræðan og viðhorf manna hefur breyst mjög á tiltölulega stuttum tíma: Nú deila menn um fórnarkostnaðinn - um það hvort setja eigi verðmiða á íslenska náttúru. Um- ræðan snýst ekki um það hvort reisa eigi álver í Reyðarfirði eða á Keilisnesi, hversu stórt það eigi að vera, hvort það eigi að vera með þurr- eða vothreinsibúnaði eða hvort það eigi að vera í 49 eða 51% eigu útlendra auðhringa. Nei, nú er spurt hvort við - nú- lifandi íslendingar - höfum leyfi til að drekkja ósnortnum náttúruperlum á hálend- inu og eyða þar með mikilvægum búsvæðum plantna og dýra unr aldur og eilífð. Höfum við leyfi til slíks? Nei, síður en svo. Hálendið er ekki okkar eign. Við höfum ekki fengið það í arf frá foreldrum okkar heldur höfum við það aðeins að láni frá börnununr okkar og börnum þeirra. Þess vegna höfum við ekki leyfi til að fórna Dettifossi, Eyja- bökkum og Þjórsárverum. En hver er ástæðan fyrir þeirri almennu viðhorfsbreytingu sem orðin er? Batnandi efnahagur og ný tækni hafa gert æ stærri hópi fólks kleift að njóta hálendis- ins, ef ekki þar þá heima í stofu, í sjónvarp- inu, í Morgunblaðinu og jafnvel í Kringl- unni. Alkunna er að menn sakna ekki þess sem þeir þekkja ekki. Til skamms tíma þekktu fáir af eigin reynslu til þeirra staða sem í húfi eru. Aukin útivist en ekki síður málefnaleg og upplýsandi umræða um gildi þessara stórbrotnu víðerna hefur snortið streng í hjörtum landsmanna, streng sem nú er þaninn. Æ fleiri vilja nú bjarga hálendinu, og skila þessum einstöku og viðkvæmu svæð- um ósnortnum til komandi kynslóða. í sumar og haust höfum við orðið vitni að árangursrfkri samvinnu útivistarfólks, lista- manna og náttúrufræðinga, fjölmiðla, Ijós- myndara og fréttamanna, sem tekið hafa höndum saman um að kynna landsvæðin sem á að sökkva. Greinaflokkur Morgun- blaðsins um Landið og orkuna, þar sem nýjustu tölvutækni var beitt til að sýna hvaða breytingar munu verða á ásýnd landsins, var til fyrirmyndar. Og nú hefur enn bæst í safn upplýsinga um náttúru fyrir- hugaðra virkjanasvæða norðan Vatna- jökuls: Glettingur, tímarit um austfirsk máeefni, er að þessu sinni helgaður fræðslu um náttúru svæðanna og fyrirhugaðar virkjanir. Það verður þá ekki vegna þess að menn vita ekki hvað þeir eru að gera... Alfheiður Ingadóttir. 82
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.