Andvari - 01.01.1926, Blaðsíða 41
Andvari
Um skólafyrirkomulag í nokkrum löndurn
39
tertia-Oberprima), í stað 9 ára annars (Sexta-Oberprima).
Einkum hefur orðið mótspyrna gegn »Þýska yfirskólan-
um« svo nefnda, og hefur t. d. annað stærsta ríkið í
sambandinu, Bayern, algerlega hafnað því fyrirkomulagi.
]eg skal nú í stuttu máli skýra frá stundafjölda náms-
greina í ýmsum tegundum æðri skóla, því að nöfnin
sjálf fræða lítið um fyrirkomulagið.
í „Gymnasium“ (lærður skóli), sem er 9 ára skóli,
eru vikustundir þessar samtals í öllum bekkjum, auk
söngfræði og leikfimi: Kristinfræði 18 st. alls, þýska 31,
latína 53, gríska 36, enska eða franska 15, saga 19,
landafr. 12, stærðfr. 33, náttúruvísindi 18, teikning 14,
söngur 4. — Vikustundir í þessum greinum eru 26—29.
í „Realgymnasium“ (líka 9 ár) er engin gríska, minni
latína, en 2 nýju málin, og er skiftingin svo: Kristinfr.
18, þýska 31, latína 41, enska 27 eða 24, franska 20
eða 23, saga 20, landafr. 13, stærðfr. 36, náttúruvísindi
25, teikning 18, söngur 4 st. — Vikustundir 29.
í „Oberrea/schu/e“ (9 ár) eru 2 nýmál, en hvorki
latína nje gríska, hins vegar mikil aukning í stærðfræði
og náttúrufr.: Kristinfr. 18, þýska 37, fyrra nýmálið 40,
síðara nýmálið 22, saga 22, landafr. 14, stærðfr. 43,
náttúruvísindi 35, teikning 18, söngur 4. st. — Viku-
stundir 29—30.
„Deutsche Oberschu/e“ hefur sem 9 ára skóli þessa
niðurröðun: Kristinfr. 18, þýska 44, saga 25, landafr. 18,
stærðfr. 37, náttúruvísindi 30, fyrra nýmálið 46 eða 43,
síðara nýmálið 13 eða 16, teikning 18, söngur 4 st. —
Vikustundir 28—30.
Þessar tvær síðast nefndu skólategundir eru líka hafð-
ar sem 6 ára skólar og byggja þá á 7 ára barnaskóla.
Skifting námsins er á þessa leið: I Oberrealschule: Krist-
infr. 12, þýska 24, saga 18, landafr. 9, stærðfr. 32, nátt-