Andvari - 01.01.1919, Blaðsíða 32
12
Stjórnarbyiting á skólasviðinu
[Andvari.
eins og þær eru á yfirstandandi tímanum, bæði í
umhverfinu og heiminum í heild.
í öðru lagi, að hún hafi sálfræðilegt gildi: þannig
að það starf, sem nemandanum er ætlað á hverju
stigi þroskans, sé vel lagað til að auðga líf hans,
eins og það er á yfirstandandi tímanum, með tilliti
til einstaklingsþarfa hans og bæfileika.
Námskrár geta ekki gilt óbreyttar á ólíkum stöð-
um og ólíkum tímum.
Dagurinn í dag er ekki sá sami og dagurinn í
gær. Nýi tíminn flytur ný viðfangsefni og gömlu við-
fangsefnin í nýjum myndum. Hver hugsun umliðna
tímans, hversu ágæt sem er, verður að vera endur-
hugsuð, ef húu á að fullnægja kröfum tímans.
þar sem uppeldið er bygt á raunvísindum, og margir
og góðir starfsmenn keppast við í vakandi samvinnu,
þar verða óðfluga breytingar á kensluaðferðum. Fé-
lagshagir breytast og heimta nýtt námsefni. Nám-
skráin þarf því ávalt að vera opin fyrir gagnrýni og
rökræðum, og allir eiga þar að hafa tillögurétt, því
að uppeldi varðar foreldra og alla þá, er þjóðheill-
um sinna. En einkum má búast við, að kennararnir,
sem nota námskrána, geti gefið tillögur til bóta.
Samkvæmt áliti beztu uppeldisfræðinga má varla bú-
ast við, að námskrá, hve góð sem hún er, endist ó-
breytt nema þrjú eða fjögur ár.
Skólarannsóknir.
Aðalhlutverk námstjóra er að sjá fyrir áframhald-
andi þroska kennaranna, sem hann ber ábyrgð á.
Gera hvern einasta þeirra svo góðan kennara, sem
frekast er unl, eftir hæíileikum hans. Eitt af því,
sem allra mest hjálpar til þess að ná þessu takmarki,