Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 3

Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 3
ÁVARP Um leið og blað þetta hefur göngu sína, þykir rétt að gera nokkra grein fyrir því. VIKUBLAÐIÐ er fyrst og fremst œtlað til skemvp-ti- lestrar og mun því einkum flytja stuttar sögur, innlend- ar og erlendar, en auk þess alls konar fróðleik. Er t. d. í ráði, að kynna i blaðinu ým- is merk fyrirtæki, sem þjóðin þarf að þekkjg, hvort sem þar er um að ræða gömul og gróin fyrirtæki eða nýgrœð- ing, sem vert er að hlúa að. Vikublaðið mun ekki styðja neing -pólitíska flokka, og heldur ekki stuðla að falli neins þeirra, og kállast það því ópólitískt. Þó munum vér eigi með öllu þegja yfir því, sem betur fer eða ver í hinu íslenzka þjóðfélagi, héldur fjalla um eitt og annað, er oss þykir máli skipta. Myndir munu prýða blað- ið, eftir því sem föng eru á. Útgefendur. LANDSSMIÐJAN 20 ÁRA iiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiLiiiiiiaMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiii í tilefni af 20 ára afmæli Landssmiðj- unnar, 17. f. mán., gekk ég á fund hr. for- stjóra Ólafs Sigurðssonar og fékk hjá hon- um ýmsar upplýsingar varðandi „afmælis- barnið“, og birtist hér útdráttur úr þeim. ItllllllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIillllIllllllllIlllIllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll 'C'YRIR réttum 20 árum, eða 17. janúar 1930, tók Landssmiðj- an til starfa. Hugmynd þáverandi ríkisstjórnar um starf- semi smiðjunnar og þróun er staðfest í lögum nr. 102 frá 23. júní 1936. Segir þar meðal annars: 1. gr. Ríkisstjórnin lætur starfrækja smiðju, er fæst við viðgerðir skipa, smíði mótora og annara véla og aðra smíði, og nefnist hún Landssmiðja. 2. gr. Landssmiðjan annast alls konar smíði fyrir einstakl- inga og félög, er bess kunna að óska, og auk þess annast hún alla smíði, sem hún getur tekið að sér fyrir þá starfrækslu, er ríkið hefur með höndum og þær stofnanir sem eru ríkis- eign, svo sem skipaútgerð, skóla, sjúkrahús, vita- og vega- málaskrifstofur, landssíma og ríkisútvarp, enda séu vinnu- brögð og verðlag, að dæmi ríkisstjórnarinnar, ekki óhagstæð- ari en annars staðar innanlands. Smiðjan tók til starfa í húsakynnum vegamálastjórnarinn- ar við Skúlagötu 8 og hafði til umráða aðeins ca. 150 fermetra gólfflöt. Greindist starfsemin strax í plötusmíði, vélvirkjun, rennismíði og eldsmíði, en þremur mánuðum síðar hófst einn- ig skipasmíði. Síðar bættust við járn- og málmsteypa og módelsmíði. — Nú hefur smiðjan um 3000 fermetra gólfflöt í hinu nýja húsi Landssmiðjunnar við Sölvhólsgötu.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.