Samvinnan - 01.12.1964, Blaðsíða 26
Ragnar Pétursson
Plest kaupfélaga þeirra, er
aðild eiga að systursambönd-
um SÍS í nágrannalöndunum
— Kooperativa Förbundet í
Svíþjóð, Norges Kooperative
Landsforening í Noregi, Fælles-
foreningen for Danmarks
Brugsforeninger í Danmörku,
svo einhver séu nefnd — eiga
það sammerkt að þau eru neyt-
endafélög. Öðruvísi er þessu
farið með obbann af íslenzku
kaupfélögunum, þau eru vel-
flest í senn félög framleiðenda
og neytenda.
Undantekningar eru þó frá
þessari reglu, og ber þá fyrst
að nefna þau félög tvö, er stað-
sett eru þar sem þéttbýli er
mest á landinu, í Reykjavík og
Hafnarfirði. Hér fer á eftir við-
tal, sem Samvinnan átti fyrir
skemmstu við kaupfélags-
stjóra síðarnefnda félagsins
Ragnar Pétursson. Ragnar hef-
ur haft á hendi framkvæmda-
stjórn félagsins mestan hluta
þess tíma, sem það hefur
starfað, eða síðan 1947, en þar
áður var hann bæjarstjóri í
Neskaupstað. Á þessum tíma
hefur þetta félag, sem upphaf-
lega var lítið og fátækt laun-
þegafélag, orðið að langstærsta
verzlunarfyrirtæki Hafnar-
fjarðar og í röð þeirra stærstu
á Suðvesturlandi öllu. Matvöru-
búðir þess skara langt fram úr
öðrum í kaupstaðnum hvað
snertir nýtízkuleg og hagkvæm
tæki og innréttingar, góða og
hreinlega umgengni. Það hef-
ur frá upphafi verið í farar-
broddi er innleiða skyldi nýja
og hagkvæma verzlunarhætti
hér á landi; þannig varð það,
ásamt Sambandi íslenzkra
samvinnufélaga og Kaupfélagi
Árnesinga, fyrst til að stofn-
setja kjörbúð hérlendis árið
1955, og fyrst allra verzlunar-
fyrirtækja íslenzkra hóf það
rekstur kjörvagna, sem am
langt skeið hafa þótt sjálfsagð-
ur hlutur hjá þeim þjóðum er-
lendis, sem lengst eru komnar
í verzlunarháttum, og Haín-
firðingar kunna vel að meta
kaupfélag sitt og þá ágætu
þjónustu, sem það veitir þeim;
það sýnir meðal annars sú
staðreynd, að síðan 1960 hefur
viðskiptavelta þess fjórfaldast
að krónutölu.
—Kaupfélag Hafnfirðinga á
nú nærri tveggja áratuga ald-
ur að baki, sagði Ragnar. —
Það var stofnað 11. október
1945 og hóf starfsemi 1. nóv.
sama ár. Fyrsti kaupfélagsstjóri
var Guðmundur Sveinsson, en
fyrstu stjórnina skipuðu Ólaf-
ur Þ. Kristjánsson, formaður,
Guðjón Guðjónsson, Guðjón
Gunnarsson, Óskar Jónsson og
Þórður Þórðarson. í núverandi
stjórn eiga sæti: Jóhann Þor-
steinsson, formaður, Hermann
Guðmundsson, Þórður Þórðar-
son, Stefán Júlíusson og Hall-
steinn Hinriksson. Félagsmenn
eru nú um 900 talsins.
— En samvinnustarf í Firð-
inum á sér þó eldri sögu, er
ekki svo?
— Jú, sú saga nær að
minnsta kosti aftur til 1931, er
verkamannafélagið Hlíf kom á
fót hjá sér pöntunarfélagi, sem
starfaði til ársins 1937. Verður
það að teljast vísirinn að Kaup-
félagi Hafnfirðinga. Fyrstu
verzlunarnefnd félagsins skip-
uðu þeir Gunnlaugur Krist-
Efri myndin: Verzlunarhúsið við Strandgötu, myndin tekin að
kvöldlagi. Á neðri myndinni er einn kjörvagna kaupfélagsins.
Kaupfélag
Hafnfirðinga — brautryðjandi
nýtízku verzlunarhátta
26 SAMVINNAN