Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 12

Vikublaðið - 03.02.1950, Blaðsíða 12
10 VIKUBL AÐIÐ „SKÓLI TpiNN af beztu skólum, sem ^ til eru fyrir vandræða- börn, er í New York, og ber nafnið „Skóli nr. 37.“ í þennan skóla eru sendir drengir, sem reknir hafa verið úr öðrum barnaskólum, og þar álitnir ómögulegir. Skóli nr. 37 er þrautalend- ingin. Ef nemendurnir batna þar ekki, eru þeir settir á hæli fyrir óbetranleg börn. Þegar komið er í skóla þennan, veita menn því at- hygli, hve nemendur eru frjálsir gagnvart vali við- fangsefna. Gerir þetta skól- ann miklu skemmtilegri en venjulega skóla. í flestum skólum er ákveðinn skammt- ur, eða skammtar, af fróðleik, sem komast verður í alla. Og í þessum skóla er ekkert sparað. Mestur hluti nemendanna nær þarna þeim bata, að þeir verða eins og fólk er flest. Skóli þessi rúmar 250 drengi. Elsie Mc Cormic segir frá heimsókn sinni í skóla þenn- an. Var greinin birt í „Surrey Graphic“, en er hér dálítið stytt. Elsie kveðst hafa orðið for- viða yfir þeim vingjarnleik, er hún strax mætti, þegar hún var komin inn í skóla þennan. IVR 37“ Skólastýran heitir Lilian L. Rashkis. í móttökuherberginu voru mörg málverk. Allur er skólinn hreinn og vel hirtur. Allt er í röð og reglu. Púltin voru opnuð cg henni leyft að athuga þau. Þar var öllu snyrtilega fyrir- komið. Á föstudögum eru fundir haldnir í stórum sal. Þangað safnast allir drengirnir. Þeir hlusta gaumgæfilega á ræðu- manninn. Verða menn forviða á þekkingu drengjanna. En þeir eru á aldrinum tíu til fimmtán ára. Þarna eru drengir af ýms- um þjóðflokkum. Margir þeirra eru kynblendingar. Svo mikill menningarbrag- ur hvílir yfir fundinum eða samkomunni, að ætla mætti, að þarna væru samankomrir úrvalsdrengir að gáfum og góðri hegðun. En helmingur þessara ná- unga höfðu orðið uppvísir að glæpum og verið teknir af lögreglunni. Margir þeirra höfðu vevið í þjófafélögum, misþyrmt börnum, sært með hnífum, svikist um að sækja skóla, ráðist á kennara o. s. frv. í fám orðum sagt: Þeir höfðu hegðað sér sem villimenn. Úr þessu ,,hráefni“ hefur frú Rashkis og öðrum kenn- urum við skóla þennan, tekist að gera mörg listaverk. Margir drengir þessa skóla bera af nemendum annarra skóla, hvað kurteisi, námfýsi og þekkingu snertir. Samkvæmt frásögn Juven- al Marchisi, dómara í lög- reglurétti New Yorg borgar, verða yfir 90% af nemendum „Skóla nr. 37“, góðir borg- arar. Mjög margir nýsveinar í skólanum gera tilraunir til uppreistar, og viðhafa sína gömlu ósiði. En þeir, sem fyrir eru, laga þá: Þeir hafa sjálfir hegðað sér illa, og sumir verr en nýliðarnir. Er því gagnslaust fyrir nýliðana að ætla að slá sig til riddara með prakkaraskap. í bekkjum þessa skóla eru venjulega 10—15 drengir. Frú Rashkis segir, að strax sé reynt til þess, að finna á hvaða sviði hæfileikar hins nýkomna drengs liggi. Sálar- fræðingar rannsaka hann, og aðrir sérfræðingar Þarna er drengnum sýnt traust. Heimili drengsins er athugað gaumgæfilega. Fundir eru haldnir, af skólastýru og kennurum, við- víkjandi drengnum, og talað um hæfileika hans og skap- gerð. Níu af hverjum tíu þessara drengja hafa eyðilagst vegna lélegra foreldra og óviðun- andi heimilislífs. Stöðugt berast skólanum skýrslur um heimilin. Hljóða þær flestar um óþrifnað,

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.