Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 63
Andvari
Um skólafyrirkomulag í nokkrum löndum
61
ber á því þar, sem nemendur hafa ýmsum trúnaðarstörf-
um að gegna, því að við það vex ábyrgðartilfinning
þeirra.
Sorö Akademi, einhver virðulegasti heimavistarskóli
Dana, er hin prýðilegasta stofnun í alla staði. Skólinn
var upphaflega stofnaður árið 1586 og þá til hans lagð-
ar allar klaustureignirnar í Sorö. Síðar auðgaðist hann
og á annan hátt. Þannig arfleiddi Holberg hann að
mestum hluta eigna sinna, eins og kunnugt er. Vmsar
ástæður liggja til, að skóli þessi átti oft erfitt uppdráttar
og lagðist jafnvel niður á köflum, en starfað hefur hann
nú óslitið síðan 1822, þó með hálfgerðri uppdráttarsýki
framan af. Síðustu 50 árin hefur hann staðið með mikl-
um blóma, enda á þeim tíma verið stjórnað af hverjum
manninum öðrum betri.
Þó að skólinn sje svo vel hýstur, að fæstir skólar geti
við hann jafnast, getur hann ekki hýst nema tæpan þriðj-
ung nemenda sinna. Heimavistir eru 104, hver lestrar-
stofa fyrir 1—5 menn. Tíu bestu nemendur efsta bekkj-
ar hafa eins manns herbergi, og eru þeir valdir eftir
prófúrslitum vorið áður. Annars eru lestrarherbergi efri
bekkjanna fyrir 2—5 menn. Svefnklefar eru sjerstakir;
flestir þriggja manna í efri deild, en neðri bekkja svefn-
salir eru tveir, fyrir 34 nemendur hvor. Standa þar
rekkjur á víð og dreif um allan salinn, með hæfilegu
millibili, en þvottaskálar eru með veggjum, og hefur
hver nemandi sína skál. Við hliðina á hvorum þessara
svefnsala eru íbúðarherbergi ókvænts umsjónarkennara
og næst svefnsalnum svefnherbergi hans. Veggurinn milli
svefnherbergis hans og svefnsalsins er gerður úr ská-
höllum rimlum, og sjer hann úr rúmi sínu yfir allan sal-
inn. Svefnherbergi efstu bekkja eru uppi yfir íbúð rektors.
Kl. 61/2 að morgni eru nemendur vaktir og eiga að