Fálkinn - 04.04.1966, Blaðsíða 9
/ sumt
Kóngsdóttirm skemmtir sér
Einu sinni var kóngur í ríki sínu á bökkum Nílarfljóts.
Þegnar hans kunnu ekki að meta taumlaust kvennafarið
á kóngsa og létu hann sigla. Nú fyrir skemmstu hneig
hann dauður niður yfir matborði suður á Italíu og þótti
engum mikið. Maðurinn hafði nefnilega lifað allhátt um
dagana. En sagan er ekki þar með úti. Kóngurinn átti
sér nefnilega dóttur unga og fríða, sem heitir Ferial og
þegar hún var 17 ára varð hún ástfangin í hóteleiganda
frá Sviss, ekkjumanni sem á 7 ára gamla dóttur. Kóngsi
mátti náttúrlega ekki heyra nefnt að þau giftu sig og
urðu þau því að unnast í meinum í heil tíu ár, þangað til
Faruk neytti sinnar síðustu kvöldmáltíðar. Nú hafa elsk-
endurnir látið pússa sig saman og þó brúðkaupið hafi ekki
farið fram með Iúðrasveitarundirleik, fallbyssuskotum og
fíneríi, verður að vona að allt lukkist og sætleiki 10 ára
syndsamlegs lífs fölskvist ekki við klerklega blessun, eða
var það fógetablessun?
STANZIÐ í TÍMA!
Gerið þér yður ljóst hve mikil ábyrgð hvílir á
yður i umferðinni? Akið þér samkvæmt því?
Ökumenn, sem þekkja ábyrgð sína og taka ekki
óþarfar áhættur í umferðinni, eru velkomnir í
tryggingu til ÁBYRGÐAR. Ábyrgir tryggingar-
takar stuðla að bættri umferð og lségri trygging-
arkostnaði.
ÁBYRGÐ tryggir aðeins bindindisfólk og býður
þessvegna lægri iðgjöld. ÁBYRGÐ kappkostar
að veita góða þjónustu.
Abyrgdp
Skúlagötu 63. — Simar 17455 og 17947.