Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 15

Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 15
VIKUBLAÐIÐ 13 VIKUBLAÐIÐ kemur út á föstudögum og kostar kr. 2.50 eintakið. Ritstjóri og ábyrgðarmaður Jóh. Scheving Sími 5671 Afgreiðsla: Austurstræti 9 Sími 6936 Prentsmiðja: PRENTFELL H.F. Beztir eru kossar sænskra stúlkna. Það hef ég sjálfur reynt. Þær eru munnsmáar og kyssa framúrskarandi vel. Þær hafa yndi af að kyssa. Fullorðnar konur kyssa hiklaust. En að baki kossanna er angurblíða. Hvað er að segja um kossa hollenzkra kvenna? Ég get ekki um þá dæmt. Það er aðeins vika liðin frá því er ég kom til Hollands. Ég sit og horfi á kvenfólkið. Margar stúlkur eru hér fríð- ar og indælar. Þegar ég skrifa þetta, sé ég fallegar stúlkur á gangi fram með gömlum skurði. Vika er of stuttur tími til þess að fá fullnægjandi reynslu í þessu efni. En Hollendingur hefur sagt mér, að kossar hol- lenzkra stúlkna séu hvers- dagslegir. A. E. W. MASON : EITURÖRIN ----------------Framhaldssagan I. KAPÍTULI. Athyglisverð bréf. TTerrarnir Frobisher & Haslitt, málflutningsmennirnir, er aðsetur sitt höfðu austan við Russell Square, töldu fjölda manna og kvenna, sem áttu fyrirtæki eða eignir í Frakklandi, á meðal beztu viðskiptavina sinna. Og firmað var mjög hreykið af þeirri grein starfsemi sinnar, sem fram fór í þágu þessa fólks. „Það hefur sögulega þýðingu fyrir okkur,“ var Jeremy Haslitt vanur að komast að orði. „Því að þessi viðskipti okkar hófust fyrst árið 1806, þegar herra James Frobisher, er var dugnaðarforkur hinn mesti og þá eldri eigandi firmans, skipu- lagði undankomu fleiri hundruð brezkra þegna, sem Napóleon I. teppti í Frakklandi með tilskipun þar að lútandi. Firmað móttók þakklæti frá Ríkisstjórn Hans Hátignar, og hefur borið gæfu til þess að geta varðveitt þær vinsældir sínar, sem því tókst að afla sér á þennan hátt, alla tíð síðan. Með þessari hlið starfrækslu okkar hef ég sjálfur yfirumsjón.“ í hinu daglega bréfaflóði, sem skall á skrifborði Jeremy Haslitts, var þess vegna, undantekningarlítið, talsverður fjöldi bréfa, sem merktur var hinum dökkbláa póststimpli Frakk- lands. Þennan morgun, í byrjun aprílmánaðar, var samt sem áður ekki nema eitt slíkt bréf. Áritun þess var viðvaningsleg; fljótaskrift, sem Haslitt kannaðist ekki við. En það hafði verið póstað í Dijon, af ekkju að nafni frú Harlowe, en af heilsufari hennar hafði hann ekki fengið góðar fréttir undan- farið. Bréfið hafði eflaust verið sent frá heimili hennar, La Maison Grenelle, en var þó ekki frá henni sjálfri. Hann leit á undirskriftina. „Waberski?“ sagði hann og hleypti brúnum. „Boris Wab- erski?“ Og þegar hann hafði komið bréfritaranum fyrir sig, bætti hann við: „Ó-já, alveg rétt.“ Hann settist niður og hóf að lesa bréfið. Fyrsti hluti bréfsins var að mestu leyti skjall og málalengingar, en á miðri annarri síðu þess var erindið sett fram svo greinilega að ekki varð

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.