Spegillinn - 01.12.1949, Page 21

Spegillinn - 01.12.1949, Page 21
SP'EGÍLLINN 1B5 'Jaraldut Aeyir frá STEFJAMÁLUM Gerist bréfberi. Á tal við mikilmenni í mörgum myndum. Verður fyrir sjónhverfingum. Hefur afspumir af veraldleg- um dásemdum drottningar listarinnar. Þegar síminn hringdi, rauk ég fram úr legubekknum og hugsaði: — Nú er Bjarni búinn að mynda stjórn, ég heyri það á hringingunni. Nú eigum við sjálfsagt að fara vestur að semja. Ég tók tólið og sagði: — Er það Bjarni? — Nei, það er Rósinkrans, var sagt við hinn endann. — Ég ætla að biðja þig að skreppa íyrir mig með bréf til hans Jóns Leifs og hafa tal af honum um leið. — Er hann nú búinn að taka af þér Þjóðleikhúsið? sagði ég hérna megin við símann. — Nei, ónei, ekki ennþá. Bréfið er bara upp á það, hvort við megutti sýna hann Fjalla-Eyvind og hvort Þjóðleikhúsið geti risið undir kostnaðinum. Ég lofaði að fara og hnýtti á mig bezta bindið mitt, ný- fengið frá Ameríku, eitt af þessum með sterku litunum, sem geta lýst í myrkri. Stakk tannburstanum í vestisvasann af gömlum vana og þaut eins og faraldur, fyrst ofan í Þjóðleik- hús og létti eigi fyrr en ég kom að dyrum tónskáldsins og barði. — Get ég náð tali af Jóni Leifs tónskáldi m. m.? sagði ég við skrifstofustúlkuna, sem var önnum kafin við að raða stefreikningum. — Ég skal tala við skrifstofustjórann, sagði hún og hvarf inn í næsta herhergi. Ég snéri hattinum mínum á meðan og taldi snúningana. Ég var kominn upp í 65 snúninga, þegar skrifstofustjórinn birtist. — Þér viljið tala við foringjann, sagði hann. — Gerið svo vel og útfyllið þetta eyðublað. Nafn, aldur, fæðingarstað og dag og erindi yðar. Og svo bíðið þér í 25 mínútur. — Af hverju í 25 mínútur? — Foringinn tekur ekki á móti neinum fyrr en eftir 25 mínútur. Það ,,eru fastar reglur samkvæmt síðustu samþykkt- um Stefs. Menn eru ekki orðnir mátulega taugaóstyrkir af Það ég segi satt, ó já, sýndist bættur skaðinn, gömlu nautin fella og flá, en fá sér kýr í staðinn. Labbar um með litlmu þyt lítil hjörð á stéttum, sú er rauð með svörtum lit svona víða, á blettum. Slefán Jóhann stjórnarsess stilltrar bjarðar prýðir. Grimmlega hann geldur þess, að gerzkum aldrei hlýðir. Arnar bolinn bógasver brúkar kjaft og stríðir, stendur einn, ef í það fer, engu nauti hlýðir. Heyra má frá Hannibal hornagnýinn mestan. Kálfa felldi flórs í val frægur boli að vestan. Mörg eru í fjósi meðalnaut, mest af gömlum vana, ana jafnan eina braut, elta foringjana. Histórían heldur fljót á hæstu tindum stiklar. Aldrei sér hún svoddan dót, sem í flórnum spriklar. Frekt þótt stundi forarbusl fíflin höfðingjanna, þetta kálfa og kvígurusl komma og ihaldsmanna, dingli hölum alveg æst, öskri og ragni í bræði, verður seint í sögur fært, seinna þó í kvæði.

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.