Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 26
24
1930
Andvar
þeim, sem undirbúa sýninguna, og kæmi á samvinnu og
samræmi milli allra deilda hennar. En þar sem þessir
þrír menn hefðu raunar skyld verkefni með höndum,
æltu þeir við og við að eiga fundi saman til ráðagerðar,
því að um sumt mætti hafa samvinnu, t. d. taka í senn
sumar myndir til bókarinnar og kvikmyndarinnar, og
hins vegar mætti spara sér að sýna sumt á sýningunni
með því að sýna það á kvikmyndinni.
Til að sjá um byggingarstarfið hefir þegar verið skip-
uð þriggja manna nefnd, þ. e. Þingvallanefndin. Virðist
þá vel til fallið, að loks kæmi þriggja manna nefnd, er
sérstaklega væri falið að koma skipulagi á hátíðahöldin
sjálf og sjá um framkvæmd þeirra. Sú nefnd yrði auð-
vitað að vera í stöðugri samvinnu við Þingvallanefndina,
og sama á við um sýningarstjórann. Þarna eru þá komn-
ar þrjár þriggja manna nefndir, er þó þyrftu að starfa
saman, og væri þá eðlilegast, að þær væru í rauninni
ein þrískift nefnd, er hefði við og við sameiginlega fundi,
þar sem vandamál yrðu rædd og gert það, sem þyrfti
til að koma samræmi á allan undirbúninginn.
Hvernig sem litið verður á einstök atriði þeirra til-
lagna, er eg hér hefi leyft mér að bera fram, þá vona eg
að fáir verði til að halda því fram, að vér ættum að
láta oss nægja minna en þetta. Eg býst ekki við, að
neitt af þessu yrði oss ofvaxið, ef vér viljum það af
heilum hug og ásetjum oss jafnframt að eyða ekki meira
fé til neins hlutar en nauðsynlegt er til þess að ná því
marki, er vér setjum oss. Ekkert væri fráleitara en það,
að gera þessa hátíð að innihaldslitlu veizluglingri, er
ekki ljómaði af neinni hugsjón. Hún á sízt af öllu að
vera tilraun til að sýnast það, sem vér erum ekki og
getum ekki verið. Hún á að vera drengileg aflraun, þar
sem vér sýnum blátt áfram og yfirlætislaust, hvað vér