Andvari - 01.08.1961, Blaðsíða 7
ANDVARI
FRÁ HAWAII
101
Á austurströnd Oahu. — Ljósm.: B. Th.
síðar íbúar Hawaii voru löngum afburða sjómenn og bátar þeirra gátu borið 60—
100 manns og allmikið af vamingi að auki. Af einhverjum ástæðum rofnaði
sambandið milli Tahiti og Hawaii fyrir fullt og allt. Hawaii-menn lifðu óra-
langan tíma, enginn veit hve lengi, í l’ullkominni einangrun frá umheimin-
urn í einhverju fegursta og gjöfulasta landi, sem þekkist í veröldinni. Hitinn er
næstum jafn allan ársins hring, 20—30 stig á Celsíus, og staðvindar frá hafinu
veita nokkurn svala. Á sumum stöðum rignir allmikið og gróðurinn ber þess
vitni, að þar fara vaxtarskilyrði öll saman: frjósamur jarðvegur, regn og sól.
En annars staðar er lítið um regn, og varð sá hluti landsins ekki arðsamur sem
ræktunarland fyrr en vatnsveitur í stómm stíl komu til sögunnar, og sums staðar
eru eyðisandar.
Á tímum hinnar algem einangrunar Hawaii urðu þar litlar þjóðlífs-
breytingar, — heita mátti að tíminn stæði kyrr öld eftir öld. Lifnaðarhættir
héldust hinir sömu og í öndverðu ineðan stórfelldar breytingar áttu sér stað
í Evrópu, meðan Ameríka fannst, byggðist • og varð sjálfstætt og voldugt
ríki. En gagnstætt því, sem menn oft gera sér í hugarlund um íbúa Suðurhafs-
eyja, þá vom Hawaiibúar ekki sljóir menn, sem lágu í leti í skugga pálma-
trjánna. Þeir vom ágætir fiskimenn, gerðu jafnvel tjamir og lón, þar sem þeir
stunduðu fiskirækt til að gera veiðina ömggari og erfiðisminni. Þeir felldu tré