Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 114
112
Ferð til Vatnajökuls og Hofsjökuls
Andvari
in. Brúnn minn hafði ekki verið haltur um kvöldið fyrir,
en nú varð hann það brátt aftur. Um kl. U/2 áðum við
skamma stund í ágætum haga í hlíð undir Búðarhálsi.
Sá háls er 16—18 km. á lengd, liggur frá norðri til
austurs, og getur orðið allt að 200 m. hærri en svæðið
í kring (290 m. við tjaldstaðinn) eða 500 m. yfir sjávar-
flöt. Nokkuð svalt hafði verið í veðri frá morgni og
loft þykkt, en nú hlýnaði og lá við stöku sinnum, að
rofaði til.
Skömmu eftir áning sáum við Helliskvísl renna í
Tungnaá. Við riðum miðja vega um landsuðurhlíðar á
Búðarhálsi og varð þá útsýni undragott: Hekla skáhallt
að baki til hægri, að sumu leyti hjúpuð skýjum, Valafell,
Hellisfell, Herbjarnarfell, hinir einkennilegu tindar á Loð-
mundi og hin háa hetta á Snjóöldu í suðri, fyrst sást
og móta fyrir Torfajökli, en hann hvarf síðar í þoku
og regni.
Tungnaá (frá n.-a.) sást oft og úða mátti sjá frá fossi.
I hlíðum á Búðarhálsi eru fjölmörg gil, og riðum við fyrir
ofan þau; dýpkuðu þau, er neðar dró, og lágu að grasi-
vöxnum mýrum. A einum stað beygðum við af, til þess að
skoða Grenshóla, en svo heita hólar nokkurir með djúpum
dældum, og er bratt og grýtt niður að fara, en í brekk-
unum mátti sjá á milli steina og undir þeim mikinn
fjölda grenja, þó að ekki yrði vart húsbænda.
Skömmu síðar fórum við úr Búðarhálshlíðum, riðum
niður eftir og fórum með Tungnaá, oftast á þurrum vegi,
aurum og sandi milli hnullunga og stórgrýtis, og var
sæmilegt yfirferðar; hér og þar var nokkur gróður. Um
kl. 4 var farið hjá ámótum Tungnaár og Kaldakvíslar; er
hún eins stór og Tungnaá. Þá var farið með Kaldakvísl
enn um hálfa klukkustund og sveigt til vinstriíað Klifs-