Fréttablaðið - 01.08.2009, Side 16

Fréttablaðið - 01.08.2009, Side 16
16 1. ágúst 2009 LAUGARDAGUR Nú finn ég fiðringinn … Þeir eru fáir Íslendingarnir sem ekki hafa brugðið sér á einhvers konar úti- samkomu um verslunarmannahelgina á lífsleiðinni. Kjartan Guðmundsson leit á nokkrar myndir af liðnum ferðahelgum og ferðaðist aftur í tímann. SPILAÐ OG SUNGIÐ Árni Johnsen er órjúfanlegur hluti Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum ár hvert. Hér tekur hann lagið ásamt aðstoðarmönnum sumarið 1994. GLERHARÐIR GÆJAR Starfsfólk lögregluembætta um allt land hefur nóg að gera um mestu ferðahelgi ársins, til dæmis við að hella niður áfengi. Af myndinni að dæma hafa eigendur guðaveiganna á Úlfljótsvatni árið 1978 blandað í Coca-Cola – í eins lítra glerflöskum. TÍMANNA TÁKN Sumarið 1987 voru risavaxin kassettutæki með því flottara sem heimurinn hafði augum litið. Líklega hefur veðrið leikið við þessa sumarlegu ungu menn sem skelltu sér í Húsafell um verslunarmannahelgina. UPP MEÐ HENDUR, NIÐUR MEÐ BRÆKUR Í gegnum tíðina hefur verið vinsælt hjá ungu fólki að hafa með sér á útisamkomur torkennilega hluti til að grínast með. Þessum vaska hópi, sem skemmti sér á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum sumarið 1997, þótti greinilega óborganlegt að hafa klámblað og platbyssu meðferðis. TÁP OG FJÖR OG SVALIR MENN Þessir tveir töffarar virðast ekki hafa dreypt á neinu sterkara en Panda Lemonade, breskum gosdrykk, á útihátíðinni Rauðhettu sem haldin var að Úlfljótsvatni sumarið 1978. UNGT OG LEIKUR SÉR Húfuklædd ungmenni bregða á leik á bindindismótinu í Galtalæk árið 1989. MEÐ LOPA SKAL LAND BYGGJA Vinsældir og áhrif hinnar rammíslensku lopapeysu sjást glögglega á þessum gestum útisamkomu í Húsafelli sumarið 1976. M YN D IR /LJÓ SM YN D A SA FN R EYK JA VÍKU R

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.