Andvari - 01.01.1919, Blaðsíða 97
Andvari.]
Fiskirannsóknir 1917 og 1918
77
Af þessum fiskum voru 47 hængar, 54 hrygnur. —
Um kynsþroska þeirra hafði eg ekki tíma til að at-
huga neitt.
3. 253 fiskar veiddir i botnvörpu á 20 fðm. dýpi
í Faxaflóa (»Sviðinu«) 16. sept. 1913. Hér er senni-
lega fiskur á allri stærð kominn með, nema fiskur-
inn á 1. og 2. vetri, því að haun hefir getað smogið
vörpuna, hafi hann annars verið á staðnum, og
stærsti fiskurinn, sem hafði verið seldur.
Aldur vetur Tala Lengd cm. Meðal lengd cm. Fyngd gr- Meðal- þyngd gr.
6 4 20-25 23 110-220 132
5 2 23-24 23,5 140—200 170
3 68 17—24 21,5 50—200 127
3 126 15-24 18,0 30—180 86
2 48 12-19 15,5 15- 90 42
1 1 13 25
Af þessum fiskum voru 133 hængar og 120 lirygnur.
Hængar yfir 21 cm. langir og stærstu hrygnurnar
voru kynsþroskuð.
Hér er skýrt frá rannsókn á nál. 400 sandkolum
frá vesturströnd landsins og má af þeim fá merki-
iegar upplýsingar um aldur og vöxt þeirra á þessu
svæði, enda þótt fremur fátt sé um gamlan íisk, en
það er svo margt af tveggja—fjögurra vetra gömlum
fiski, að það fullnægir til þess að sjá það, að sand-
kolinn vex mest 4 fyrstu árin, en litið úr því; fjögurra
vetra nær hann 25—32 cm lengd, en það má teljast
vanaleg stærð hans, þegar hann er orðinn fullorðinn,
og lengri fiskar en 38 cm. hafa ekki verið inældir
hér enn í öllum þeim fjölda, sem mældur hefir verið
víðsvegar kring um landið af dönskum mönnum.