Andvari - 01.01.1950, Qupperneq 2
Sturlunga.
Sérstakt tœkifœri til að eignast þetta glœsilega
ritverk við góðu verði.
Sturlunga, sem Sturlunguútgáfan gaf út fyrir nokkru, er í
2 stórum bindum, alls 1110 bls. í svipuðu broti og Fornritaút-
gáfan og á því vel samstöðu með þeirri útgáfu í bókaskáp.
I henni er mjög vandaður texti, sem Magnús Finnbogason
menntaskólakennari sá um, svo og vísnaskýringar eftir hann.
Jón Jóhannesson dósent hafði yfirstjórn útgáfunnar. Hann
ritaði formála, sem vísindamenn hafa lokið hinu mesta lofs-
orði á, samdi nafnaskrá, þá vönduðustu, sem gerð hefur verið,
atriðisorðaskrá og ættarskrár, svo að nú getur hver lesandi
Sturlungu á svipstundu áttað sig á þeim málum. Kristján Eld-
járn þjóðminjavörður samdi stuttorðar, en handhægar skýr-
ingar. — Auk þess eru í þessu mikla verki 200 myndir af
sögustöðum, og söguleg landabréf í tveim litum yfir nálega
allt landið aftan við bæði bindin. Litprentaðar myndir eftir
málverkum Asgríms Jónssonar af Hvammi í Dölum og Reyk-
holti eru framan við bindin. Eru allar myndir, einnig málverk
Asgríms og landabréfin, gerðar fyrir þessa útgáfu. — Frá-
gangur allur er mjög aðgengilegur. T. d. eru greinaskil í text-
anum og ártöl á blaðrönd o. s. frv. Bandið er skinnband gert
í Englandi, gyllt á sniði því, er upp veit, óvenju vandað og
fallegt. Gyllingu, svo og upphafsstafi og fleira til skreytingar,
teiknaði Jörundur Pálsson.
Sala þessarar útgáfu Sturlungu stöðvaðist af sérstökum
ástæðum skömmu eftir útkomuna, og hefur hún ekki verið á
markaðnum undanfarið. Nú verður bókin aftur höfð á boð-
stólum. Verð hennar er nú orðið mjög lágt, kr. 250.00 í þessu
vandaða bandi og kr. 160.00 ób. En til þess að gera mönnum
enn auðveldara að eignast hana, býður bókaútgáfa Menningar-
sjóðs og Þjóðvinafélagsins félagsmönnum hana fyrst um sinn
fyrir aðeins kr. 200.00 innb. og kr. 130.00 ób. bæði bindin.
Flestir vandlátustu og færustu norrænufræðingar rituðu á
Framhald á 3. kápustðu.