Vikan - 22.05.1980, Blaðsíða 13
Ljósm.: Jim Smart
Gufunesradíó sendir út áhrifamikla
tóna pianókonserts í a-moll eftir Grieg
og undir tekur rödd þess manns sem
unnið hefur sér fé og heimsfrægð fyrir
volduga rödd sína. Hún spannar fimm
oktavir. venjuleg mannsrödd tvær. Hún
tilheyrir Ivani Rebroff sem er svo
vinsæll á tslandi að i Reykjavik einni
saman seldist eins og örskot upp á fimm
tónleika. 1 þetta sinn er tónleikasalurinn
jeppinn hans Garðars Cortes og við
erum að leggja af stað með söngvarann í
ferð til Hveragerðis, Geysis og Gullfoss
ásamt eiginkonu hins þýska umboðs-
manns hans, Irmu Weber. Verkið hrífur
hann greinilega mikið, hann baðar út
höndunum. Samt er það nú ekki
béiWllnis* ‘ ’ktassisk tónlist' sem Ivan
Rebroff hefur öðlast heimsfrægð fyrir
heldur túlkun hans á rússneskum
þjóðlögum?
— Ekki aldeilis, segir Rebroff. — Ég
hóf feril minn einmitt sem óperusöngv-
ari — og spilaði meira að segja líka á
fiðlu. Og ég syng ennþá sem óperú-
söngvari þótt fiðlan sé mér ekki lengur
annað en tómstundagaman. Ég gríp þó r
hana ef svo ber undir á sviðinu eins og
t.d. í Fiðlaranum á þakinu. Tevje
markaði tímamót i lífi mínu en það hlut-
verk söng ég í París í tvö ár. Leikstjórinn
var svo ákveðinn í að fá mig að honum
var alveg sama þótt ég kynni þá ekki orð
í frönsku. Að undanförnu hef ég sungið i
söngleik sem heitir Glas af vatni í
Theater an der Wien. I Vínarborg tók ég
einnig þátt í hátíðarviku tileinkaðri
tónskáldinu Robert Stolz. Og nú stendur
til að endurtaka hana í Munchen.
Eftirlætishlutverk mín sem óperu-
söngvari? Tja, t.d. Boris Gudunov og
æðsti presturinn i Töfraflautunni.
Hann hét upprunalega Rolf Rippert
og kom í heiminn á járnbrautarstöð í
Berlín. Hvað með Rússann Ivan
Rebroff?
— Ég er dæmigerður Rússi. Enginn
getur verið dæmigerðari Rússi en ég.
Tevje markaði tíma-
mót í lífi mínu en það
hlutverk söng ég í
París í tvö ár. Leik-
stjórinn var svo
ákveðinn í að fá mig
að honum var alveg
sama þótt ég kynni þá
ekki orð í frönsku.
£3
i i
• f { &
Dýravinurinn I van Rebroff.
I LEIT AÐ
HRAFNS-
UNGA OG
SNÆUGLU
Vikan á ferð með söngvaranum
Ivani Rebroff
Á heimilinu ríkti
andblær rússneskra
ævintýra og
rússneskrar tónlistar,
alltandrúmsloft bernsku
minnar var rússneskt.
Faðir minn var rússneskur gyðingur frá
Síberíu, móðir min frá Úkraínu. Þau
flúðu til Þýskalands en þegar nasistar
komust til valda varð faðir minn að flýja
til Sviss og seinna Englands vegna þess
að hann var gyðingur. Föðuramma mín
lét lifið í útrýmingarbúðunum í
Theresienstadt. Mamma var látin í friði
þar sem hún var ekki gyðingur. Hún var
ekki há i loftinu en það var svei mér
töggur í henni. Hún barðist eins og
ljónynja fyrir okkur börnunum, mér og
bróður mínum. Og hún hélt fast í allar
rússneskar hefðir. Á heimilinu ríkti and-
blær rússneskra ævintýra og rússneskrar
tónlistar, allt andrúmsloft bernsku
minnar var rússneskt. Rödd min er líka
dæmigerð fyrir Rússa. Hún er guðsgjöf,
en það verður að fara vel með hana og
þjálfa hana rétl.
Við erum ekki komin lengra en til
Elliðaárvoga þegar Rebroff stifnar
skyndilega upp í sætinu og heimtar að
viðsnúum við.
— Ég veit að það gerist eitthvað
skelfilegt innan næsta klukkutima, segir
hann. — Ég svaf ekki i alla nótt. Þjáðist
af alveg hræðilegu þunglyndi. Ég er
alveg ofboðslega óhamingjusamur.
Búinn að brjóta alla matarkúra og éta á
mig gat.
En við lokkum hann áfram með
fögrum lýsingum á Edensgróðri í
Hveragerði. Og banönum ...
— Aha, bananar, segir hann. — Ég á
vin í Ástralíu sem ræktar slik býsn af
banönum að hann hefur látið girða i
kringum húsið sitt með þeim. Hann er
alveg brjálaður i Irmu en hún vildi ekki
sjá hann. Þvilikt og annað eins, að neita
milljónum af banönum!
Á Rebroff i striði við kílóin?
— Nei, ég meina eiginlega ekkert með
þessu. Ég má ekki verða of magur vegna
raddarinnar. Það eru svo mýmörg dæmi
þess að söngvarar hafi misst röddina
vegna megrunarkúra. Lítið bara á Mariu
Callas. Og það er tvímælalaust betra að
vera sílspikaður stórsöngvari en
raddlaus horgrind.
Dýralífið á leiðinni vekur mikla
athygli hjá Rebroff, hann gripur óspart
til kikisins síns, vill stoppa og skoða
dýrin nánar, sérstaklega fuglana.
21. tbl. Vikan 13