Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 7

Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 7
VIKUBLAÐIÐ 5 Álirifaraikil ensk kvikmynd Margaret Leighton leikur systir Bonnie. Árið 1908 var þrettán ára drengur, sem stundaði nám í herskólanum í Osborne, á- kærður fyrir að hafa stolið 5 shillings póstávísun frá fé- laga sínum, falsað nafn hans á ávísunina og fengið hana greidda. Drengurinn var rekinn úr skólanum. Faðir drengsins trúði þó fullyrðingu sonar síns um það, að hann væri saklaus. Hóf faðirinn baráttu til þess að fá það sannað að ákæran hefði ekki verið á rökum reist. Þetta virðist í fljótu bragði mál, sem litla athygli myndi vekja meðal almennings. En sú varð ekki raunin á. Næstu fjögur árin var meira um mál þetta talað í Englandi, en nokkurt annað. Það urðu miklar deilur um það í neðri málstofu brezka þingsins. Arthur, faðir Bonnie, spyr hann, hvort hann sé sekur. Málskostnaður varð svo mikill, að faðir drengsins varð nær því eignalaus. En hann vann málið. Þótti það mikill sigur fyrir þá feðga, málfærslumann þeirra og enskt réttarfar. Venjulegur borgari hafði Frh. á 7. síðu. Hún settist dálítið frá hon- um. Róbert setti vélina í „gear“. Þau töluðu lítið saman á leiðinni til stöðvarinnar. Þegar Róbert hafði komið bílnum fyrir, sagði Irene: „Ég vildi að þú hefðir kom- ið nokkru fyrr. Tíminn hefur liðið svo fljótt.“ Hann sagði: „Ég á bágt með að kveðja þig. En hjá því verður ekki komizt. En beisk er skilnaðarstundin." Hún þrýsti sér upp að hon- um augnablik. Þá laut hann niður og kyssti hana. Að því búnu leit hún í spegil og lit- aði varirnar. Niðri á stöðvarpallinum var gildvaxinn, roskinn, heldri maður. Hann kom á móti þeim og mælti: „Jæja frú, þar komið þér. Ég hef talað við stöðvarstjórann og hann segir að lestin komi á réttum tíma. Að þrem mínútum liðnum verður maður yðar kominn.“ Gildvaxni maðurinn var Georg Banner, húsbóndi Eric. Hann var kátur og heilsaði Róbert með handabandi. Irene gekk út á brún stöðv- arpallsins. „Nú kemur lestin,“ sagði hún. Lestin kom. Eric var í vagni framarlega í lestinni. Hann stóð við gluggann. Irene hljóp fram með lest- inni, eftir að hún staðnæmd- ist, til þess að geta strax tekið á móti Eric er hann stigi út úr lestinni. Róbert og Banner fóru á eftir henni, og urðu samferða. Banner sagði: „Hvers vegna var yður það svo mikið áhugamál, að ég kallaði Eric heim?“ Róbert hélt vísifingri upp að munninum og mælti: „Þei, þei. Við skulum ekki tala um það. Munið eftir því að minn- ast ekki á þetta við nokkurn mann. Við sömdum um það þegar ég gerði stóru pöntun- ina, að þér skylduð kalla Eric heim. Þetta er leyndarmál, sem engir mega þekkja nema við báðir.“ Banner sagði: „Já, ég svík aldrei gefin loforð.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.