Samvinnan - 01.12.1964, Blaðsíða 57
KVENSKÓR
Iðunnarskór
á alla
f jölskylduna
O
<
cc
oC
uu
X
Iðunnarskór
eru liprir,
vandaðir og
þægilegir.
Nylon
sólarnir
„DURALITE”
hafa
margfalda
endingu á viö
aðra sóla.
Veljið lit og
lag við yðar
hæfi í næstu
skóbúð.
vinnuíélögin á íslandi að mót-
ast eitthvað á annan veg en
erlendis. En grundvallaratriði
og innsti kjarni samvinnu-
hreyfingarinnar er hinn sami
um allan heim.
P. H. J.
Samvinnuskip
Framh. af bls. 13.
Ir sér. Illt væri, ef þeir erfið-
leikar yrðu til þess, að ís-
lendingar gæfust upp við að
flytja olíu til landsins. Það
er nauðsynlegt, margra hluta
vegna, að þeir eigi a. m. k.
eitt stórt olíuflutningaskip
Siglingasagan sýnir, að það
er næsta ótraust tilvera fyr-
ir eyþjóð, að eiga allt undir
öðrum með flutninga að og
frá landinu, og m. a. kom
það í ljós þegar Súes-deilan
hraust út, að betra var en
ekki fyrir þjóðina, að
„Hamrafell" var undir ís-
lenzkum fána.
Samtímis því, sem Sam-
vinnuhreyfingin í landinu
liefir eignazt þau 8 skip, sem
nú eru undir fána hennar,
hefir hún þurft að leggja
mikla fjármuni til alhliða
uppbyggingar. Bankar og
lánastofnanir hafa yfirleitt
ekki veitt til þeirra fram-
kvæmda eðlileg fjárfesting-
arlán.
Kaupfélögin og félags-
menn þeirra hafa orðið að
leggja til þess allt handbært
fé og ganga jafnvel svo langt
i því, að verzlunarrekstur
félaganna og Sambandsins,
sem er þó einn frumþáttur
starfseminnar, hefir stund-
um markazt af því. Til
skipakaupanna hefir hins-
vegar fengizt fjármagn er-
lendis, yfirleitt 70 tii 80%
af kostnaðarverði þeirra.
Hinsvegar fékkst allt and-
virði „Hamrafells" lánað
þegar það var keypt, en slíkt
má telja til undantekninga.
Þegar tímabilið frá því
Skipadeild SÍS var stofnuð
er tekið sem heild, er niður-
staðan sú, að skipin hafa
sjálf ekki aðeins staðið und-
ir afskriftum og þá um leið
greiðslu þeirra lána, sem til
þeirra voru tekin, heldur og
skilað afgangi til sameigin-
legs reksturs og annarrar
uppbyggingar.
í dag eru Sambandsskipin
orðin eðlilegur og sjálfsagð-
ur hluti í rekstri Sambands-
ins og kaupfélaganna. Þau
hafa þýðingarmiklu hlut-
verki að gegna. Fyrst og
fremst annast þau flutninga
félaganna og Sambandsins
en fylla þau bil, sem verða
kunna með öðrum verkefn-
um.
Nú hefir elzta skipið kvatt
og annað er komið í þess
stað. „Hvassafell“ var selt á
þessu ári en „Mælifell" er
af svipaðri gerð, lítið eitt
stærra, og hefir þegar leyst
farsællega af höndum ýms
verkefni.
Nauðsynlegt er, að flotan-
um sé viðhaldið og hann
endurínýjaður með eðlileg-
um hætti og þótt i taili sé
SAMVINNAN 57