Vikan


Vikan - 19.01.1961, Síða 13

Vikan - 19.01.1961, Síða 13
r þplla __ svinmol næslu liu í einhverjum næstu blöðum Vikunn- ar mun birtast grein um útlend og inn- lend húsgögn, og mun sú grein taka yfir 5 blaðsíður. Þar verða myndir af þeim húsgögnum, sem Vikan getur helzt mælt með og á boðstólum eru í húsgagnaverzl- unum i Reykjavík og viðar um land. Þessi þáttur er eins konar forsmekkur að þeirri grein, og hér tökum við sérstak- lega fyrir þá breytingu, sem kemur fram á húsgögnum í ýmsum löndum Evrópu. Margir húsgagnaarkitektar eru þeirrar skoðunar, að stíll, svipaður og sést á hús- gögnunum á meðfylgjandi myndum, verði ráðandi á næstu árum og kannski næsta áratuginn. Eins og sjá má, er hér um að ræða endurvakinn fúnkisstíl, en húsgögn- in eru léttari, formin fágaðri og efnið margbreytilegra en var i fúnkishúsgögn- unum, hinum fyrstu, sem voru á markaðn- um milli 1930 og 1940. Fyrir þvi verður gerð nánari grein í húsgagnaþættinum. sem áður er frá sagt og bráðlega mun birt- ast. Hér látum við myndirnar tala, og sýn- ishornin eru sitt frá hverju landi. Segja má, að allar þær þjóðir, sem fremst standa i húsgagnaiðnaði, hafi sýnt tilhneigingu til þess að breyta útliti húsgagnanna i þessa átt. 4 / i Fransmenn eru smám saman að losna undan áhrifamætti Lúðvíkanna sinna og barokkostílsins. Svarið við útflúrinu er hin algera andstæða: stólar svo kantaðir, að þeir gætu verið úr steinsteypu. Hér virðist setan vera of löng, og líklegt er einnig, að stuðning vanti við bakið. En það er stíll í þessum húsgögnum, því verður ekki neitað. Þjóðverjinn Grophius var upphafsmaður fiinkishús- gagna, og áhrif hans hafa lifað i Þýzkalandi, þótt hann yrði að flýja þaðan. Hér eru ný, þýzk húsgögn í anda Grophiusar, en formið er ólíkt fágaðra en var á hús- gögnunum hans fyrir 30 árum. Þessum húsgögnum er yfirleitt ekki raðað á ská, því það brýtur þær línur, sem eru aðalsmerki þeirra. ftalir hafa ásamt með Þjóðverjum verið frumkvöðlar þess að endur- reisa fúnkisstílinn. Þessi húsgögn eru ítölsk, smíðuð samkvæmt boð- C> orðum hinnar hreinu flatarskipt- ' ingar. í fótunum er smíðajárn.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.