Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1955, Qupperneq 34

Náttúrufræðingurinn - 1955, Qupperneq 34
28 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN verður ekkert fullyrt með vissu, en ég ætla þó, að varppörin geti vart verið fleiri en 3500. 1 Breiðafjarðarvörpunum skipta varppörin í smæstu vörpunum, þ. e. a. s. þeim, er vörp geta kallazt, nokkrum tug- um, en í stærstu vörpunum skipta þau nokkrum hundruðum. Hvítmáfsvörpin við Breiðafjörð eru langflest í bröttum hamrahlíð- um skammt frá sjó, en ekki i þverhníptum sjávarbjörgum. Venjulega er mjó láglendisræma milli varpstöðvanna og sjávar, og er breidd hennar oftast %—2 km, en getur þó verið allt að 4 km. Fjöllin, sem vörpin eru i, eru mjög misjafnlega há eða frá 200—600 m. Neðst í hlíðum þeirra eru brattar brekkur og skriður, en síðan taka við þver- hnipt klettabelti og klettanef alveg upp á brún. Hvítmáfsbyggðirnar eru venjulega á takmörkuðum og glöggt afmörkuðum svæðum í hamra- hliðunum. Svæði þessi skera sig úr, og það jafnvel langt að, vegna hins mikla gróðurs, sem smám saman hefur vaxið upp af driti fuglanna. Allar syllur og rákir eru þar vaxnar skrúðgrænu grasi og víða vex þar líka mikið af hvönn og fleiri plöntutegundum. Á stórum svæðum er líka bergið sjálft litað rauðgult af köfnunarefniskærum skófum. Framan við hreiðrin eru oftast hvítir drittaumar eða dritskellur á berginu. I skriðunum neðan við vörpin er einnig mikill og áberandi gróður. Hin mikla jarðvegsmyndun og hinn mikli gróður í máfavörp- unum bendir til þess, að þau séu mjög gömul. Máfapörin verpa yfir- leitt nokkuð dreift innan máfabyggðarinnar, en á stórum og breiðum syllum geta þó verið fleiri pör saman, en annars staðar aðeins eitt og eitt par út af fyrir sig. Varpið er einkum ofan til í björgunum, og sum hreiðrin geta jafnvel verið alveg uppi á brún, svo að ganga má að þeim. I máfavörpunum við Breiðafjörð var hvítmáfurinn áður fyrr alveg út af fyrir sig, en nú hefur fýllinn setzt að í mörgum eða jafn- vel flestum þeirra. Virðist hann beinlínis sækjast eftir að vera í máfa- byggðunum, og mun hinn mikli gróður þeirra valda mestu um það. Aðrir fuglar eru þar aftur á móti ekki enn sem komið er. 1 Karlinum við Reykjanes (Gull.) og í Vestmannaeyjum (Stóri- Stakkur, Máfadrangur) verpur hvítmáfurinn í sjávardröngum, og á einum stað í Vestmannaeyjum (í Hellisey) á móbergsfláa uppi á sæbrattri klettaey. Varpstaðurinn í Hellisey er alveg einstakur í sinni röð, því að þar verpa, eða urpu að minnsta kosti, fjórar tegundir máfa í sambýli uppi á eynni, en fimmta tegundin í björgunum utan í henni. Ég kom í Ilellisey í júní 1944. Uppi á eynni urpu þá silfur- máfur (10 pör), hvitmáfur (4—5 pör), svartbakur (2 pör) og litli svartbakur (1 par). 1 björgunum utan í eynni var auk þess mikið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.