Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 18

Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 18
r 16 VIKUBLAÐIÐ og sá menn tilsýndar, er voru í einhverjum deilum eða illindum. Hann sá blika á hníf í tunglsljósinu. Árásir á menn voru tíðar í Genúa á þessum tímum. Drengurinn áleit bezt fyrir sig að koma ekki nærri þessum óþokkum. Að líkindum börðust þeir um þýfi. En svo heyrði hann rödd, sem hann þekkti. Það var rödd Rossa, skipstjóra. Christoffer þaut þangað, sem bardaginn var harðastur. Þarna voru tveir glæpamenn að verki. Þeír höfðu fellt Rossa. Lá hann á jörðinni og stóðu þeir hálfbognir yfir honum. Annar fanturinn hafði brugðið stórum hnífi. Christoffer stökk að bófanum, sem hélt á hnífnum og sló hann úr hendi hans. Bófinn rak upp öskur af sársauka. Hinn fanturinn stökk á fætur og hugðist ráða niðurlögum Christoffers. En drengurinn barði manninn hrottalega með stafnum og hrópaði: „Komið félagar." Christoffer reiddi stafinn enn og ætlaði að berja glæpamennina. En þeir álitu, að félagar Christoffers væru á næstu grösum, og flýttu ,sér því burt. Skipstjórinn reis á fætur og burstaði föt sín. Hann sagði við drenginn: „Þakka þér fyrir. Ef þú hefðir ekki komið, mundi ég hafa átt erfitt um vörn. Hnífurinn var hættulegur. En hvað er þetta? Þú ert með .gamla íbenholtsstafinn minn. Ég keypti hann í Alexandríu. Ertu ekki Sonur Colombo vef- ara? Komdu með mér fram á skipið. Það er ekki hættulaust að vera á ferli hér um slóðir.“ Þegar fram á skipið kom, bauð skipstjórinn Christoffer niður í káetu. Þar lét hann dreng- inn segja sér frá sendiförinni með göngustaf- inn, er skipstjórinn hafði gleymt. Þeir töluðu saman um stund, og Rossa varð þess var, að drengnum þótti vefnaðarvinnan ekki skemmtileg. „Vilt þú ekki vera hér í skipinu í nótt?“ spurði skipstjórinn. Christoffer þakkaði fyrir boðið, en kvaðst vera hræddur um að foreldrar hans álitu hann hafa orðið fyrir slysi, ef hann kæmi ekki heim. „Já, en ég skal tala við föður þinn í fyrra- málið. Mig vantar léttadreng. Við viljum ekki nema fyrsta flokks menn. En þú ert duglegur drengur og að mínu skapi.“ Daginn eftir átti Rossa skipstjóri langt samtal við föður Christoffers. Viku síðar sigldi „Perla Genúa“ út úr höfn- inni. Christoffer skipsdrengur stóð aftast á skipinu og veifaði til foreldra sinna. Drengnum kom ekki til hugar, að hann þrjátíu árum síðar færi hina frægu för vestur um haf og fyndi Ameríku. Þessi drengur var Christoffer Columbus, einn af frægustu landkönnuðum heimsins. Og börnin eru ekki gömul, þegar þau heyra sagt frá þessum fræga manni. Barnasagan, sem birt verður í næsta blaði, fjallar um Mozart, hið heimsfrœga, þýzka tónskáld. Kennslukona í Búkarest sagði börnunum í bekk þeim, er hún kenndi í, frá Jeanne dArc, og hve mikið hún hefði gert fyrir Frakkland. Hennar vegna hefðu Frakkar unnið sigur í bardaga við Englendinga. — Síðast sagði kennslukonan frá því að Jeanne hefði verið brennd. Kennslukonan spurði: „Hvaða konu í landi voru getum við borið saman við Jeanne d’Arc?“ Hún horfði með eftirvæntingu á börn- in. — Djúp þögn. . „Jú, við höfum Önnu Pa,uker“, svaraði kennslukonan. „Hún er hin mikla hetja þessa lands. Hún hefur barizt fyrir Rúmeníu, og sigrað. Allir geta séð hinar miklu framfarir, sem eru á öllum sviðum“. Lítill drengur rétti upp höndina og spurði með ákafa: „Hvenær verður Anna Pauker brennd?“

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.