Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.08.2009, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 01.08.2009, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Davíðs Þórs Jónssonar Í dag er laugardagurinn 1. ágúst 2009, 213. dagur ársins. 4.35 13.34 22.31 4.02 13.19 22.32 Þegar ég var strákur langaði mig óskaplega mikið til að verða skáld þegar ég yrði stór. Sú list að geta með fáum, vel völdum orðum haft djúp áhrif á fólk, jafn- vel látið það fá gæsahúð, heillaði mig alveg upp úr skónum. Á meðan félagar mínir dáðu poppstjörnur, knattspyrnumenn og leikara fann ég mínar fyrirmyndir í Skólaljóð- um, bókinni sem sennilega hafði mest áhrif á menningarlega mótun mína í uppvextinum. ÞEGAR ég varð unglingur og fór að kynna mér ævi þessara karla og þann hluta kveðskapar þeirra sem ekki rataði í Skólaljóðin ágerðist þessi áhugi minn. Það sem einkum heillaði mig þá var drykkjuskapur- inn og kvensemin sem nánast virt- ist vera hluti af starfslýsingu þjóð- skálds. Eymdin, ógæfan og volæðið sem einnig virtist vera skilyrði var í augum mínum rómantískt og eftirsóknarvert hlutskipti. AF ÞESSUM sökum tók ég ungur að reyna að temja mér drykkju- skap og kvensemi. Ég vona að ég hljómi ekki sjálfbirgingslega þótt ég leyfi mér að fullyrða að mér hafi bara tekist allvel upp, einkum við drykkjuskapinn. Ég læt liggja á milli hluta hvort kvensemin hafi skilað jafnmiklum árangri og erf- iði. AFTUR á móti varð minna úr því að kveðskapur minn væri sú tæra snilld sem stefnt var að. Ljóðin sem breyta áttu því hvernig Íslend- ingar hugsuðu um sjálfa sig, upp- runa sinn og gildismat létu á sér standa. Aldrei tókst mér að toppa Bjössa litla á Bergi, Bikarinn eða Ef. Steinn Steinarr var auðvitað með öllu ósnertanlegur. Eftir á að hyggja var þetta kannski vegna þess að einhvern veginn hafði sú hugmynd læðst að mér að ef ég bara væri nógu iðinn við drykkju- skapinn og kvensemina sæi restin um sig sjálf. ÞAÐ kom mér því verulega á óvart þegar ég komst að því löngu síðar að hægt væri að yrkja ljóð fyrir hádegi á virkum degi. Áður hefði ég getað svarið fyrir það að skapandi hugsun væri möguleg á hefðbundnum skrifstofutíma. Að sitja við yrkingar eins og hverja aðra vinnu var eitthvað sem ekki hafði hvarflað að mér að skil- að gæti neinu sem varið væri í. Þó var það nákvæmlega það sem Halldór Laxness hafði gert með góðum árangri og reyndar fleiri skáld líka. Mér hafði bara láðst að kynna mér þau. Þau voru nefni- lega ekki eins spennandi. Kannski af því að drykkjuskapinn og kven- semina vantaði. „Við það augun verða hörð … 195,-/m. JORUN púði B35×L35cm. Marglitað 995,- 695,-

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.