Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 46

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 46
1. mynd. Núverandi gosbelti íslands. Rekbeltið markar plötuskilin, en nákvæmari stað- setning þeirra er sýnd lauslega með stjörnum. Jaðarbeltin liggja utan plötuskilanna. Byggt á kortum Kristjáns Sæmundssonar (1979). The presently active volcanic zones in Iceland. The rift zone (rekbelti) marks the trace ofthe divergent plate boundary in Iceland (indicated by stars), but the flank zones (jaðarbelti) lie outside the plate boundary. Based on maps by Kristján Sœmundsson (1979). gjóskulagarannsóknum, kortlagningu hraunlaga og fleiri atriðum. Gossaga Heklu er best þekkt (Sigurður Þórar- insson 1968, 1970), en einnig hefur saga nokkurra svæða á nútíma verið könnuð, svo sem eldstöðvakerfa á Reykjanesskaga (Jón Jónsson 1978, 1983, 1984, 1985), Veiðivatna (Guð- rún Larsen 1984, 1988), Kröflukerfis- ins (Sigurður Þórarinsson 1979, Kristj- án Sæmundsson 1984), Kötlu (Sigurð- ur Þórarinsson 1975) og Öræfajökuls (Sigurður Þórarinsson 1958). Berg- fræði margra eldstöðvakerfa á nútíma hefur verið könnuð (Sveinn Jakobs- son o.fl. 1978, Sveinn Jakobsson 1979), og nokkur meginatriði í eld- virkni allra eldstöðvakerfa á íslandi á nútíma er að finna í bók Ara Trausta Guðmundssonar (1986). I þessari grein er reynt að meta gostíðni eldstöðvakerfa á plötuskilum út frá ákveðnu reiknilíkani. Líkanið er ekki unnt að nota til að spá fyrir um einstök gos í tilteknum eldfjöllum, en það skýrir hins vegar, a.m.k. að einhverju leyti, gostíðni eldfjalls yfir hundruð eða þúsundir ára. Eldgosa- spár fyrir einstök eldfjöll á tilteknum tíma taka mið af gossögu fjallsins en byggja svo til einvörðungu á mæling- um á ýmsum þáttum svo sem jarð- skjálftum og aflögun jarðskorpu yfir hólfi fjallsins. Fyrir tiltekin gos eða einstakar goshrinur geta slíkar spár haft verulegt gildi varðandi almanna- 40

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.